Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Side 25
24 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 Fréttir DV DV Fréttir LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 25 Pétur Johann Sigfús- son í Svinasúpunni „iá, ætli þetta se ekki svona oð medoltaH tvö gjgg ó mártítðiJ' Sigmar Viíhjaimsson i Sigmunciur Er arsson sjónvj maóur „Á kari um gera menr æðí neöaríegi miniti- Og þvi samkomaraai öanaaðri." Jóhannes Asbjórnsson i ido! ÞtkSimmi segja oi þai se miög Wnsœft mi om ítundit oSfa ■ " þá t'ú &ð stjonra £ r ,.„~ ss-nvcd fácssP /f;' Atí&un Blöndal r 70 mmútum Sveppi e>q Audde eru fneö virtsæ-tti vefchsstjorum íartds- ms. Nýr atvinnuvegur hefur rutt sér til rúms. Veislustjórn! Algengt er að frægarmenni séu kölluð til að kynna atriði og skemmta í veislum fyrirtækja, skóla og einstaklinga. Einkum eru það skemmti- kraftar og sjónvarpsmenn sem veljast til starfans sem og stjórnmálamenn. Viðmiðunargjaldið er 90 þúsund þannig að þetta er góður aukapeningur fyrir þá sem í komast. Aðrirsem margir myndu „deyja" fyrir að sjá stýra veislunni sinni Leikaran Spaugstofan eins og hún leggur sig Helga Braga Jónsdóttir Steinn Ármann Magnússon Þorsteinn Guðmundsson Flosi Ólafsson Skemmtikraftar: Jón Gnarr Jóhannes eftirherma Sjónvarpsfólk: Eva María Jónsdóttir Ómar Ragnarsson Hermann Gunnarsson Logi Bergmann Eiðsson Stjórnmáiamenn: Guðni Ágústsson össur Skarphéðinsson Ari Edwald Emir Run varps^ srSakvöfd' mn nú vehd fooí „ erum nser eíng&ngu að vefciu- stýrc hjó fyrinækjusr &g oð undanförnu he ur eftSrspumin vesið sU’k aö viö verðum nð GÉsíl M.arteÉrvn »ald* ursson sjórrvarps- ma&kir „Fáfk er ekki cð ieito efth þvi samc þegsr þoö fær mig tii að sijorna vefcfu og tíi dæmis örr- Arnason/' Auövitaö eru þessir menn misfyrirferöarmiklir en oft nefndir til sögunnar þegar fagmannlega veislustjórn ber á góma. Þannig þótti þaö flott þegarAri Edwald var fenginn til aö vera veislustjóri við gift- ingu Þorsteins Jónssonar, sem kenndur er viö Coke. Svo er Hemmi Gunn víst með glæsilegt kombakk á þessu sviði. Stjórnmálamenn eru iíka vinsælir veislustjórar en þeir leggja auðvitað ekki fram reikning heldur „gera þetta frítt“ eins og sagt er. Sigurjón Kjartansson útvarpsma&ur „Siminn hringir ekkert hjö mér nema bora tií c,ð fá simann hjo Sveppa." Sverrir Sverrisson t 70 mínútum „Viðhöfum verið veistustjórar hja 10-11, Hekltí, Somskip, Noidica Spo..." „Efeinhver vill farauppásvið oq halda ræðu þarfmaður kannski að reynaaðstýra þvi i annan far- veg efaðiiinn er kannski ekki íástanditil þess að vera með ræðuhöld. Fyrst og fremst aðsjáumað alltgangiveI ogaðþaðséu aldrei langar þagnir eða dauðirpunkt- ar“ „Þetta hefur verið að aukast mikið. Allir að hringja núna og við verðum að velja úr. Jújú, við erum sennilega heitustu veislustjórarnir í dag,“ segir Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi í dúettin- um Simmi og Jói. Nýr atvinnuvegur á fslandi, sem þó má segja að standi á gömlum merg, hefur verið að ryðja sér til rúms og er að verða all- £umfangsmikill. Þetta er veislu- stjórn. Einkum eru það fyrirtæki sem leita til þekktra skemmtikrafta og sjónvarpsmanna þegar góða veislu gjöra skal, svo sem árshátíðir. Einnig eru framhaldsskólar duglegir við að kalla til sín veislustjóra, félagasam- tök, klúbbar sem og einstaklingar þegar mikið stendur til: stórafmæli og brúðkaupsveislur. Viðmiðunar- gjald fyrir veislustjórn er 90 þúsund krónur þótt það sé að sjálfsögðu rokkandi eftir umfangi hvers við- burðar um sig. Þetta er því drjúg tekjulind þeirra sem í komast. Innherjagrín „Við erum nær eingöngu að veislustýra hjá fyrirtækjum og að