Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Qupperneq 28
28 LAUCARDAGUR 7 7. JANÚAR 2004
Fókus DV
Breska stelpuhljömsveitin Sugababes er væntanleg til íslands til að spila í Laugardalshöllinni 8. apríl n.k. Þó að þær
Keisha, Mutya og Heidi sem skipa sveitina séu enn táningar þá eru þær búnar að vera að í fimm ár og eiga að baki þrjár
stórar plötur og einar tíu smáskífur. Trausti Júlíusson tékkaði á sveitinni.
Keisha Buchanan Fxdd i London 30. sept-
embsr ! 984. Hún a ættir ad rekja til Jamaica.
Kelsha étkiðtogi htjomsveitarinnar og verðttt
afíast fyrir svörum þegar viðtú! etu tekin vid
stelpurnar. Hún segir að þær leggi mikla
átierslu á oð gera eitthvað nýtt á hverri platu.
Þannig verður aldrei leiðinlegt i hljómsveitinni!
Sugababes Á meöal laga frá þeim sem hafa slegið
i gegn eru Overload, Freak Like Me, Round Round,
Stronger, Angels With Dirty Faces, Hole In The Head
og nýja lagið Too Lostln You. Það þekkja kannskl
ekki allir nöfnin á þessum lögum, en þegar þú heyrir
þau þá er öruggt að þú kannast við þau...
41
Heidi Range Fxdd 23. mai 1983 iLiverpaal. Hun va,
meðhmun upphaflegu utgáfunni afAtomic Kitten oa var
i ðieyna fynr se, sem sóló-listamaöÚ,þega, hun sáaua-
lysmgu fra popphljómsveit og ákvad að fara iáh°yrn- 9
arprufu. Þega, þær Keisha og Mutya heyröu, henniþá
von, þær ekkn vata um ad hun væri retta manneskjan til
ad taka wð afiiobhan Donaghy ÍSugababes
Mutya Buena Henir fullu nafni Rosa Isobel Mutya
Buena og er fxdd i Landon 2 i.mai 1983. Pabbtnenn-
ar ei ttá'Fllippseyjum. en mamma hennar er usk Hun
er vilitust afsteipunum, mæUr swndum o svæuó
meö rautt eða blátt hár og klippir sig sjáiiei henni
dettur pað í hug. Þegar Sugababes fengu taksinstri
sídasta sumar þá tor Hekti tii Mexiko og Keisna v,i
Ayia Napa á Kvpur. en Mutya sat eftir með s árt enma
pa, sem hún va, buin aö týna passanum smum þeg-
„Ég held að persónuleik-
i okkar njóti sín betur núna,“ segir
Keisha Buchanan ein af stelpunum
þremur í Sugababes í nýlegu viðtali.
Þó að þær séu ekki nema rétt að
verða tvítugar þá hefur sveitin verið
starfandi í fimm ár og gefið út þrjár
stórar plötur hjá tveimur stórfyrir-
tækjum. Og eins og ráða má af orð-
um Keishu þá hefur tónlistin breyst
töluvert á þessum tíma.
Byrjuðu að syngja með MTV
og Top Of The Pops
Hljómsveitin Sugaþabes varð til í
Norður London. Þær Keisha
Buchanan og Mutya Buena kynntust
í barnaskóla þegar þær voru átta ára
og voru miklar vinkonur. Þær hittu
Siobhan Donaghy í partíi þegar þær
voru þrettán og þær þrjár urðu strax
óaðskiljanlegar. Þær höfðu mikinn
áhuga á tónlist og byrjuðu að syngja
harmóníur úr r&b lögum sem þær
sáu á Top Of The Pops og MTV, en
ákváðu svo að stofna bara sína eigin
hljómsveit. Það var Siobhan sem
kynntist umboðsmanninum Ron
Tom (þeim sama og uppgötvaði AJl
Saints) í gegnum frænda sinn og
hann fór með þær í stúdíó þar sem
þær tóku upp nokkur lög. Þær upp-
tökur fór hann svo með til nokkurra
plötufyrirtækja og á endanum var
það London Records sem gerði
samning við hljómsveitina sem fékk
nafnið Sugababes.
