Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 Fréttir DV Segist saklaus „Ég er saklaus," sagði Michael Jackson íyrir rétti í Santa Barbara í gær. Jackson er sem kunnugt er ákærður fyrir að hafa beitt tólf ára pilt kynferðislegu ofbeldi og jafnframt fyrir að hafa gefið honum áfengi. Spurður um efni ákærunn- ar svaraði Jackson með því að lýsa yfir sakleysi sínu. Málið var þingfest í sakadómi í gær. Gríðarleg öryggisgæsla var við dóms- húsið þar sem hundruð áhangenda söngvarans biðu hans. Um sex hundr- uð blaðamenn og ljós- myndarar voru einnig á staðnum en myndatökur voru ekki leyfðar í réttar- salnum. Aðeins 60 blaða- menn fengu að hlýða á vitnisburðinn í dómssal. Jackson kom til réttarins íklæddur svörtum jakkaföt- um og með svarta regnhlíf til að hlífa sér. Hann veifaði og brosti til aðdáenda sinna á leið inn í dómshús- ið. Þangaði kom söngvar- inn hins vegar of seint og var skammaður af dómar- anum. Borgari án brauðsins Hamborgarakeðjan Burger King hefur bryddað upp á þeirri nýbreytni að selja hamborgara án brauðs. Vin- sælasti borgar- inn, Whopper, verður fáanlegur brauðlaus í lítilli salatskál ásamt hnífapörum. Þetta kvað gert til að koma til móts við óskir fjölda fólks sem hefur skorið niður kolvetnaneysl- una. Þá verður hægt að fá salat í stað frönsku kartaflnanna og að sjálf- sögðu vatn í stað gos- drykkja. Holli „Whopper- inn“ verður á sama verði og sá hefðbundni. Magnús Ólafsson Fyrrum eig- andi Prisma Prentco. „Ég hefþað ekki mjög gott. Fyrirtækið fór á hausinn og það hefur verið erfitt mál sem sér vart fyrir endann á, “ segir Magnús Ólafsson prentari. „Þetta bitnar einna mest á mér, þar sem ég er ábyrgur fyr- Hvernig hefur þú það? ir öllu saman, en svo er þetta líka erfitt fyrir starfsfólkið sem var hérna. Það er alltaferfitt að sjá á eftir góðu fólki. Nú reyni ég að gera gott úr þessu og halda geðheilsunni í lagi og þakka bara guði fyrir Suð- urbæjarlaugina í Hafnarfirði sem er minn uppáhaidsstaður fyrir utan heimiiið. Það er gott að fara í sund til að ná áttum." Þjóðminjasafnið skipti að óþörfu um þak fyrir 30 milljónir króna á geymslu sinni í Kópavogi. Safnið hafði uppfyllt skilyrði Eldvarnaeftirlits en hlýddi dýrkeyptum fyr- irmælum Brunamálastofnunar. Umhverfisráðuneytið segir Brunamálastofnun hafa farið út fyrir valdsvið sitt. „Ríkið væri þá að stefna ríkinu svo málið hefur verið látið liggja. Geymsla Þjóðminjasafns Skipt var um þak á geymslu sem Þjóðminjasafnið hefur í Vesturvör í Kópavogi, þrátt fyrir að Eldvarnaeftirlitið hafi sagt brunamálin viðunandi. Farið var að kröf- um Brunamáiastofnúnar sem þó reyndist ekkert hafa með málið að gera. málastofnunar. Skýrt mun vera að Brunamála- stofnun ríkisins skuli ekki blanda sér á ákvarðan- ir eldvarnaeftirlits á vegum sveitarfélaganna nema ósk um það berist frá sveitarfélögunum sjálfum, eldvarnaeftirliti eða eiganda viðkom- andi húss. Urðu að hlýða Óskar Valdimarsson, forstjóri Framkvæmda- sýslunnar, segir málið í Vesturvör hafa snúist um deilur milli Eldvarnareftirlits og Brunamálastofn- unar. Framkvæmdasýslan hafl ekki getað tekið á sig þá ábyrgð sem hefði verið fólgin í því að upp- fylla ekki fyrirmæli Brunamálastofnun. Forstjórinn segist ekki geta dæmt um hvort það hafi í raun verið óþarfi, með tilliti til eld- varna, að uppfylla sérkröfur Brunamálastofnun- ar. „Það hefði þá verið spurning um að leita ein- hverra bóta en það hefur ekki verið gert. Ríkið væri þá að stefna ríkinu