Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004
Fókus DV
Karlmenn virðast hafa einstakt lag á að klæða sig eins og hálfvitar; alltof margir í það minnsta. Örfáir
standa upp úr og komast sómasamlega frá sínu. En sitt sýnist hverjum, eins og kom í ljós þegar DV leit-
aði til nokkurra þekktra kvenna sem vita hvað þær syngja þegar kemur að þessum málum. Sumir karl-
menn lentu reyndar í báðum flokkum, sem best og verst klæddu, en á endanum varð niðurstaðan ótví-
ræð. Tíu karlar sköruðu fram úr í hvorum flokki og eiga að mati álitsgjafanna skilið að teljast annað
hvort með best eða verst klæddu körlum landsins.
/O
Áar/as^
/
2
Þorgrímur Þráinsson
Hann er að nálgast flmmtugt en lítur út fyrir að vera tvítug-
ur. Hann er alltaf smart og snyrtilegur til fara,“ sagði sú fyrsta.
„Svo er hann svo unglegur, kannski af því hann reykir ekki,"
sagði önnur. „Já, mér finnst hann bera aldurinn vel í klæða-
burði." Þorgrímur er þekktur fyrir að hugsa vel um útlitið og
vera alltaf hreinlegur. Hann er vel að því kominn að teljast
einn af þeim tíu sem best eru klæddir.
3
4
Frosti Logason
„Mér finnst hann flottur rokkari og svo er hann
Levi’s gæi,“ var látið fiakka um Frosta. „Svo er hann
lfka geðveikislega flottur í leðurbuxunum sfnum,
sagði önnur. „Menn íleðurbuxum eru sexí.“ „Hann
er líka svo sætur við stelpur að það skemmir ekki
fyrir honum." „Hann er skemmtilega rokkuð týpa
sem kann að klæða sig töff.“ „Það góða við hann er
að hann lætur þetta rokklúkk vera,“ sagði ein sem
var mjög ánægð með Frosta og var alveg sammála
því að hann væri líka helvíti myndarlegur.
s
I
ó'
Þórhallur Gunnarsson
Klassíski maðurinn að þessu sinni er Þórhallur.
',Mér finnst hann klassískur og alltaf svo smart og
snyrtilegur," sagði sú fyrsta.
„Hann kann að klæða sig og gerir það vel," sagði
önnur. „Já, samt er henn frekar venjulega klæddur
en lítur alltaf vel út. Hann má eiga það,“ sagði ein af
álitsgjöfunum okkar. Klassískur var orð sem kom
reglulega upp þegar Þórhallur var nefndur á nafn
og á svo sannarlega heima í þessari upptalningu.
7
Sölvi Snær Magnússon
„Mér finnst hann rosa töffari og Idikkar
aldrei í klæðaburðinum og svo þorir hann að
vera hann sjálfur." Sölvi er einn eigenda tísku-
verslunarinnar Retro og hefur í gegnum tíðina
verið álitinn smekkmaður. „Ég meina, menn
sem vinna í fataverslun. Er annað hægt en að
vera smart?” spurði ein sem var alveg sammála
því að Sölvi ætti heima á þessum lista. „Einmitt
skemmtilegt þegar menn klæða sig kasjúal eins
og hann gerir," sagði önnur. Sölvi lifir og hrær-
ist í tfskunni þannig að hann er alltaf smart og
veit hvað er í gangi í tískuheiminum.
Björgólfur Thor Björgólfsson
„Hann á það alveg til að vera gæi í kúreka-
skóm og snákaskóm, svona James Bond týpa,“
voru yfirlýsingar sem látnar voru falla um
Björgólf. „Hann er smekklega klæddur og
hann á líka nóg af peningum til að kaupa sér
flott fót," sagði önnur.
„Svo finnst mér hann virðulega klæddur
fyrir viðskiptalífið og er greinilega í mjög
vönduðum fatnaði." Þær voru allar sammála
um að hann ætti vel heima á þessum lista og var einróma samþykkt að
hann væri flottur. „Það væri gaman ef hann sýndi meira af dýrinu í sér,"
lét ein flakka.
