Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004
Fréttir DV
Heimsmet
í aftökum
Fjögur hundruð manns
hafa verið tekin af lífi í
Singapore sfðan árið 1991
og er það heimsmet ef mið-
að er við stærð þjóðarinnar.
Flestir eru dæmdir til dauða
vegna fíkniefnabrota. Am-
nesty International sendi
frá sér tilkynningu þessa
efnis í gær. Hvergi á byggðu
bóli er fíkniefnalöggjöfin
jafnhörð og í Singapore en
hver sá sem er tekinn með
meira en 15 grömm af
heróíni er dæmdur til heng-
ingar. Þetta hefur þó ekki
dregið úr fíkniefnabrotum,
til dæmis voru 16% fleiri
handteknir fyrir slík brot á
síðasta ári en árið á undan.
Ef miðað er við höfðatölu
eru aftökur í Singapore
þrefalt fleiri en í Sádi Arabíu
en það land skipar annað
sæti á listanum.
Svangir
mega stela
Yfirvöld í Venesúela
hyggjast breyta löggjöf
landsins þannig að þjófnað-
ur á mat og lyfjum verður
ekki refsiverður. Það er ef
viðkomandi stelur vegna
hungurs og sárrar neyðar. i
„Þetta er góð leið fyrir dóm-
ara til að kom-
ast hjá órétt-
læti. Þeir
dæma fátæk-
linga til fang-
elsisvistar
þegar það
eina sem þeir
þurfa eru lyf,“
segir Alej-
andro Fontiveros hæstarétt-
ardómari sem vinnur að
lagabreytingunni. Málið
sætir þegar nokkurri gagn-
rýni og segja menn að ef
lagabreytingin gengur í
gegn þá muni glæpum
fjölga. Glæpatíðni í Venesú-
ela er mikil, að jafnaði eru
framin 25 manndráp á degi
hverjum og innbrot og
þjófnaðir skipta þúsundum
í hverjum mánuði. fbúar
Venesúela eru 25 milljónir,
tveir þriðju teljast fátækir og
þriðjungur þess hóps á ekki
fyrir lífsnauðsynjum - þrátt
fýrir gríðarlegan olíugróða
landsins.
Tryggvi Harðarson,
bæjarstjóri á Seyðisfirði
„Það gengur vel hér fyrir aust-
an. Ný fiskvinnsla tók hér til
starfa um daginn og margir
hafa fengið atvinnu þar. Svo
kom Norræna í sína fyrstu
Landsíminn
landsins um daginn og hver
veit nema að það gefi okkur
sóknarfæri seinna meir. Koma
skipsins hingað bar svo brátt
að að enginn tími gafst til að
rhoða eitthvað ferðavænt
saman en það verður ábyggi-
lega gert fyrir næsta ár. Svo
skilst mér að gamla Norræna
eigi að sigla hingað á meðan
gert er við nýju ferjuna.
Áriö 2004 er síðasta árið sem Vesturlönd geta komið að gagni í baráttunni við
alnæmi í Afríku áður en faraldurinn verður algerlega stjórnlaus. Átta þúsund lát-
ast úr alnæmi á degi hverjum í Afríku
Alnæmi er mesia ger-
eyðingarvopn í heimi
Alnæmisfaraldurinn heldur áfram að steypa
milljónum manna í glötun í flestum ríkjum Afr-
íku en þar fjölgar sýkingum með ógnvænlegum
hætti dag frá degi. Kannanir Heilbrigðisstofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna benda til að allt að átta
þúsund einstaklingar látist úr sjúkdómnum á
hverjum degi í álfunni.
Engir peningar - engin lyf
Vegna skorts á lyfjum, læknum og samstöðu er
fátt eitt sem fbúar flestra ríkja Afríku geta annað en
talið hina dauðu. Faraldurinn er kominn á það stig
að meðallífslíkur íbúa í suðurhluta álfunnar hafa
minnkað um heil 20 ár og var ekki hár fyrir. Fjöldi
smitaðra í Suður-Afríku einni saman telur um 30%
af heildarhlutfallinu í heiminum öllum.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur bent
á að sívaxandi fjöldi þeirra barna sem misst hafa
báða foreldra vegna alnæmis, reynast næstu ætt-
ingjum það mikil byrði að þau eru látin stunda
vændi til að geta lagt sitt af mörkum. Ættingjar
þeirra eru einfaldlega oftast of illa settir sjálfir til
að geta útvegað mat og aðrar nauðsynjar fyrir
sínar eigin fjölskyldur til að eiga eitthvað aflögu.
