Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Side 3
DfV Fréttir LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 3 Fórnarlömbum ógnað Spurning dagsins Afmælisgjöf til Davíðs? Ekki veit ég hvað vakir fyrir þess- um grunnhyggnu mönnum eða kannski konum sem ætla að kæfa það andrúm sem fórnarlömbum nauðgana hefur verið veitt til þessa. Það er svo greinilegt að einhverj- ir skriffinnar sem stara á reikniborð- ið sitt og hafa ekki hundsvit á því hvað þeir eru að gera, eru hér við stjórnvölinn. Hugmynd út í hött En Skriffinnur minn, komi sá dagur að dóttir þín verður fyrir því persónuleikamorði sem nauðgun er, þá kannski gerir þú þér grein fyrir því hversu sekur þú ert á þessari stundu. Hugmyndin um að fórnarlömb nauðgana eigi að fara á kvennadeild Landspítalans er alveg út í hött. Á kvennadeild Landsspítalans er unn- ið á allt öðrum forsendum. Konur eru veikar og þurfa aðhlynningu vegna veikinda sinna, konur eru að fæða börn og þurfa aðhlynningu og þjónustu vegna þessa, fyrir svo utan að þar eru einnig konur sem gangast undir gervifrjóvganir til þess að geta eignast börn. Það má eiginlega segja að þarna sé um þrjá megin þætti að ræða. Inn í hvaða bás þarna heyrir svo ofbeldið? Það er mikil hætta á því að þetta gangi ekki upp og þá verði fórnarlömbum nauðgana vís- að til lögreglu og það vita allir sem lent hafa í því að þurfa að tilkynna um stuld eða leita sér að þjónustu á löggustöðinni að þar er síður en svo umhverfi sem veitt getur litlu skjálf- andi stúlkubarni það öryggi og þá andlegu vernd sem sérstök móttaka gerir í dag. Eruð þið brjálaðir? Með sveðjur í hendi Það er eins og menn standi með sveðjur í hendi og sveifli í kringum sig og láti hvaða hausa sem er fjúka án þess að hugsa nokkuð út í, við hvaða bol þeir eru festir. Méð fárra daga millibili berast okkur fréttir af því að loka eigi mót- tökudeild fyrir fórnarlömb nauð- gana og hugsanlega sérdeild geð- Kjallari Elísabet Brekkan furðarsigá hugmyndum um niðurskurð læknarnir þurfa nú líka að lifa og bankarnir þurfa sitt þannig að þið verðið að herða sultarólina en gleymið þó í öllum lifandis bænum ekki að halda áfram að kaupa og kaupa í öllum ykkar frístundum því það heldur okkur öllum gangandi. Nei, það er ekki erfitt að verða skidsófren í þessu landslagi. Við vit- um alveg að til er nóg af peningum, það er bara spurning um forgangs- röðun ekki satt. Besta dæmið flnnst mér þó vera þegar ekki voru til aurar til þess að kaupa hljóðfæri handa föngum á Lilta Hrauni. Það var leitað til versta óvinar forsætisráðherrans og hann sendi pí- anó um leið og kallið kom og mun það vera kostnaður á bilin um eitt til fimm hundruð þúsund krónur. Á sama tíma lét þáver- andi dómsmálaráð- herra gera upp náð- hús sitt, þ.e.a.s. salerni skrif- stofunnar fyrir íbúðaiverð. Fyrir þann kostnað hefði mátt kaupa sjö stykki pí- anó. En það er náttúm- lega ekki hægt að pissa í pí- anó! sjúkra fanga að Sogni. Það er kappsmál manna í nútím- anum að reyna að sverja af sér norsk- an upprunann en ég er farin að halda að uppruninn sé ekki bara norskur heldur að við séum hreinlega norsk. Eftir að Norðmenn urðu svo ríkir að þeir gátu smurt geitostana með olíu varð hnignun í sjúkrahúsakerfi þeirra og rugl í skólamálum, niðurskurður og aftur niðurskurður meðan gamlar hálmdýnur fyllstust af gullpeningum sem eru bara til óþæginda fyrir bakið. Þeim hefur ekki lánast að bæta það sem gott var með öllum þeim peningum sem skyndi- lega frussuðust á land. Það er varla gerð sú samanburðar- rannsókn um hagi og hegð- un manna í hinum vestræna heimi að ekki sé minnst á hvað íslendingar eru rík- ir, góðir í stærðfræði og yflrmáta hamingjusamir, en hvernig stendur þá á því að þeir eru svona ótrú- lega fávísir? Ekki hægt að pissa í píanó Á tyllidögum tala ráðamenn um ríkidæmið og kaupmáttinn og hreykja sér hátt eins og þeir hafl gengið út með- al manna og gefið úr eigin vasa. Svo koma aðrir dagar þar sem menn setja í brýrnar og reyna að vera skólastjóralegir til þess að benda sauðsvörtum al- múganum á, að nú sé staðan sú að eymingja ______________________ Mögnuð lesning „Splunkuný bók sem heitir Bobby Fischer goes to War og fjallar um heimsmeistaraeinvígi hans við Spassky í Reykjavík 1972. Höfundar ieituðu viða fanga og niðurstaðan er spenn- andi og stórfróðieg bók um sögulegasta skák- viðburð allra tíma. Einvígið var besta auglýsing sem Island hafði fengið og var i heimspress- unni vikum saman. Fischer sagði I raun Sovét- ríkjunum stríð á hendur og hafði sigur. Mögn- uð lesning." Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins. „Ég mæli með rússneskri loð- húfu, slíkt myndir gefa Davíð í senn virðulegan og valdsmanns- legan blæ. Svona húfur eru skjólgóðar og veitir ekki af, því gjarnan er kalt á toppnum." Sváfnir Sveinbjarnarson, fv. pró- fastur. „Það væri gott fyrir Davíð að slaka á - og því mæli ég með því að við gef- um honum kampavín og blöðrur. Síðan er bumbuban- inn sniðug hugmynd, þvi karlinn hefur stundum verið að fara i megrun.“ Berglind Gunnarsdóttir, húsmóðir. „Bunka afjá- kvæðni, á slíkri gjöfþurfa allir að halda nú í svartasta skammdeginu sem er tími sem mörgum reynist erfiður. Efvið brosum framan í heiminn gerir heimurinn hið sama, líka i tilviki Dav- íðs." Anna Jóna Snorradóttir, aðstoðar- maður tannlæknis. „Itilefniaf- mælisins myndi ég gefa Davíð afslátt- armiða ÍBón- us. Til að gjöfin yrði sæmilega vegleg myndi ég láta fylgja áskrift til árs að DV og Stöð 2. Kannski ekki úr vegi að láta fylgja nokkrar blöðrur merktar KB banka til að skreyta afmælið." Reynir Traustason blaðamaður. Yfirlæti á DV í ómerktri ritstjórnargrein í DV er fjallað af yfirlæti, jafnvel hroka, um grein sem ég skrifaði í Morgun- Lesendur blaðið 14. janúar um ævisögumál- ið. Sagt var að ummæli mín í grein- inni væru prýðileg skýring á því hvers vegna ég stundaði fjármála- ráðgjöf en ekki ævisöguritun eða skáldskap. Vísað var til ummæla minna þar sem ég hafði sagt að rík- ari kröfur hlytu að vera gerðar til frumleika í sköpun í skáldsagnarit- un heldur en ævisöguritun og þess vegna hlyti Halldór Laxness að hafa gengið lengra en Hannes Hólmsteinn Gissurarson þegar hann notaðist við texta annarra. Þessi ummæli DV eru órök- studd. Hvernig getur maður þá svarað? Ummæli mín voru augljós- lega rétt. Ummæli DV byggjast á furðulegri hugmynd um þeir sem leggi stund á fjármál geti ekki haft skilning á bókmenntum. - Hvílík ósvífni hjá fjármálaráðgjafa að fjalla um slfkt! Við listamenn höf- Gunnlaugur Jónsson um einkarétt á því að fjalla um bókmenntir! Rök gilda ekki í bók- menntum, heldur órökstuddar fullyrðingar! - Ef fjármálaráðgjafar eru svona vitlausir þegar kemur að bókmenntum er það líklega mikil niðurlæging fyrir listafrömuði, eins og nafnlausir pistlahöfundar á DV þykjast vera, að vera röklausir gegn þeim á því sviði. Annars sagði DV líka að ég væri á hálum ís þegar ég sagði að gagn- rýnendur Hannesar hefðu blekkt þjóðina með því að geta ekki fyrir- vara hans, því Gauti Kristmanns- son hefði minnst á hann. Gott og vel. Ég ætla ekki í hártoganir um hvort ég átti við alla gagnrýnendur hans eða bara suma. Nákvæmara hefði verið að segja að sumir gagn- rýnendur Hannesar hefðu blekkt þjóðina með þessum hætti. Gunnlaugur Jónsson Athugasemd ritstjómar. DV sver eindregið af sér alla for- dóma í garð fjármálaráðgjafa. Þótt dálkahöfundi Fyrst og fremst hafi þótt tiltekin orð Gunnlaugs ekki lýsa sem bestum skilningi á starfi ævisöguhöfunda (“Ævisagnaritun gengur beinlínis út á endursagnir") var ekki vottur af fjandskap í garð fjármálaráðgjafa í þeirri klausu, né þeirra sem sýsla með peninga yfir- leitt. Vera má að Gunnlaugur sé vanur þeim fordómum í garð slíkra manna að þeir geti engan veginn haft vit á menningarlegum efnum og hafi því lesið slíka fordóma út úr greininni, en í reynd var þá hvergi að finna í klausunni. Varðandi staðhæfingu Gunn- laugs í upphaflegri grein hans í Morgunblaðinu um að ævisagna- ritun „gangi út á endursagnir" mætti hafa um það langt mál, en verður ekki gert hér - nema hvað fullyrt skal að fæstir ævisagnahöf- undar myndu fallast á hana. DV tekur við lesendabréfum og ábendingum á tölvupóstfanginu lesendur@dv.is. DV áskilur sér rétt til að stytta allt það efni sem berst til blaðsins og birta það í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Forsætisráðherra, Davíð Oddsson,er 56 ára í dag, I7.janúar. Við kynnum nýjar gerðir og bjóðum Baðimrétdngará 120 cm innrétting 90 cm innrétting 160 cm innrétting 5 skápar, höldur, Ijósakappi með 3 3 skápar, höldur, Ijósakappi með 4 skápar, höldur, Ijósakappi með 3 halogenljósum, borðpiata og spegill 3 halogenljósum, vaskborðplata halogenljósum, borðplata og spegill og spegill - Botnverð ur.58.70Q Botnverö ur 67.600 Botnverð ur 78.300 nettoline 01 Ap t. Einnig eldhúslnnréttlngar, tnronahúsinnréttingar xg«r| ogfataskáparáfrá&æruverði.20%afötáttkirnú»a^ | | ||^VI ÞAD B0RGAR SIG AÐ VERSLA í FRÍF0RM “3 20 K0?ilV0eur Sm 562 1500 442060

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.