Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Síða 19
+
. M \t flUDKtmÞ: ■1 v i Ri
XJV Fréttir _____________________LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 1 9
í
I
tnaheiminum
Misheppnuðum tilraunum
fjölgar
Bankaránum tók að fjölgajafnt og
þétt með árunum. Gjarnan höfðu
ræningjarnir þann háttinn á að þeir
komu óvopnaðir inn í bankana og
létu lítið á sér bera; stukku svo yfir
gjaldkeraborðin, hrifsuðu til sín það
sem þeir gátu og reyndu að komast
brott á hlaupum. Aðallega var það
einn maður sem lagði stund á þessa
iðju en hann var jafnan handtekinn
skömmu síðar. Daginn fyrir gamlárs-
dag 1988 stökk þessi sami maður yfir
gjaldkeraborð Búnaðarbankans í
Austurstræti og komst á brott með
BANKARÁNIN 2003 OG 2004
1. apríl Sparisjóður Hafnarfjarðar Upplýst
16. maí Sparisjóður Kópavogs Upplýst
5. júní Landsbankinn í Grindavík Upplýst
29. ágúst fslandsbanki Seltjarnarnesi Upplýst
18. september íslandsbanki Breiðholti Óupplýst
14. nóvember Sparisjóður Hafnarfjarðar Upplýst
17. nóvember Búnaðarbankinn Vesturgötu Upplýst
9.janúar Sparisjóðurinn (Hátúni 1 rannsókn
400 þúsund krónur. Hann var seinna
þann dag handtekinn á Keflavíkur-
flugvelli enda höfðu náðst af honum
myndir inni í bankanum, auk þess
sem lögregla þekkti vel til hans.
Atvinnumenn láta til skarar
skríða
Árið 1995 voru tvö vel skipulögð
rán framin í Reykjavík. Lengi lék
grunur á að sömu menn hefðu verið
að verki í bæði skiptin en svo var þó
ekki. I’ lok febrúar var ráðist að tveim-
ur konum á Lækjargötu þar sem þær
voru á leið inn í íslandsbanka með
peningasendingu frá Skeljungi.
Mennirnir voru þrír að verki, allir
grímuklæddir, og börðu þeir aðra
konuna í höfuðið og tóku síðan af
henni tösku sem peningarnir voru
geymdir í. Þeir komust á brott á
stolnum bíl með um 5,2 milljónir
króna en af því voru um 3 milljónir í
reiðufé. Nokkrir voru handteknir í
kjölfarið, fjöldi yfirheyrður og um-
fangsmikil leit hófst að mönnunum
sem af lýsingum að dæma voru allir
sagðir vera um tvítugt. Málið var
óupplýst þangað til í fyrrasumar að
fyrrverandi unnusta eins ræningjans
ákvað að gefa sig ffam.
Ránið sem tókst
Rétt fyrir jól þetta sama ár réðust
þrír grímuklæddir menn inn í Bún-
aðarbankann á Vesturgötu, klæddir
bláum samfestingum og lambhús-
hettum. Leifur H. Jósteinsson útibús-
stjóri lýsti atburðunum á eftirfarandi
hátt í DV á sínum tíma:
„Þeir ruddust inn með miklum
hávaða og látum og öskruðu: Þetta er
vopnað rán! Ég sá svo einn mann-
anna stökkva yfir skenkinn með hníf
f hendi og þá áttaði ég mig á að aivara
væri á ferðum. Þeir hræddu fólkið
með látunum og gengu svo mjög
skipulega til verks. Einn þeirra bar
haglabyssu og virtist sá stjórna að-
gerðunum sem voru mjög fagmann-
legar, ef þannig mætti að orði
komast. Þetta tók varla meira en
mínútu og svo voru þeir á bak og
burt.“
Þremenningarnir komust á brott
með hátt á aðra milljón en skildu eftir
stolna bifreið sem þeir höfðu komið
á. Síðar sama dag fannst önnur bif-
reið yfirgefin í borginni, einnig stolin.
Nokkrir menn lágu sterklega undir
gmn en þeir vom allir sýknaðir af
ákæmm. Þetta máf telst því óupplýst.
Tveimur mánuðum áður hafði
maður gert tilraun til ráns í Lands-
bankanum í Háaleiti en var snúinn
niður af viðskiptavinum sem héldu
honum uns lögregla kom á staðinn.
Hann var ákærður og dærndur sama
dag og vakti það eitt og sér nokkra at-
hygli á sínum tíma. Sá fékk 6 mánaða
fangelsisdóm.