Það aftur leiðir til þess að börnin smitast af sjúk-
dómnum og mörg látast innan við tíu ára aldur.
Mesa - ný dögun í baráttunni
Þrátt fyrir dökkt útlit eru nokkrir sem neita að
gefast upp og tala um nýja „mesa“; nýja dögun í
baráttu sem verður erfið hvernig sem farið er að.
Nokkur ríki hafa tekið af skarið og skorið upp her-
ör gegn fáfræði fólks um sjúkdóminn og ennfrem-
ur gefið hluta þeirra sýktu möguleika á að verða sér
úti um nauðsynleg lyf.
Sjö þúsund manns hafa nú aðgang að læknum
og lyfjum í Zambíu. í Malaví hafa stjórnvöld fengið
fjármagn til að veita 50 þúsundum aðstoð en þar
sem malaría og berklar hrjá marga landsmenn er
ekki vitað hversu mikið fer til þeirra sem þjást af
eyðni. í Namibíu er ástandið betra og hafa nú flest-
ir spítalar í héruðum landsins fengið birgðir af
Vegna skorts á lyfjum,
læknum og samstöðu er fátt
eittsem íbúar flestra ríkja
Afríku geta annað en talið
hina dauðu
samheitalyfjum til að halda alnæmi í skefjum. I
Suður-Afríku, þar sem ástandið er verst, hefur loks
ein sjúkrastöð í landinu fengið lyf sem dreifa skal
gjaldfrítt til þeirra er á þurfa að halda.
Alþjóðabankinn hefur ennfremur gefið grænt
ljós á lán til nokkurra landa en féð skal eingöngu
nota til baráttunnar gegn eyðni.
albert@dv.is
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur ekki sést opinberlega í mánuð.
Lét „flikka" aðeins upp á sig
Mánuður fyrir utan sviðsljósið er
langur tími fyrir mann á borð við Sil-
vio Berlusconi. Engu að síður hefur
ekki sést til forsætisráðherra Ítalíu
og fjölmiðlakóngsins síðan
nokkrum dögum fyrir jól. ítalir eiga
öðru að venjast enda ráðherrann
nánast daglegur gestur í íjölmiðlum.
„Hvar er Berlusconi?" spyrja
menn sem vonlegt er. Sögusagnir
um alvarleg veikindi forsætisráð-
herrans hafa farið á kreik og leiðara-
höfundur dagblaðs á Ítalíu krafðist
þess að stjórnvöld greindu frá því ef
rétt væri að Berlusconi ætti við veik-
indi að stríða. Þá hefur heyrst að
þyrlur hafi tíðum flogið að sveita-
setri ráðherrans á Sardiníu með lið
lækna innanborðs.
Svo gerðist það í gær að einn af
læknum Berlusconis kom fram í
sviðsljósið og sagði frá því að ráð-
herrann hefði farið í „litla" lýtaað-
gerð í París og látið laga svæðið í
kringum augun. Læknirinn, Urn-
berto Scapagnini, vildi ekki segja
meira og sagði aðgerðina vera
einkamál forsætisráðherra.
Scapagnini bætti þó við að ráðherr-
ann væri að jafna sig og væri tilbú-
inn að hefja störf á ný.
Talið er að Berlusconi hafi áður
gengist undir svipaðar aðgerðir; árið
2000 og árið 1996 en þá sagðist hann
hafa verið bitinn af könguló. Honum
mun alltaf hafa verið annt um útlit
sitt og þá hefur hann haft áhyggjur
af því að vera meðal lægstu þjóðar-
leiðtoga heims en hann er 170 cm á
hæð.
Þann tíma sem Berlusconi hefur
verið í „fríi“ hefur hins vegar hver
stóratburðurinn rekið annan.
ítalska stórfyrirtækið Parmalat varð
gjaldþrota, bréfasprengjur voru
sendar leiðtogum Evrópusam-
bandsins og fyrr í þessari viku ógilti
ítalski stjórnlagadómstóllin lög sem
veittu Berlusconi, og öðrum hátt-
settum embættismönnum, friðhelgi
frá lögsókn. Mál á hendur
Berlsusconi hefur verið höfðað fyrir
meinta spillingu en hann er sakaður
um að hafa mútað dómara vegna
máls er sneri að yfirtöku á einu fyr-
irtækja hans.
Silvio Berlusconi Hefur dvalið Isumarhúsi
slnu á Sardiníu frá þvi fyrir jólin.