undanförnu hefur eftirspurnin ver- ið slík að við verðum að velja úr,“ segir Simmi. Hann segir svo frá að „Fólk er með árshá- tiðir alian ársins hring eins og vitleysingar. “ hlutverk þeirra Jóa sé að tengja saman atriði sem fyrirtækin bjóða upp á, séu sjálfir með stutt atriði fléttuð saman við kynningarnar og einnig sé mjög vinsælt nú um stundir að þeir stjórni Idol-keppni. „Þá köllum við upp á svið yfirmenn og tökum þá í áheyrnarpróf. Það er mjög fyndið og klikkar aldrei." Simmi og Jói undirbúa sína veislustjórn gaumgæfilega og leggja í heimildarvinnu. „Við byrjum á því að afla okkur upplýsinga um hvað gangi á dags daglega. Það er alltaf einhver sem er að kvarta yfir bíla- stæðamálum, einhver sem er alltaf í smók, einhver sem er alltaf í úlpu inni og svona," svo gera þeir félagar sér mat úr þessu líkt og um almælt tíðindi sé að ræða. Simmi segir að þeir félagar taki hugsanlega að sér að jafnaði um þrjár veislur á mánuði. Misjafnt er hversu mikið þeir taka fyrir, fer eft- ir aðstæðum, en þegar mikið er við haft taka þeir 80 til 100 þúsund krónur á haus. Að vera grínaktugur „Ég hef eitthvað gert að því að vera veislustjóri en ekkert sem heitið getur undanfarin tvö ár. Síminn hringir ekkert hjá mér nema bara til að fá símann hjá Sveppa,“ segir Sigurjón Kjartans- son, útvarpsmaður og skemmti- kraftur. Blaðamaður DV áttar sig ekki fyllilega á því hvort hann hef- ur hitt á Sigurjón í niðursveiflu eða hvort hann er einfaldlega að fíflast. Hann segist, einhverra hluta vegna, aldrei hafa verið beðinn um að vera veislustjóri í brúðkaupsveislu. Meira í skólum og fyrirtækjum. „Það er ætlast til þess að veislustjórinn sé fyndinn og skemmtilegur. Helst sótt í slíkt. Svo er þetta spurning um að vera á staðnum og kynna inn helstu atriðin með grínaktugum hætti.“ En hver er síminn hjá Sveppa, bæ ðe vei? „Já, fólk vill meina að við séum þeir vinsælustu í veislustjórninni. Ótrúlegt en satt. Kemur okkur verulega á óvart,“ segir Sveppi en hann og félagi hans Auddi njóta mikilla vinsælda sem veislustjórar. „Við erum að stjórna að jafnaði um tveimur til þremur veislum á mán- uði. Einkum er þetta hjá fyrirtækj- um. Við höfum verið veislustjórar hjá 10-11, Heklu, Samskip, Nor- dica Spa ... Svo detta líka inn í þetta framhaldsskólar." Vaxandi atvinnugrein Sveppi segir það rétt að líklega sé þetta ný atvinnugrein, í það minnsta afar vaxandi. „Við héldum að þetta væri tímabundið og væri einkum í upphafi árs í tengslum við árshátíðir. En fólk er með árshátíðir allan ársins hring eins og videysing- ar. Jafnvel svo að sum fyrirtæld eru með tvær árshátíðir." Sverrir segir þá félaga verða dýr- ari með hverri árshátíðinni og nú taki þeir þetta 80 til 100 þúsund á kjaft. Og mjó er línan milli þess sem teljast má veislustjórn og svo þess að vera hreinlega á svæðinu sem skemmtikraftur. „Djöfull eru þeir að rukka mikið. Ég þarf að endurskoða minn prís,“ segir Pétur Jóhann Sigfússon, grín- ari, útvarpsmaður og verðandi sjónvarpsmaður. Hann er einnig eftirsóttur á þessum vettvangi. Hann segir no comment við spurn- ingunni um hvað hann taki yrir I á veiskina störf sín sem veislustjóri. Og Pétur Jóhann þykist koma af fjöllum þegar nefnd er við hann talan 90 þúsund sem viðmiðunartala fyrir veislu- stjórnina. „Þetta er reyndar allt að- stæðum háð hverju sinni. Já, ætii þetta sé ekki svona að meðaltali tvö gigg á mánuði." Pétur Jóhann segir algengt að framhaldsskólar leiti úl sín, sem og fyrirtæki þegar um árshátíðir og slíkt er að ræða. Einnig sé nokkuð um það að hann veislustýri brúðkaups- veislum. Karlakvöld og íþróttafélög „Jahh, asskoti eru þeir öflugir í þessu drengimir. Ég