Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Page 6
6 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004
Fréttir DV
Innherjum
bannað að
kaupaí
Eimskip
Stjórn Eimskipafélags-
ins ákvað í gær að banna
öll innherjaviðskipti með
bréf félagsins fram að árs-
txppgjöri sem verður kynnt
eftir tæp-
ar 6 vik-
ur. Þá var
ákveðið
að hefja
vinnu við
að skil-
greina
ramma
og reglur sem gilda eigi í
fyrirtækinu. Hingað til hafa
ekki verið til sérstakar regl-
ur um innherjaviðskipti til
Eimskips.
í gær versluðu margir
innherjar með bréf félags-
ins rétt áður en tilkynnt var
um kaup félagsins á norska
skipafélaginu CTG. Enn-
fremur gagnrýndu grein-
ingardeildir bankanna að
innherjar skiptu svo mikið
með bréfm í félaginu þegar
ekki voru öll kurl komin til
grafar í sölunni á Brimi.
Ríkisstjórnin
mun fjalla um
niðurskurð á
Landspítala
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
varaformaðurASl
Við bíðum bara og vonum að
það verði jákvæð viðbrögð. Nú
hefur öll launþegahreyfingin I
landinu skorað á stjórnvöld að
endurskoða fjárveitingar til
spítalans. Mér finnst þegar öll
launþegahreyfingin í landinu
sameinast um að leggja
áherslu á eitthvað ætti ríkis-
stjórnin að hlusta. Það er eðli-
legt.
Hann segir / Hún segir
Ég held að þegar menn skoða
þessi mál afyfirvegun verði
niðurstaðan sú að það verði
að endurskoða þessar ákvarð-
anir. Menn velta fyrir sér hvers
vegna fyrst var tekin ákvörðun
um að skera niður fjárveiting-
ar til spítalans án þess að
menn hefðu útfært tillögur um
hvernig það yrði gert. Eru
þetta skynsamieg vinnu-
brögð? En við ætlum ekki að
hafa uppi nein stóryrði. Við
erum að beina þeim ein-
dregnu tilmælum til ríkistjórn-
arinnar að endurskoða málið.
Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB
Eimskip heldur í dag upp á 90 ára afmæli og 3ggja milljarða gróða af sölunni á
Brimi i bútum. Félagið ætlar að selja fleiri eignir og húsið í Pósthússtræti er til
sölu. Því sem eftir er verður skipt upp í tvö fyrirtæki sem fara á markað. Sagn-
fræðingur segir að kúnst stjórnenda Eimskips sé að nýta arfleifðina en losa sig
undan óraunhæfum kröfum sem gerðar séu til félagsins.
Eimskip er 90 ára í dag. Óskabarn þjóðarinnar
blæs til veislu nýbúið að græða 2,8 milljarða á því
að selja sjávarútvegsfýrirtækin sín. Næsta skref er
að fara yfir aðrar eignir og skipta því sem eftir er í
tvö fyrirtæki, annað sem sér um skipareksturinn
og hitt sem verður fjárfestingafyrirtæki. Eimskip á
að leita rótanna og sigla um heimsins höf, en
Burðarás hleypir heimdraganum sem fullburða
fjárfestingafyrirtæki enda komið hátt á tvítugsald-
ur.
Síðasta árið hefur verið eitthvert mesta um-
breytingaár í sögu afmælisbarnins. Kolkrabbinn
var keyptur út í sumar og eftir það hófust nýir eig-
endur handa við að skipta því upp og ná hagnaði
út úr eignunum. Þeir sem fremstir fara þar í flokki
ráku áður annað skipafélag. Það hét Hafskip.
Brim brotið í mola
í gær tilkynnti Eimskip söluna á Skagstrend-
ingi, síðustu stoðinni í sjávarútvegsarminum,
Brimi til Fiskiðjunnar Skagfirðings á Sauðárkróki.
Söluverðið var 2,7 milljarðar og hagnaðurinn 300
milljónir. Þar með fékk Eimskip 19,5 milljarða fyr-
ir Brim sem er meira en sérfræðingar á markaði
bjuggust við að hægt væri að fá. „Við teljum að við
höfum náð mjög góðum ár-
angri fyrir hluthafa Eim- .
skipafélagsins,“ segir
Magnús Gunnarsson
stjórnarformaður félags-
Eimskipafélagshúsið við Póst-
hússtræti 2 er til sölu og fram
hafa komið hugmyndir um að
breyta þvi í hótel.
höfum lika búið til þrjú öflug sjávarútvegsfyrir-
tæki sem hvert um sig á eftir að hafa mikil umsvif
í sínu héraði. Ég er glaður að þetta hafi tekist
svona," segir hann. Magnúsi þykir miður að það
hafi ekki ríkt full sátt um þessi viðskipti á Akur-
eyri.
Tillaga um að stofna tvö fyrirtæki sem munu
hafa mikil vaxtartækifæri í flutninga- og fjármála-
starfsemi verður lögð fyrir aðalfund 19. mars með
tilheyrandi útboðslýsingum, segir Magnús. Þau
verða bæði skráð á markað þannig að þá kemur
betur í ljós hverjir muni eignast hvort fyrirtæki
um sig.
