Freyr - 01.07.1937, Side 34
128
F R E Y R
Fyrirmæli,
um fjallskil, fjárrekstra, fjárflutning og um ráð-
stafanir á sýktu og grunuðu fé í leitum og rétt-
um, til varna gegn útbreiðslu borgfirzku sauðfjár-
veikinnar.
1. gr.
Fyrirmæli þessi ná til allra sýslna á vestur-
hluta landsins frá Eyjafjarðarsýslu að Vestur-
Skaftafellssýslu, að Vestf jarðakjálkanum undan-
skildum. í fyrirmælum þessum eru héruðin aust-
sn Héraðsvatna og Þjórsár, Gullbringu- og Kjós-
arsýslu ásamt héruðum vestan Olfusár og Sogs,
Snæfells- og Hnappadalssýsla og Dalasýsla norð-
an girðingarinnar milli Hrútafjarðar og Hvamms-
fjarðar, ásamt þeim hluta Hörðudals, sem er inn-
an varnargirðingar, talin ósýkt svæði. Héruðin
milli Blöndu og Héraðsvatna, Þjórsár og Ölfusár,
Hvítár og Brúarár eru talin grunuð svæði. Önn-
ur héruð eru talin sýkt.
2. gr.
Hrepsnefndum á ofannefndum svæðum er skylt
að haga fjallleitum og réttum í samráði við hlut-
aðeigandi sýslufulltrúa.
3. gr.
Hreppsnefndum er skylt, ef þörf krefur, að
breyta út af f jallskilareglugerðum í samráði við
tða eftir tillögum sýslufulltrúa. Verði ágreining-
ur milli hreppsnefnda og sýslufulltrúa, skal
hreppsnefnd hlíta fyrirmælum sýslufulltrúa, þang-
að til úrskurður framkvæmdarstjóra sauðfjár-
veikivarnanna er fenginn.
4. gr.
Hreppsnefndum er skylt að hafa til sérstakan
og vel einangraðan dilk við hverja rétt, til þess
að draga í allt fé, sem sýkingu eða óeðlilega mæði
sér á. Skal fé þetta rekast til slátrunar beint úr
réttinni, án þess að það hafi samgang við annað
fé. Kostnaður við þann rekstur jafnast niðui' með
Öðrum fjallskilum.
5. gr.
Fé af sýktu svæði, sem finnst í réttum eða við
beimasmalanir á grunuðu svæði, og' fé á ósýktu
svæði,af grunuðu eða sýktu svæði, er skylt að ein-
angra, og skulu hreppstjórar sjá um að ráðstafa
fé því tafarlaust til slátrunar.
6. gr.
Verði breytingar á leitum og réttum skulu við-
komandi hreppsnefndir tilkynna það öðrum
hreppsnefndum, sem hagsmuna eiga að gæta í því
sambandi, með nægum fyrirvara.
7. gr.
Hreppsnefndum er heimilt, í samráði við sýslu-
fulltrúa, að fyrirskipa að fé úr hreppum þeirra,
sem fyrir kemur í útréttum á eða nálægt sýktum
og grunuðum svæðum, sé ráðstafað til slátrunai'
'beint úr réttunum.
3. gr.
Fjárrekstrum af sýktum og grunuðum svæð-
um, sem fara þarf með yfir heilbrigð svæði, — og
leyfðir hafa verið af framkvæmdarstjóra, — skal
hagað eftir fyrirmælum sýslufulltrúa, raem til-
nefnir rekstrarstjóra. Stranglega er bannað að
reka saman í bæjarrekstrum, eða rekstrum milli
rétta, heilbrigðar kindur og þær, sem lasleika sér
á.
9. gr.
Brot á ákvæðum þessum varða allt að 10000.00
kr. sektum. Með mál út af slíkum brotum skal far-
ið, sem almenn lögreglumál.
Fyrirmæli þessi staðfestast hérmeð samkvæmt
lögum nr. 12, 12. maí 1937, um varnir gegn út-
breiðslu borgfirzku sauðfjárveikinnar til þess að
öðlast þegar gildi og birtast til eftirbreytni öllum
þeim, sem hlut eiga að máli.
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið,
17. ágúst 1937.
. Eysteinn Jónsson.
\ / Páll Pálmason.
Sauðfjárræktarráðunauturinn, Halldór Pálsson
dvelur nú í Englandi, en hans er von heim
snemma í september, og dvelur þá heima hér fram
i nóvembei'.
Hefir hann beðið Frey, að skila því til bænda,
er eitthvað vildu til hans leita nú í haust, að gera
það helst meðan hann er hér á landi.
Bréf til hans má senda í Búnaðarfélag Islands.
Athugið, bændur góSir, og aðrir, sém fái<S blaS-
i<S, að útgáfa þess eSa ekki, getur oltiS á því,
hvort þici standitS í skilum viS þatS!
ísafoldarprentsmitSja h.f.