er greinilega af gamla skólanum," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson sjónvarpsmaður þegar honum eru kynnt kaupin eins og þau gerast á eyrinni í veislu- stjórabransanum. Sigmundur Ernir hefur stjórnað þeim ófáum veislun- um í gegnum tíðina og verið í því undanfarin tíu ár eða svo. „Maður lendir í einhverri hringiðu. Ég er kominn á pallinn og snýst þar hring eftir hring. Ég hef verið mikið hjá íþróttafélögum og líknarfélögum og þá er maður ekki að taka neitt fyrir þetta - h'tur á það sem sitt framlag til samfélagsmála. Verðhugmyndir em mjög misjafnar. En ef um stöndug fyrirtæki er að ræða leggst maður stundum á spenann." Sigmundur Emir skilgreinir starf veislustjórans sem utanumhaldara. Hann reyni að sjá til þess að veislan gangi hratt og vel fyrir sig. „Oft er vandinn við þessar veislur að menn vilja hlaða of miklu inn á örfáa tíma. Þá er maður að ráða mönnum heilt í þeim efnum. En auðvitað lætur maður ýmislegt flakka. Á karlakvöld- um geta menn nú verið æði neðar- lega við mittið. Og því ofar sem sam- komurnar em dannaðri." Mikil vinna Eins og fram hefur komið em það einkum skemmtikraftar, leikar- ar og sjónvarpsmenn sem eru í veislustjórninni en ekki síst virðist framinn á þessu sviði ráðast af því hversu skært ljós manna skín á skjánum. Og Gísli Marteinn Bald- ursson er þar einna fremstur meðal jafningja. Til hans hefur mildð verið leitað varðandi veislustjórn. „Það eru helst árshátíðir sem maður er að skemmta á og svo kannski þorrablót. Þá em það helst fyrirtæki og Idúbbar svo sem Lions og annað,“ segir Gísli sem ekki tek- ur að sér veislustjórn í brúðkaupum „Það er ætlast til þess að veislustjórinn sé fyndinn og skemmti- legur." þeirra sem hann þelddr ekki. „Ég geri það þó hjá vinum og vanda- mönnum ef þess er óskað en oft er líka gott að fá að sleppa því þar sem maður getur aldrei verið fullgildur meðlimur í veislunni þegar maður er að stjórna henni." Gísli Marteinn segir þetta tals- verða vinnu og hann er oft lengi að undirbúa sig. Þá er þetta tímafrekt og yfirleitt em veislurnar á föstu- og laugardagskvöldum. „Þá eru nú venjulega fríkvöld hjá mér og ég verð alltaf jafn feginn þegar ég hef óvart bókað mig vitlaust og kemst að því að ég þarf ekld að standa í þessu - þegar ég hef kannski haldið heilan dag að ég sé að fara stjórna veislu þá er alltaf gott að fá frí.“ Aö lesa salinn Gísli Marteinn segir að hann sé fyrst og fremst fenginn til að stýra stærri árshátíðum þar sem hann þarf að halda utan um hlutina. „Fólk er ekld að leita eftir því sama þegar það fær mig til að stjórna veislu og til dæmis örn Árnason. Þetta felst í því að lesa salinn og finna stemninguna, kynna næstu atriði og hafa yfirumsjón. Maður þarf að vera í góðum tengslum við eldhúsið og þjónana til þess að vita hvenær má koma með næsta rétt og taka af borðum og svoleiðis. Ef ein- hver vill fara upp á svið og halda ræðu þarf maður kannski að reyna að stýra því í annan farveg ef aðil- inn er kannsld ekki í ástandi til þess að vera með ræðuhöld. Fyrst og fremst að sjá um að allt gangi vel og að það séu aldrei langar þagnir eða dauðir punktar." Það getur greinilega verið margslungið að standa sig á þessum vettvangi. Gísli Marteinn segir af- skaplega misjafnt hvað hann taki fyrir þetta. „Oft gerir maður þetta ókeypis, til dæmis ef um góðgerðar- samkomu er að ræð,a en ég held að meðaltalið hjá mér og flestum sé svona 40-50.000. En eins og ég segi er það mjög misjafnt; getur verið minna og getur verið meira. Fer bara eftir því hvað maður þarf að undir- búa sig mikið og vera lengi að.“ jakob@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.