Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2004, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2004, Síða 32
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan sólarhrmginn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090 SKAfTAHLÍÐ 24 105 REYKJAVÍK[STOFNAÐ 1910 ] SÍMI550 5000 • íslenska landsliðið í handknattleik búið að skip- ta um styrktarað- ila og leikur liðið nú undir merkjum Kaupþings-Bún- aðarbanka en ekki Landsbankans. Líta margir svo á að KB-bankinn hafi nú líka keypt landsliðið. Hand- knattleiksforystunni fannst sem áhugaleysi væri komið upp hjá Landsbankanum og sneri sér því til Sigurðar Einarsson og hans manna í KB-bankan- um. Þar sáu menn strax tækifærið í væntanlegum dýrðarljóma handboltans og skrifuðu undir feitan samning. Þegar topparnir í Landsbankanum fréttu svo af þessu varð uppi fótur og fit því þar höfðu lægra sett- ir og sjálfumglaðir banka- starfsmenn á neðri hæðum tekið þessa ákvörðun án samráðs við BjörgólfGuð- mundsson og félaga. Eiga þeir nú ekki sjö dagana sæla í bankanum og hefur verið sagt að skammast sín... Þetta er dýrara en á mynd Hrafns! / Aðgöngumiði á 29.800 krónur í Háskólabíói „Þeir eru rándýrir þessir íyrirles- arar sem eitthvað vit er í,“ segir Sverrir Bernhöft sem undirbýr komu fyrirlesarans Dennis Kimbro hingað til lands á vegum Stjórnunarfélags- ins. Aðgöngumiðinn á fyrirlestur Kimbro kostar tæpar 30 þúsund krónur og verður haldin í Háskóla- bíói í byrjun næsta mánaðar. Ef uppselt verður þá mun þessi dagur i Háskólabíói velta um 30 milljónum króna þar sem kvikmyndahúsið tek- ur þúsund manns í sætir. „En við búumst nú ekki við nema 2-300 manns,“ segir Sverrir Bernhöft. Doktor Dennis Kimbro byggir kenningar sínar um velgengni manna á bókinni Think and Grow Rich eftir Napoleon Hill sem Kimbro endurskrifaði og hefur selt í 20 millj- ónum eintaka. Auk þess er Kimbro höfundur bókarinnar What Makes the Great Great. Dennis Kimbro þykir einn snjall- asti fyrirlesari samtímans þegar kemur að kenningum um hvernig ná eigi árangri í lífinu hvort sem um er að ræða í veraldlegum skilningi eða andlegum. Eftir honum hafa verið hafðar fleygar setningar, eins og : „Allir sem njóta mikillar vel- gengni horfa á valkosti í stað þess að vera með afsakanir." Og svo þessi: „Menntun þinni á ekki að ljúka þeg- Þrjár tegundir eru nú fáanlegar: Lambakjöt í karrýsósu Lambakjöt í drekasósu Lambakjöt í tapenadesósu Dennis Kimbro - dýr fyrirlesari Hvetur fólk til að stiga sigurvisst út i óvissuna ar þú útskrifast úr skóla. Þeir sem standa í fremstu röð eru stöðugt að læra.“ Og líka: „Flestir sætta sig við alltof lítið í lífinu í leit sinni að ör- yggi. En besta öryggið er að eltast við drauma sína. Eina leiðin til að finna tilgang lífs þíns er að brjótast út úr þægindahringnum og stíga sigurviss út í óvissuna." Þrátt fyrir hátt verð aðgöngumiða á fyrirlestur Dennis Kimbro er boðið upp á afsláttarkjör og geta menn fengið tvo miða fyrir einn auk þess sem sækja má um styrki til verka- lýðsfélaga eða vinnuveitenda: „Það er alls konar fólk sem sækir svona fyrirlestra. Sjálfur fór ég fyrir fjölda- mörgum árum á einn og hann breyt- ti lífi mínu og rekstri fyrirtækis míns algerlega," segir Sverrir Bernhöft. Hvort sem ætlunin er að elda góða bragðmikla máltíð á 10 mínútum, eða gera veislumat úr góðu hráefni, þá eru pottréttirnir frá Goða rétta valið. Atram veginn Hnmbnrg- arnbúlia Tómasar „Ég ætla að opna 14. mars en þá verða nákvæmlega 23 ár liðin frá því ég byrjaði með Tommaborgara á Grensásveginum," segir Tómas Tómasson veitingamaður sem er aftur kominn í hamborgarana. Nú á gömlu hafnarvoginni við Geirsgötu 1 þar sem áður var kaffistofa hafnar- verkamanna. Húsið hefur gengið undir nafninu Skeifan og staðið autt um árabil. Það er byggingarsöguleg perla, teiknað af Einari Sveinssyni borgararkitekt sem meðal annars teiknaði heilsuverndarstöðina við Barónsstíg. „Staðurinn á að heita Hamborgarabúlla Tómasar og þetta verður dálítið amerískt," segir Tómas. Skeifan við Geirsgötu er ekki nema 55 fermetrar að flatarmáli; í raun ekki annað en stórt eldhús með 16 stólum við glugga og fáein borð. Þarna ætlar Tómas að steikja borgara eins og honum er einum lagið enda hefur hann sannað það með Tommaborgurum sínum að fáir kunna betur til verka á því sviði en hann. Og hann eldsteikir þá eins og tíðkast á öllum betri veitinga- stöðum í Bandaríkjunum. „Galdurinn við góðan hamborg- ara er einfaldlega að vera með fyrsta flokks nautakjöt og hóflega fitu- sprengt. Svo er bara að elda með kærleika og setja sálina í þetta. Svip- að og þegar maður hellir upp á könnuna af alúð,“ segir Tómas sem síðast kom að veitingarekstri í Kaffi- brennslunni við Pósthússtræti. Þann stað seldi hann fyrir hálfu öðru ári: „Síðan hef ég verið að litast um, datt svo niður á þennan mögu- leika. Húsið er skemmtilegt og stað- setningin góð. Annað þarf ég ekki,“ segir Tómas á Hamborgarabúllunni í Skeifunni við Geirsgötu. Tómas við Skeifuna Alltsem þarf er kærleik- ur við steikinguna og góð staðsetning. Með honum er Örn Hreinsson meðeigandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.