Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004
Fréttir DV
Á síðustu árum hefur sprottið upp fólk sem á svo miklar eignir að nánast engin fordæmi
eru fyrir siíku hér á landi. Enginn kemstþó í hálfkvisti við ríkustu menn landsins á 15. öld.
Hverjir eru ríkastir og hverjir hafa fallið afstalli á síðustu árum? DV skoðar málið.
Fallinn
af stalli
Jón Ólafsson, fyrr-
um meirihlutaeig-
andi Norður-
ljósa, hefur
falliö af
stalli sem
milljóna-
mæringur.
Eignir hans
voru metnar
á 3,5 milljarða
árið 2001, íbók-
inni Ríkir íslendingar.
„Ég ofmat eignir
Jóns á sínum tíma en
það gerðu reyndar
fleiri og iíklega einnig
hann sjálfur," segir
Sigurður Már Jónsson,
höfundur bókarinnar.
„Hann er skýrt dæmi
um mann með bæði
mikil umsvif og mikla
skuldsetningu." Sig-
urður sagði að erfitt
væri að meta eignir
Jóns í dag en ljóst væri
að þær hefðu minnkað
verulega, auk þess sem
óvíst væri hvaða nið-
urstaða fengist í
skattamálum hans og
hvaða áhrif þau hefðu
á eignastöðu Jóns þeg-
ar upp væri staðið.
Björk Guömundsdóttir
Það er vandasamara að
reikna út virði þessa frægasta
Íslendings sögunnar en flestra
annarra. i bókinni Rikir íslend-
ingar er hún talin eiga um
5fimm miUjarða. Byggjast ut-
reikningarnir á plötusölu og
þeirri staðreynd aðhun
starfar ein og gefur efni sitt út
sjálf. Þar segir einnig að Björk
þyki slyng i viðskiptum. Siðan
bókin var gefin út árið 2001
hefur Björk eingöngu gefið út
safnplötur, en frægðarsól
hennar hefur risið enn hærra
og vaxandi sala fylgt' Hún er
nú talin eiga 6 milljarða
króna.
Ríkustu menn þjóðarinnar nú
eru svo ríkir að fá dæmi finnast um
slíkt í íslandssögunni. Á þremur
árum hefur þeim auðugustu tekist
að margfalda eignir sínar. Aðrir eru
einfaldlega horfnir af sjónarsvið-
inu í miklum sviptingum í ís-
lensku viðskiptalífl.
Samt sem áður komast íslenskir
milljarðamæringar í dag ekki með
tærnar þar sem nokkrir ríkustu
menn landsins fyrr á öldum höfðu
hælana. Milli 1400 og 1500 voru til
hér á landi svo ríkir menn að ísland
hefur aldrei alið af sér þeirra líka -
enn sem komið er að minnsta kosti.
Björgólfur Thor er þó næstum hálfn-
aður.
Ríkir menn á 15. öld
Ef ríkustu menn fyrri alda væru
uppi í dag, og ættu hlutfallslega jafn-
mikið, væru eignir þeirra margfaldar
á við Björgólfs Thors.
Guðmundur ríki Arason á Reyk-
hólum hagnaðist gríðarlega á við-
skiptum við Englendinga á 15. öld. Á
Olíufurstar
Einn af hverjum 70 íbúum
Sameinuðu arabísku fursta-
dæmanna á meira en eina
milljón Bandaríkjadollara, eða
tæplega 70 milljónir íslenskra
króna. Þetta eru um 1,5% af
öllum fbúum landsins, en hin-
ir, eða yflr 80% íbúanna, berj-
ast hins vegar í bökkum og eru
að mestum hluta innfiytjend-
ur í láglaunastörfum.
& — **
há-
tindi
ferils síns
átti hann jafn
mikið og fjögur þús-
und meðalmenn áttu,
að því er segir í bókinni Ríkir
fslendingar. Þar á meðal átti hann
næstum alla Barðastrandarsýsluna,
samtals tæplega 180 jarðir. Ásgeir
Jónson hagfræðingur hefur áætlað
að Guðmundur ríki hafi átt 5% af
þjóðarauðnum á þeim tíma. Ekki
var allt þetta fé vel fengið. Til eru
heimildir um ránsferðir Guðmund-
ar, og enn fremur mágs hans, Björns
ríka Þorleifssonar. Björn var að öll-
um líkindum enn ríkari en Guð-
mundur, því eftir að Guðmundur
var dæmdur til sektar fyrir að taka
eignir ófrjáisri hendi sölsaði Björn
undir sig eigur hans. Guðmundur
hvarf án þess að borga sektina, og er
ekkert vitað um afdrif hans. Þykir
það merkileg eyða í íslandssögunni.