svo málið hefur verið lát- ið liggja," segir Óskar. gar@dv.is Framkvæmdasýsla ríkisins hefði ekki þurft að hlýða fyrirmælum Brunamálastofnunar og eyða um 30 milljónum króna í að skipta um þak á geymslu Þjóðminjasafnsins í Kópavogi. Þjóðminjasafnið flutti geymslur sínar árið f998 íVesturvör í Kópavogi eft- ir að safninu var sagt upp húsnæði í Holtagörðum. Einnig þurfti aukið pláss þar sem rýma þurfti safn- ið sjálft vegna fyrirhug- aðra breytinga. Brunamálastofnun breytir myndinni „í lok desember 1999 tók Brunamálastofnun fram íyrir hendur á Eld- varnaeftirliti og jók þær kröfur sem gerðar höfðu verið fram til þess tíma. Var af hálfu Brunamála- stofnunar farið fram á að Bergsteinn Gizurarson Bergsteinn stýrði Bruna- máistofnun þegar hún setti fram kröfursínar vegna geymslu Þjóð- minjasafnsins i Vesturvör. skipt yrði um þak,“ segir í svokallaðri skilamats- skýrslu sem Framkvæmdasýslan gerði um flutn- ingana og undirrituð er af Öskari Valdimarssyni, forstjóra stofnunarinnar. Að sögn Framkvæmdasýslunnar fólust kröfur Brunamálastofnunar, umfram kröfur Eldvarna- eftirlits, í því að eldhólf yrðu aðgreind og að skipt yrði um einangrun í þaki. Það hafl orðið til þess að skipt var um þak. Einnig hafi úðakerfi verið sett upp að minnsta kosti hálfu ári fyrr en ætlunin hafði verið. Var Brunamálastofnun óviðkomandi „Umhverfisráðuneytið komst síðar að þeirri niðurstöðu að Brunamálastofnun hefði ekki verið heimilt að taka fram fyrir hendurnar á Eldvarna- eftirliti með þeim hætti sem hún gerði. Auka- reikningur vegna þessara krafna nam hins vegar um 30 milljónum króna," sagði í skilamati Fram- kvæmdasýslunnar. Niðurstaða umhverfisráðuneytisins mun Vera byggð á lögfræðiáliti sem unnið var fyrir ráðu- neytið um valdmörk Eldvarnareftirlits og Bruna- Ferð utanríkisráðherra til írans var árangursrík, að mati aðila viðskiptalífsins Nokkrir samningar í vinnslu eftir íransför „Það er engum blöðum um það að fletta að utanríkisráðherra hafði áhrif á hverja við hittum í þessari heimsókn," segir Jón Guðmunds- son, fjármálastjóri Borgarplasts. Það fyrirtæki, ásamt tug annarra, átti fulltrúa í föruneyti Halldórs Ás- grímssonar utanríkisráðherra í för hans til írans í nóvember síðastliðn- um. „Satt best að segja átti ég ekki von á miklu þegar ég fór þessa för. En ég kom til baka með mikilvæg sam- bönd og það eru góðar líkur á að við náum samningum innan tíðar varð- andi sölu á plastkörum og plast- brettum til írans.“ Lárus Elfasson, framkvæmda- stjóri orkufyrirtækisins Enex, tekur í sama streng. „Þarna er mikil mið- stýring og það skiptir máli hver er með hverjum. Tæknimenn frá okkur hafa áður farið til írans en sú för leiddi ekki til neinna samninga. Það var greinilegt að íranar komu fram við Halldór Ásgrímsson á sama hátt og væri hann ráðamaður stórþjóðar og fyrir vikið náðum við betri sam- böndum við ráðandi aðila í land- inu.“ Lárus sagði að í vinnslu væri samningur um ráðgjöf og aðstoð við jarðvarmaverkefni og möguleikar væru á frekara samstarfi í framtíð- inni. Linda Svanbergsdóttir hjá sölu- og markaðsdeild flugfélagsins Atl- anta sagði ekki tímabært að segja frá þeim viðræðum sem félagið ætti við íranska aðila en neitaði því að Atl- anta hefði nú þegar gert samning um leiguflug til írans eins og DV hef- ur heimildir fyrir. fransferðin Utanrikisráðherra og föruneyti hans iTeheran i nóvember siðastliðnum. - '; BflKdj (I j n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.