Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Blaðsíða 23
DV Fókus . \ \ HUÖKOftKr> ' LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 23 /O oe/ss/ /{/œí/i/u Aai*iaf^ la/UMÍnsy / 2 Ögmundur Jónasson Alþingismaðurinn fellur ekkert sérstaklega í kramið hjá stelpunum hvað klæðaburð varðar. „Hann er hræðilegur og hann ætti að slaka að- eins á með að kaupa öll sín föt hjá Guðsteini," sagði ein. „Mætti kannski skerpa litina aðeins. Hann er svo oft í einhverjum jarðlitum og vín- rauðu. Hann ætti kannski bara að fara í dekkri liti. Þá frekar í dökkbrúnt og blátt að mínu mati,“ vildi ein segja um Ögmund. „Maður má alveg vera í bláum fötum þótt maður sé vinstri- sinnaður, er það ekki stelpur?" spurði hún. 4 JóhannesJónsson „Hann er bara eins og nýstaðinn upp úr rúminu þegar maður sér hann,“ sagði ein. „Hann er skemmti- lega öðruvísi," sagði önnur. „Hann mætti alveg gyrða sig en maður fær það á tilfinninguna að hann eigi það eftir,“ sagði sú þriðja sem hafði skoðanir á Jóhannesi. „Ég hugsa að hann sé maður sem þarf að stússast mik- ið og virðist því alltaf vera f vinnugallanum." Þær virð- ast vera nokkuð sammála um að Jóhannes eigi vel heima á þessum lista og þarfnist nokkurrar lagfæring- 6' Hrafn Gunnlaugsson „Mér flnnst hann bara hræðilegur og vil ekk- ert segja meira um það,“ sagði einn álitsgjaf- anna okkar. „Já, það er alveg spurning um að hneppa einni tölu, sem gæti gert gæfumuninn. Þó kannski aldrei lagað slysið sem liann er,“ sagði sú næsta. „Hann er alltaf svo sjoppulegur, greyið maðurinn," samsinnti þriðji álitsgjafinn þeim kynsystrum sínum. Hrafn virðist ekki vera með fataskápinn sinn alveg á hreinu og ætti kannski að taka aðeins til í honum. Steingrímur J. Sigfússon Hann fékk viðurnefnið krútt en samt talinn I hræðilega til fara. „Hann er svona þessi týpíski j bóndi sem maður finnur lengst úti f sveit,": sagði ein sem er ekki par hrifln af fatastefnu Steingríms. „Já, hann mætti alveg losa sig við eítthvað af þessum grænu skyrtum sínum,“ hélt önnur áfram. „Svo á hann aðeins of mikið af ull-1 arjökkum og mætti alveg losa sig við nokkra og færa sig í önnur efni að nn'nu mati,“ sagði sú þriðja sem eitthvert álit hafði á stjórnmálamanninu. Þó að tweed endist vel er það ekki málið f dag. S 7 s Skjöldur Mio Eyfjörð „Ef hann dytti á þessum buffalo bomsum myndi hann hálsbrotna. Sem er kannski ekki það versta þar sem fötin eru ömurleg," sagði einn álitsgjafinn sem er ekki ánægður með fataskáp Skjaldar þótt stór og vígalegur sé. „Hann er soldið sorglegur en fær plús fyrir að þora,“ sagði sú næsta sem var þó alveg á sama máli. Skjöldur er þannig maður að hann á auðvelt með að vera öðruvísi en fólk er flest og þorir að vera hann sjálfur. Af hverju það fellur ekki í kramið hjá stelpunum veit enginn en eins og áður sagði fær hann plús í kladdann fyrir£ að þora og koma með sniðugar hugmyndir. Jón Jósep Snæbjörnsson Upphandleggsvöðvar söngvarans fara eitt- hvað fyrir brjóstið á álitsgjöfunum okkar. „Ég er orðin voða þreytt á að sjá hann með bera