Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Page 15
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 15
65
MILLJARÐAR
«
lista yfir ríkustu
íslendingana, tald-
ir eiga um fjóra millj-
arða hvor.
„Eins og ég benti á í formála
bókarinnar eru margvísleg vand-
kvæði sem fylgja slíkum áætlunum
og þarna getur aldrei orðið um mjög
nákvæm vísindi að ræða. En með
nokkurri yfirlegu og skynsamlegum
nálgunum má fara nokkuð nærri um
auðæfi manna. Það geta til dæmis
fylgt því vandkvæði að áætla eignir
manna með mikil umsvif vegna þess
að þau byggjast oft á mikilli skuld-
setningu. Það getur því brugðið til
beggja vona með niðurstöðu slíkra
fjárfestinga."
Og það eru orð að sönnu. Flókin
eignatengsl, skuldsetning og síkvikt
gengi hlutabréfa gerir verkið erfitt.
Niðurstaða DV af samræðum við
nokkra fjármálaspekúlanta og þá
sem gerst þekkja viðskiptalífið er
þessi listi sem birtist hér, en hann
verður að skoða meira til gamans en
sem fullkomnar staðreyndir.
brynja@dvJs
Bakkabræður
Bakkabræðurnir Ágúst og
Lýður Ouðmundssynir eru
metnir á tiu milljarða hvor.
Markaðsverðmæti Bakkavar-
ar hefur aukist griðarlega og
er nú um 33 milljarðar, og
eiga þeir bræður um 30% i
fyrirtækinu. Þá eru þeir með
stærstu hluthöfum Kaupþings.
Ríkasti maður fslands kæmist
ekki inn á lista Forbes yfír
500 ríkustu menn heims, þar
sem fólkið í botnsætunum á
allt að minnsta kosti jafnvirði
70 milljarða íslenskra króna.
En hann kæmist hinsvegar í
305. sæti á listann yfir rík-
ustu menn Bandaríkjanna.
íslendingar
erlendis
Á listann okkar vantar
nokkra íslendinga sem hafa
iengi verið búsettir erlendis
eins og Gunnar Björgvinsson,
flugvélamiðlara í Liechten-
stein. Hann hefur löngum ver-
ið talinn með rfkustu íslend-
ingum og á tvímælalaust
heima á lista yfir þá, enda
eignir hans taldar hlaupa á
milljörðum. Guðrún Bjama-
dóttir, fýrmm fegurðardrottn-
ing, byggði upp mikið veldi
með ítölskum eiginmanni sín-
um. Hún er búsett í Frakk-
landi.
Misstu
allt sitt
Eignir þeirra Eyjólfs Sveins-
sonar og föður hans, Sveins R.
Eyjólfssonar, vom metnar á 700
milljónir árið 2001. Þeir hafa
síðan misst allt
sitt og bú Eyj-
ólfs verið
tekið til
gjaldþrota-
skipta.
Feðgarnir
voru um-
svifamikilir í
fjölmiðlarekstri og
á tímabili stefndi í að þeim tæk-
ist að koma á legg
stóru fjölmiðla-
veldi. Eyjólfur
þótti
óhræddur
við að taka
áhættu í
fjárfestingum
og áttu þeir
hlut £ mörgum
fyrirtækjum. Veldi þeirra lauk
með því að þeir misstu frá sér
Fréttablaðið árið 2002.
60
55
50
45
40
35
30
25
20
15
10