Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Side 16
76 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004
Fréttir DV
Þóra Hallgrímsson er barnabarn ríkasta manns á íslandi og líka móðir þess ríkasta í dag. Það er margt
líkt með Björgólfi Thor Björgólfssyni og Thor Jensen. Þóra ræðir hér hispurslaust um son sinn og ást
sína á honum.
Moðurast
og milljanðar
Ríkust á íslandi
7 967 Fæðist 79. mars - 7 986 Faðir hans handtekinn vegna Hafskips-
málsins - 7 987 Stúdent frá Verslunarskóla Islands - 7 989 Margrét
systir hans lést i bílslysi -1991 Verður markaðsstjóri Viking brugg,
útskrifaður í fjármálafræðum fráNew York University - 1991 Hæsti-
réttur fellir dóm yfir föður hans i Hafskipsmálinu -1991 Kynnist
Magnúsi Þorsteinssyni, þegar Pharmaco eignaðist Viking brugg -
1992 Kynnist Kristinu Ólafsdóttur, sem siðar varð sambýliskona
hans - 1993 Fertil Rússlands ásamt Magnúsi, sem ráðgjafi á vegum
Pharmaco, sem átti þar gosdrykkjaverksmiðjuna BBP - 1995-6 Eign-
ast verksmiðjuna ásamt Magnúsi og öðrum, Bravo stofnað utan um
hana - 1997 Hefur samband við Kristinu Ólafsdóttur, sambýliskonu
sina - 1998 Fer að framleiða bjór í verksmiðjunni i Rússlandi - 1999
Verður einn afstærstu eigandum Pharmaco vegna viðskipta með
Balkanpharma - 2002 Félagarnir selja verksmiðjuna i Rússlandi fyr-
ir 40 milljarða íslenskra króna - 2002 Samson kaupir hlut rikisins i
Landsbankanum - 2003 Er dagspart á lista yfir 500 rikustu menn
„Hann var alltaf duglegur og skemmtilegur. En mæður eiga það
til að gleyma vandræðunum. Til þess eru þær,“ segir Þóra Hall-
grímsson, móðir Björgólfs Thors Björgólfssonar sem náði þeim ein-
stæða áfanga á dögunum að komast á lista yfir 500 ríkustu menn
heims. Reyndar aðeins um stundarsakir. En þó.
Með þessu afreki hefur Björgólfur Thor skipað sér á bekk með
dugmestu athafnamönnum þjóðarinnar fyrr og síðar og situr þar á
fremsta bekk með fast sæti. Aðeins 36 ára gamall. Ungur aldur hef-
ur þó ekki verið að flækjast fyrir honum. í Rússlandi lét hann sér
vaxa alskegg svo hann félli betur inn í hóp þarlendra viðskiptafé-
laga. Björgólfur Thor er vanur að gera það sem gera þarf. Og fljótur
að átta sig á hvað virkar í þeim efnum.
„Einkasonur"
IjPjlj!
Björgólfur Thor er sonur hjónanna Björgólfs
Björgólfssonar og Þóru Hallgrímsson og
hefur því ekki langt að sækja viðskipta-
vitið. Fiestir þekkja afrek föður hans í
atvinnulífinu en færri vita hins vegar
að í móðurætt er Björgólfur Thor
kominn af helstu athafnamönnum
þjóðarinnar á síðustu og þarsíðustu
öld. Afi hans í móðurætt var Hall-
grímur Friðrik Hallgrímsson sem
lengi var forstjóri Skeljungs og
amma, Margrét, dóttirThor Jensen
s og þar með systir Ólafs Thors fyrr-
um forsætisráðherra. Björgólfur
Thor er eina barn Björgólfs og Þóru
saman en fyrir átti Þóra fjögur
börn sem Björgólfur eldri ætt-
leiddi: „Þau voru öll alin upp eins
og systkini en Björgólfur Thor var
langyngstur. „Tíu árum yngri en
það yngsta af hinum," segir móðir
hans og aftekur með öllu að
Björgólfur Thor hafi fæðst eða verið
alinn upp með silfurskeið í munni
þrátt fyrir ættgöfgina. „Hann þurfti að
læra að fara með fé eins og aðrir og var
alltaf duglegur að útvega sér vinnu á
sumrin. En ég er hrædd um að hann
hafi ekki tileinkað sér kjörorð
Landsbankans um að grædd-
ur sé geymdur eyrir.