upp- handleggsvöðvana hvar sem hann kemur," sagði ein stelpan. „Mér flnnst að þótt hann sé að leika í Grease og sé £ hlýrabolum þar, þá megi hann alveg láta þá vera í þessum mynd- böndum. Venjulegur bolur væri kannski góð til- breyting fyrir þennan annars frábæra söngv- ara,“ sagði önnur. Jónsi er vinsæll söngvari og í einni af fremstu liljómsveitum landsins en svo virðist sem hann eigi í erf- iðleikum með fötin sín ef marka má það að hann er á þessum lista. Fjölnir Bragason Fjölnir er betur þekktur sem Fjölnir tattoo. „Hvað er með þennan hlýrabol?" spurði ein. „Ná- kvæmlega! Það að ganga upp Laugaveginn í sama svarta Filýrabolnum í 20 stiga frosti er algjört törnoff," sagði önnur. „Já, ég er sammála, mér finnst hann hrikalega hallærislegur í þessum hlýrabolum sínum. Þeir eru bara alveg off.“ stúlk- urnar hafa greinilega ákveðnar skoðanir á hlýra- bolum. „Hann ætti bara að setja á sig fleiri tattoo og sleppa því að vera í fötum. Kannski bara í leð- urbuxunum og tattúerðar að ofan, það væri ábyggilega flott," sagði annar álitsgjafi og hló. Hilmir Snær Guðnason „Hann hefur greinilega engan smekk," sagði einn álitsgjafanna þegar nafn leikarans barst í tal. „Bleikar prjónapeysur eru ekki málið, sama hvað hann heldur," hélt hún áfram. „Svona sætur strákur mætti nú alveg klæða sig smekklegar," sagði önnur sem var alveg sammála þeirri fyrstu sem tjáði sig um Hilmi. „En leikarar eiga það til að vera svolítið druslulegir og sjúskaðir,“sagði ein sem hélt jafnvel að ástæðan fyrir því gæti verið sú að leikarar hefðu ekki há laun. Björgólfur Guðmundsson „Hann klæðir sig eins og hann vilji að allir viti að hann eigi peninga," var skoðun eins álitsgjáfans okkar. „Mér finnst eins og margir fullorðnir menn sem vinna mikið með peninga eigi mörg eins jakkaföt," sagði önnur stelpn- anna. „Hann mætti vera með fjölbreyttari stfl, hann á það til að vera alltaf eins.“ Með þeim orðum að hann sé alltaf eins kom eitt gott ráð frá einni: „Hann má alveg gefa þetta gula bindi til Rauða krossins." Eins og Björgólfur er nú klár maður virðist hann að þeirra mati ekki vera með tískuna á hreinu, enda kannski engin ástæða til. Alitsgjafar okkar Hannes Hólmsteinn Gissurarson „Hvað er með þennan svarta bol sem hann er alltaf í?“ sagði ein sem er ekki hrifin af stfln- um hans „Hannesar". „Oj, hann mætti alveg kíkja á skyrtur og eitthvað til að breyta aðeins til. Hann er alltaf eins," sagði sú næsta sem var alveg sammála þeirri fyrstu. Eitthvað fellur hann ekki í kramið hjá dömunum að þessu sinni. En ef hann keypti sér skyrtur eða eitthvað nýtt til að klæðast er aldrei að vita nema vin- sældir hans ykjust. Þessir voru líka nefndir Þessir voru líka nefndir: Össur Skarphéð- insson (þótt hann sé hættur að nota slauf- una), Krummi í Mínus (leðurbuxur og kúrekastígvél ganga ekki upp árið 2004), Jói Fel (mætti róa sig á þröngu bolunum), Sig- mundur Ernir Rúnarsson, Sigurjón Kjart- ansson, Auðunn Blöndal á Popptíví og Fjal- ar Sigurðarson í íslandi í bítið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.