Þessum auðæfum fylgdu líka -
eins og jafnan er - mikil pólitísk völd
og áhrif. Björn ríki er talinn ríkasti
maður Islandssögunnar, og hafa átt
um tíunda hluta af öllum jörðum á
landinu. Ef þeir Guðmundur og
Björn væru uppi í dag og ættu sama
hlutfall af þjóðareign nú og þá, væru
eignir Björns metnar á 250 milljarða
og Guðmundar á 125 milljarða. Nú
er íslensk þjóðareign um 2500 millj-
arðar króna, en það er tala sem sam-
anstendur af verðmæti eigna at-
vinnuveganna, hins opinbera og
íbúðarhúsnæðis í almenningseigu.
Peð á alþjóðamælikvarða
Það hefur verið reiknað út að ís-
lensku auðmennirnir um 1400 voru
ámóta ríkir og meðal aðalsmenn í
Danmörku. Og það er eins núna;
ríkustu menn-
irnir okkar ná
ekki inn í al-
heimsklúbbinn
nema sem
minna en með-
Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón Helgi í Byko
Hann hefur náð miklum ár-
angri með Norvík, félagi i eigu
hans og fjölskyldu hans. Fé-
lagið keypti, siðastliðið haust,
fyrir tæpa fjóra milljarða
króna meirihlutann i Kaupási
sem rekur verslanirnar 11-11,
Nóatún, Krónuna, Húsgagna-
höllina og Intersport. Eignir
Jóns Helga eru hér gróflega
metnar á sjö til átta milljarða.
Guðbjörg Matthíasdóttir
Guðbjörg er ekkja Sigurðar
Einarssonar, rika, og á fjöl-
skyldan meðal annars ísfélag-
ið i Vestmannaeyjum og stór-
an hlut i TM sem hefur aukið
verðgildi sitt. Þvimeta fjár-
málaspekúlantar eignir henn-
ar á um átta og hálfan millj-
arð króna.
Jóhannes Jónsson
Hér höfum við annað dæmi
um að sonurinn toppar föður
sinn. En Jóhannes fytgir fast á
eftir Jóni Ásgeiri, enda við-
skipti þeirra samtvinnuð.Jó-
hannes er þó talinn eiga um
milljarði minna.
Hefur verið að fjárfesta i Bret-
landi fyrir um 40 milljarða. Af
þvi er eigið fé um 3-4 milljarð
ar, að áliti þeirra sem gerst
þekkja, og skuldsetningin þvi
mikil. Erfitt er því að áætla
hagnað afgengi hluta-
bréfanna þar sem hann er
ekki í hendi. Við þetta bætast
umsvif á markaði hérá landi.
Það er óvarlegt að áætla eign-
ir Jóns Ásgeirs yfir tíu milljörð-
um, telja þeir sérfræðingar
sem DV ræddi við.
almenn. Björgólfur Thor Björg-
ólfsson kæmist ekki inn á lista For-
bes yflr 500 ríkustu menn heims, þar
sem fólkið í botnsætunum á allt að
minnsta kosti jafnvirði 70 milljarða
íslenskra króna. En hann kæmist
hins vegar í 305. sæti á lista Forbes
yflr ríkustu menn Bandaríkjanna.
Þar yrði hann í hópi með til dæmis
David Gold, sem hagnaðist gríðar-
lega á lágvöruverðsbúðum sínum,
„99 Cents Only“.
Breytt staða
„Það hefur margt breyst á þeim
rúmum tveimur árum sem eru liðin
síðan bók mín kom út,“ segir
Sigurður Már Jónsson, höf-
undur bókarinnar Ríkir ís-
lendingar. Baugsfeðgar voru
þar, sem dæmi, í 11. sæti á
Werner Rasmusson
Werner Rasmusson er einn af
stofnendum Pharmaco. Hann
og hans börn eiga þar stóran
hlut, hvers verðmæti menn
telja komið upp i tiu og hálfan
milljarð króna i dag.