^ Frekar held ég að
k hann starfi eftir
“ þeirri kenningu að
aurinn sé betur
geymdur
ávaxtaður
geymdur,"
Þóra.
Björgólfur
Thor er alinn
upp í Vestur-
bænum í
Reykjavík.
Fyrst á Haga-
mel og síðar á
Einimel. Þar
sleit hann
barnsskón-
um. Var
sendur í
^ Melaskóla
eins og
hinir
krakk-
en
segir
Þegar Þóra Hailgrímsson talar
um son sinn gérir hún það af
væntumþykju ogást. Það
heyrist á röddinni sem verður
hlý i hvert sinn sem hún nefnir
nafn hans. Hún þurfti að sjá á
eftir honum.
‘ Haga-
! skóla
Segir
þar
k fátt af
veraldar
Spégríma, útskriftarbók
Verslunarskólans 1987
Björgólfur heitir ungur sveinn
ávait er hann pilturinn seinn
á göngum skólans alltafeinn
þvi hann er ekki lengur
hreinn sveinn.
„Björgólfur T. Björgólfsson eins og
flestir þekkja sem Bjögga„straum"
er öðlingspiltur,“ voru upphafsorð
bókarinnar, á eftir visunni en lýsing
á„Bjögga straum" var á þá leið að
hann kæmi úr„stórri og merkri fjöl-
skyldu" og að hann bæri öll ætt-
geng einkenni hennar;„svo sem
taugaveiklun og vott afgeðveilu."
Björgólfi Thor og svo sem ekk-
ert sem benti til þess að þar færi væntanlegur auðmaður íslands
númer eitt, tvö og þrjú.
í skugga Hafskips
Þegar Þóra Haligrímsson talar um son sinn gerir hún það af
væntumþykju og ást. Það heyrist á röddinni sem verður hlý í hvert
sinn sem hún nefríir nafn hans. Hún þurfti að sjá á eftir honum til
Bandaríkjanna að loknu stúdentsprófi frá Verslunarskóla Jslands
árið 1987. Fór hann fyrst til San Diego í viðskrptanám við þann
fræga skóla UCLA. Ekki líkaði honum námið sem skyldi. Fannst of
mikil áhersla á vísindi og fræði og fékk sig fiuttan til New York það-
an sem hann lauk prófi frá New York University.
„Hann var alltaf duglegur að læra enda fá ekki allir sig flutta á
milli háskóla í Bandaríkjunum. Ég man enn hversu stolt ég var af
honum þegar hann fékk fyrstu verðlaun fyrir nám í enslcu á stúd-
entsprófi íVerslunarskólanum. Þar skaut hann jafnvel útlendingum
aftur fyrir sig,“ segir móðir hans sem minnist útskriftarinnar einnig
fyrir annað og verra því þar sat hún með eiginmanni sínum í skugga
Hafskipsmálsins en Björgólfur eldri var sem lcunnugt er hnepptur f
gæsluvarðhald ásamt félögum sínum 20. maí árið 1986. Ári síðar
sám þau hjón í hátíðarsal Verslunarskólans við útskrift sonar síns:
„Maður var enn dofin af þessu máli öllu. Það er erfitt að rifja upp
þessi ár,“ segirhún.