Bókstaflegt bankarán
Fyrsta bókstaflega bankaránið var
svo framið í lok janúar árið 1998 þeg-
ar heilum hraðbanka var stolið úr
anddyri Kennaraháskóla Islands. Til-
kynnt var um ránið snemma morg-
uns en hraðbankinn hafði verið
ijarlægður þá um nóttina. Svo virtist
sem hann hefði verið losaður af fest-
ingum og svo fjarlægður, sem þótti
sérstakt þar sem apparatið vó um
hálft tonn. Síðar var upplýst að flutn-
ingabíll hefði verið notaður við verk-
ið.
Fagmannlega var staðið að ráninu
fyrir utan ein grundvallarmistöksem
leiddu til handtöku þjófanna. Til að
komast að hraðbankanum þarf að
opna þar til gerða hurð með því að
renna bankakorti f gegnum lesrauf.
Einn þjófanna notaði sitt eigið kort til
þess og í kjölfarið voru íjórir menn
handteknir. Hraðbankinn fannst svo
inni í sendibíl og hafði mönnunum
ekki tekist að opna hann. Ekki fékkst
upp gefið hversu mikið af fjármun-
um var í bankanum.
Tískubylgja ríðuryfir
f fyrra fjölgaði bankaránum til
muna en alls voru sjö rán framin.
Þann 1. apríl réðst 19 ára piltur,
vopnaður búrhnífi, inn í útibú Spari-
sjóðs Hafnarfjarðar við Reykjavíkur-
veg þar sem hann tæmdi peninga-
skúffii eins gjaldkerans. Lögregla
handtók manninn næsta dag og ját-
aði hann við yfirheyrslur. Þessi sami
maður var svo handtekinn aftur 5.
júní á leið út úr Grindavík. Þar hafði
hann ruðst inn í Landsbankann og
ógnað starfsfólki með hnífi áður en
hann hafði á brott með sér eitthvað af
peningum. Maðurinn sagðist hafa
framið ránin til að fjármagna
spilafíkn sína.
í millitíðinni hafði starfsfólk Spari-
sjóðsins í Kópavogi þurft að glíma við
annan bankaræningja sem lét greipar
sópa þann 16. maí. Hann var hand-
tekinn skömmu síðar og teist það mál
upplýst. Ekkert gerðist svo fyrr en
undir lok sumars þegar 25 ára maður
gekk inn í útibú íslandsbanka við
Eiðistorg, óvopnaður, og tók fé úr
einni gjaldkeraskúffunni. Maðurinn
liuldi andlit sitt ekki og var handtek-
inn þar sem hann var að bíða eftir
strætó í nágrenninu skömmu síðar.
Þann 18. september stökk ungur
maður yfir gjaldkerastúku í íslands-
banka í Lóuhólum, með eggvopn f
höndum, og hafði á brott með sér
peninga. Starfsfólk bankans veitti
honum eftirför en missti af honum á
hlaupum. Ekki hefur tekist að hafa
hendur í hári ræningjans.
Þann 14. nóvember var Sparisjóð-
ur Hafnarfjarðar rændur í annað
sinn. Maður um tvítugt gekk að gjald-
kera með hníf í hendinni og bað
hann að rétta sér peninga. Eftir að
gjaldkerinn hafði gert það hijóp mað-
urinn á brott en var handtekinn
næsta dag. Ekki þurfti að bíða lengi
eftir næsta ráni sem var framið þrem-
ur dögum síðar, þá í Búnaðarbank-
anum við Vesturgötu. Að þessu sinni
voru tveir vopnaðir menn að verki en
sjónarvottar sáu hluta bflnúmers
ræningjanna og voru þeir handteknir
í kjölfarið. Þann 6. desember gerðu
tveir rnenn, vopnaðir sveðjum, til-
raun til að ræna Landsbankann við
Gullinbrú. Starfsmenn bankans gáfu
hins vegar ekkert eftir og hurfu
mennirnir á brott án þess að ná
nokkrum fjármunum. Þeir voru svo
handteknir skömmu síðar.
Ekkert lát virðist vera á bankarán-
unum þvr' þegar hefur eitt slfkt verið
framið á árinu. Tveir vopnaðir menn
réðust þann 9. janúar síðastíiðinn
inn í Spron í Hátúni og höfðu uppi
ógnandi tilburði við starfsfólk og við-
skiptavini. Tveir menn eru nú í
gæsluvarðhaldi vegna þessa máls en
neita sök. Flest, ef ekki öll, ránin á
þessu og því síðasta eru talin tengjast
fíkniefrtaheiminum.
agust@dv.is