Árni Páll Hansson
Týpan sem er ckki alltaf í blöðunum og
það eru oftast flottustu týpurnar. „Hann er
ekki þræll tískunnar en alltaf flottur með
sinn stíl. Á fullt af flottum leðurjökkum og
flotta strigaskó og gallabuxur. Hann vill
greinilega ekki vera of áberandi og kaupir
sér þess vegna ekki mikið af tískufötum,"
sagði ein þegar hann var nefndur á nafn.
„Mér finnst hann líka smart og hann er
þeirri stöðu að þurfa að eiga mikið af hlýjum '
útivistarfötum og þá er ekkert verra að þau séu ílott," sagði sú næsta.
„Já, skemmtileg týpa sem blandar tískunni vel saman."
Eiður Smári Guðjohnsen
„Hann er töff en klæðir sig kannski ekki eftir
sinni eigin sannfæringu, gæti ég trúað," sagði
ein um helsta fótboltakappa okkar íslendinga.
„Hann er svona tilbúinn sætur og getur Idætt sig
eins og hann vill enda á hann nóg af peningum.
Gæti jafnvel farið inn í Dolce&Gabbana og látið
dressa sig upp frá toppi til táar." „Hann er töff
týpa sem kann að klæða sig á snyrtilegan hátt og
heldur kúlinu," sagði ein. „Já, hann er mjög
snyrtilegur," sagði önnur. Eiður er vel að þessu
vali kominn enda mjög huggulegur ungur mað-
Magnús Scheving
„Hann klæðir sig í fiott föt. Það er bara stað-
reynd." „Nákvæmlega," samsinnti önnur.
„Mæðir sig eftir veðri og tilefni og er alltaf flott-
ur, sama hvar hann er. Hann þorir að skipta um
stíl og það er nokk sama í liverju hann er. Það fer
honum allt vel og hann nær því meira að segja
að vera sexí í íþróttaálfsbúningnum sínum.
Stelpurnar eru mjög ánægðar með Latabæjar-
manninn okkar fslendinga og er hann alltaf
smart til fara. „Hann er töff týpa sem á auðvelt
með að skarta hinum ýmsa ldæðnaði."
Jón Kaldal
„Hann er alltaf mjög flottur. Hann er svona
kasjúal týpa sem kann að velja sér klæðnað eftir
því sem við á,“ sagði sú fyrsta um Jón þegar hann
var nefndur á nafn. „Já, mjög töff strákur," sagði
önnur. Gallabuxur, jakki og trefill virðist sem sagt
virka fínt hjá þessum álitsgjöfum okkar. Sem
finnst hann í flottum hversdagsfötum þótt það
séu ekki endilega neih þekkt merki. „Merkin
skipta engu þegar kemur að fatavali ef maður'
veit hvað maður er að gera," hélt ein stelpnanna áfram. Jón er talinn ganga
mjög huggulega til fara og kemur því sterkur inn í þetta skipti.
Þessir voru líka nefndir:
Jóhannes Ásbjörnsson, Idol-kynnir, Bjarni
Benediktsson alþingismaður, Svavar Örn
tískulögga, Gísli Örn Garðarsson (hinn ís-
lenski Beckliam, með listakeim), Björgólfur
Takefusa knattspyrnumaður og Kormákur
Geirharðsson veitingamaður.
Friðrik Weisshappel
Sjónvarpsmaðurinn og smiðurinn Friðrik vill
oftar en ekki enda á sambærilegum lista. „Hann
er eins og hann er og klæðir sig alltaf smart,"
sagði einn álitsgjafanna. „Já, hann er maður sem
kann að klæða sig," samsinnti sú næsta. „Mér
finnst hann flott klæddur en samt ömurleg
týpa," sagði önnur. „Mér finnst hann klæða sig
skemmtilega og hann veit hvað hann vill. Og svo
er hann alveg óhræddur við að sýna sig í því sem
honum finnst flott." Það er greinilegt að stelp-
urnar hafa sína skoðun á Frilcka en smekklegur
er hann, drengurinn.