Þóra telur þó ekki að harmsaga fjölskyldunnar í tengslum við
Hafskipsmálið hafi haft afgerandi áhrif á starfsval sonar síns eða
metnað hans til fjáröflunar. Það sé af og frá: „Auðvitað tók þetta á
fjölskylduna og alla ættina. En þetta liggur svo djúpt að við höfum
aldrei talað um það. Ég hef aldrei rætt þetta mál við Björgólf Thor
þannig að ég veit ekki í raun hvaða eða hvemig áhrif þetta hafði á
hann.“
Eftir námið í New York kom Björgólfur Thor heim og blandaðist
strax inn í ráðagerðir föður síns um að flytja gosverksmiðju Sanitas
út til Rússlands. Fylgdi Björgólfur yngri vélunum út og var þar rneira
og minna í tíu ár við uppbyggingarstarf sem skilaði sér síðan í þeim _
auðævum sem þeir feðgar og félagar þeirra fluttu með sér heim til
fslands og öllum er kunnugt um. Sjálf er Þóra Hallgrímsson ekkert
uppnumin yfir öllu því fé sem safnast hefur á hendur fjölskyldunn-
ar. Hún veit sem er og hefur kynnst því af eigin raun að veraldar-
gengið getur verið fallvalt:
,AUt þetta tal um peninga fer inn um annað eyrað og út um hitt
hjá mér. Ég treysti engu þegar peningar em annars vegar því þeir
geta farið jafnskjótt og þeir komu. Hins vegar er ég mjög stolt af syni
mínum og gleðst þegar honum gengur vel. Hann er góður drengur
og mér finnst skipta mestu að hann sé hamingjusamur og haldi
heilsu. Auðvitað verður fólk að hafa í sig og á en hitt skiptir meiru."
Beðið eftir barni
Eins og títt er um vini lýsa þeir Björgólfi Thor sem afbragðs-
manni. En það er fleira sem einkennir hann og ekki síst þegar kem-
ur að viðskiptum. Einn félagi orðar það sem svo:
„Fyrir utan kraft og fmmkvæði þykir mér merkilegast hversu
harður og ákveðinn hann er í viðsldptum. Hann gengur ákveðið
fram með sín mál á sérdeilis vinsamlegan og kurteisan hátt. Þeir
sem skipta við hann fá því aldrei höfnunartilfinningu þó hann hafi
haft sitt fram með hörku. Galdurinn er í raun sá hversu gott hann á
með að umgangast fólk. Hann er að auki lífsglaður og glaðbeittur og
þó hann virðist á köfium ör þá er hann alls ekki fljótur til. Björgólf-
ur Thor gerir ekkert að óathuguðu rnáli."
Vinir hans og kunningjar em einnig á einu máli um að í Björgólfi
Thor blundi fagurkeri og lífsnautnamaður; eigindir sem hann flaggi
ekki í daglegum störfum. Þó megi sjá það á smekklegum klæða-
burði sem hann hefur líklega erft frá báðum foreldrum. Listrænir
hæfileikar hans fái þó helst útrás í smíðum og hönnun þegar hann
gerir upp gömul hús:
„Hann keypti húsið á Óðinsgötu 5, þar sem Edda Björgvins leik-
kona bjó eitt sinn, og gerði það upp. Þá hefur hann gert upp húsið
sitt í London og einnig nýja skrifstofu þar í borg sem ég verð að segja
að sé sú fallegasta sem ég hef séð og hef þó víða farið,“ segir móðir
hans. „Mér finnst stundum eins og það sjáist best í þessum verkum
sonar míns hversu veruleikatengdur hann er. Gerir alltaf eins vel og
hann getur og sífellt með hugann við næsta verkefni. Ég hef ekki séð
að allir þessir peningar hafi breytt honum svo mikið. Að sjálfsögðu
eru viðhlæjendurnir orðnir fleiri en þetta stígur honum ekki til höf-
uðs. Hann umgengst vín af skynsemi og er þar frábrugðinn föður
sínum sem hefur ekki drukkið í aldaríjórðung þó hann veiti vín og
hafi gaman af. Sjálf er ég bara að bíða eftir barnabarninu frá
Björgólfi Thor og vona að það fari að koma,“ segir Þóra Hallgríms-
son.
Sonur hennar hefur búið með Kristínu Ólafsdóttur í 12 ár þó þau
hafi verið aðskilin löngum stundum vegna starfa beggja erlendis
hefur sambúðin verið farsæl. En Björgólfi Thor leiðist ekkert með
sjálfum sér. Því lýsti hann best sjálfur
eftir að hafa verið útnefndur
maður ársins 2002 ásamt
föður sínum og Magn-
úsi Þorsteinssyni:
„Það er ekki gott
herma mikið eftir
öðrum. fslend-
ingar eru miklar
hópsálir og fara
í torfum...hér
herma menn
mikið eftir
öðrum.“
Björgólfur
Thor hefur
ekki hermt
eftir nein-
um.
Nema
kannski
móður
sinni og
föður.
Þau
gáfu
honum
taktinn
sem
fleyttu
honum
á topp
inn.