Hús og eignir til sölu
Næstu verkefni félagsins eru að skoða hvað
gera skuli við 27% hlut í SH en Magnús segir ekk-
ert í sjálfu sér vera áformað um að selja fyrirtæki
eins og Marel, Skyggni og Tölvumyndir. Hins veg-
ar eru eigendur félagsins að reyna að selja hluta af
eignum þess, til dæmis í félaginu um 101 Skugga-
hverfi sem er að byggja hverfi milli Skúlagötu og
ms.
Eimskipafélagshúsið við Pósthússtræti 2 er til
sölu og fram hafa komið hugmyndir um að breyta
því í hótel. Hugmyndir um að Landsbankinn
kaupi húsið og byggi brú á milli þess og Aðalbank-
ans hafa einnig verið nefndar.
Nýtir söguna en losar sig undan henni
Guðmundur Magnússon sem ritaði sögu Eim-
skipafélagsins segir að fyrirtækið hafi í gegnum
tíðina haft sérstakan sess í þjóðlífi fslendinga.
„Stofnun þess á sínum tíma var merkt skref í okk-
ar atvinnulífi en það sem var á bakvið þetta var
enn stærra, því það var eins og allur almenningur
liti þannig á að þetta væri stórt skref í sjálfstæðis-
baráttu íslensku þjóðarinnar," segir hann.
„Félagið hefur síðan búið að þessu upphafi
sínu og í því felst bæði styrkur þess og veildeiki.
Styrkurinn felst í þessari samstöðu við að eiga við-
skipti við félagið og styðja það þegar á móti blæs
en veikleikinn fólst í því að menn gerðu aðrar og
meiri kröfur til þess en annarra fyrirtækja.“ Guð-
mundur segir að þetta hafi getað gengið þegar
þjóðfélagið var öðruvísi en þegar félagið fékk
samkeppni fékk það það orð á sig að vera svifa-
seint og dragbítur á samkeppni.
Eimskip heeinni tíð verið að reyna að vinna sig
út úr þeim óeðlilegu kröfum sem gerðar voru upp-
hafi. „Ég held að félagið sé jafnvel enn í
'*-*f dag að glíma við þennan draug,“ segir
Guðmundur en bætir við að í sögunni
felist tækifæri eins og sjáist af því að
■- haldið sé upp á 90 ára afmælið með
pomp og pragt í dag.
kgb@dv.is
Olíufélögin Esso og Olís drógu hækkanir sinar á bensíni til baka seint í gær.
Forstjóri Esso segir ísland með eitt lægsta bensinverð i Evrópu
Esso og Olís skömmustuleg
Síðdegis í gær ákvað Esso að
draga til baka þær hækkanir á
bensíni sem gerðar voru á þriðju-
dagskvöldið eftir að bensínbirgðir
Atlantsolíu þrutu. Verð á 95 oktana
bensínlítra í sjálfsafgreiðslu hjá
Esso verður því aftur 93.70 kr.
Skömmu síðar lækkaði Olís einnig
sín verð.
Ástæða lækkunarinnar er sögð
sú að félagið lofaði viðskiptavinum
sínum samkeppnishæfu verði á
hverju svæði fyrir sig. Því eiga allir
viðskiptavinir að treysta og því er
verðið lækkað aftur. Ekki bólar
lengur á þeim rökum að mikill
kuldi í Bandaríkjunum eigi sök á
háu bensínverði. „Það er í raun
ekki svigrúm til neinna verðlækk-
ana en við göngum á undan af því
að við viljum að okkar viðskipta-
vinir njóti samkeppnishæfs verðs,"
segir Auður Björk Guðmundsdótt-
ir, talsmaður Esso.
í viðtali í gærmorgun gagnrýndi
Helga Friðriksdóttir, fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs þjón-
ustusviðs Olís, þann fréttaflutning
sem viðgengist hefur í ijölmiðlum
síðan Atlantsolía tók til starfa.
„Það er komið nóg af þessari
einsleitu fréttamennsku. Okkar
viðskiptavinir ganga að því vísu að
fá bensín hjá okkur. Þeir geta verið
vissir um að það er til og þeir geta
fengið þá þjónustu sem þeir óska.
Það hafa þeir fengið í tugi ára síðan
Olís tók til starfa en fjölmiðlar
hlaupa upp til handa og fóta um
leið og nýtt félag sem býður vöru í
nokkra daga opnar sína fyrstu
bensínstöð."
Helga vísar meðal annars til
gengis Olís á íslensku ánægjuvog-
inni en þar er mæld ánægja við-
skiptavina með þjónustu ýmissa
fyrirtækja. Olís lenti þar í fyrsta
sæti í flokki smásölufyrirtækja rétt
á undan Skeljungi en hafa ber í
huga að könnunin er ársgömul.
Engar verðbreytingar höfðu
orðið hjá Skeljungi þegar DV fór í
prentun.
atben@dv.is
Framtíðin í bensínverði? Bilað
bensinskiiti Skeljungs við Birkimel
gefur til kynna að lítri af95 okt-
ana bensini kosti 296 krónur.