Fyrsta plata Sugababes, One
Touch, kom út í nóvember árið 2000
þegar stelpurnar voru 16 ára gamlar.
Á henni var m.a. poppsmellurinn
Overload, ótrúlega fullkomin popp-
smíð sem fór beint í sjötta sæti
breska vinsældalistans. One Touch
vakti töluverða athygli. Á henni voru
m.a. þrjú önnur smáskífulög sem
náðu samt ekki sömu vinsældum og
Overload. Það vakti lfka athygli að 9
af lögunum 12 á plötunni voru sam-
in af stelpunum sjálfum í samvinnu
við ýmsa lagasmiði.
Erfiðleikar og nýtt upphaf
Haustið 2001 hætti Siobhan í
hljómsveitinni. Hún var óánægð í
samstarfinu, m.a. vegna þess að hún
hafði meiri áhuga á poppuðu rokki
heldur en tónlistinni sem Sugababes
flytja sem er eiginlega hreinræktað
popp þó að áhrifa gæti frá r&b, hip-
hoppi og tölvupoppi. Skömmu eftir
að Siobhan hætti kom annað áfall;
London Records rifti samningum við
sveitina og skyndilega stóðu þær
Keisha og Mutya uppi tvær einar og
án plötusamnings. Flestar stelpu-
hljómsveitir hefðu nú sennilega hætt
við svipaðar aðstæður en ekki Suga-
babes. Þær fóru á stúfana, fundu
nýja stelpu og gerðu samning við
annað fýrirtæki, Island/Universal.
Það var Heidi Range sem tók sæti Si-
obhan. Hún er frá Liverpool og var í
Atomic Kitten þegar sú sveit var að
byrja.
Nýr meðlimur og nýtt plötufyrir-
tæki þýddi nýtt upphaf fyrir Suga-
babes. Þær heyrðu lag sem Richard X
hafði gert með því að blanda saman
lögunum Are Friends Electric með
Gary Numan og Freak Like Me með
Adina Howard. Upphaflega var þetta
ólöglegur bastarður sem komst í um-
ferð á Netinu, en Sugababes ákváðu
að gera opinbera útgáfu og gefa út
sem næstu smáskffu og þær fengu
auðvitað sjálfan Richard X til þess að
gera lagið með sér. Lagið, Freak Like
Me, var eitt af lögum ársins 2002. Það
fór beint í fyrsta sæti breska listans
og breska tónlistarblaðið Q valdi það
besta lag ársins 2002. í kjölfarið kom
önnur platan þeirra Angels With Dir-
ty Faces. Á henni voru líka smellirnir
Round, Round og Stronger.
Á perunni með Perry
Eins og fleiri stjörnur hafa Suga-
babes fengið að kynnast kjaftasög-
unum. Síðasta sumar átti hljóm-
sveitin að vera hætt, Mutya að vera
ófrísk, Keisha átti að vera að gera
plötu með villingunum í So Solid
Crew og Heidi átti að vera að jafna
sig eftir taugaáfall. Allt var þetta rugl,
hljómsveitin var í fínu formi eins og
kom í ljós þegar Hole In The Head
fyrsta smáskífan af nýju plötunni
þeirra Three fór beint á topp breska
vinsældarlistans og kom þar með
hinu ofurvinsæla Where Is The Love
með The Black Eyed Peas af toppn-
um eftir sex vikur.
Three var tekin upp í Los Angeles
og m.a. unnin með Diane Warren
(sem hefur samið fyrir Whitney
Houston, Tinu Turner, Arethu
Franklin o.fl.), Guy Sigsworth
(Madonna, Björk), Stuart Crichton
(Kylie) og Lindu Perry, en hún var
sem kunnugt er í kvennarokksveit-
inni 4 Non-Blondes og hefur verið
að semja og pródúsera við góðan
orðstír að undanförnu, m.a. fyrir
Pink og Christinu Aquilera.
LA dvölin var ævintýri líkust fyrir
Sugababes. Þær voru stundum að
semja og taka upp í sitthvoru glæsi-
hljóðverinu með sitthvorri upptöku-
stjörnunni sama daginn. Þær gerðu
eitt lag með Lindu Perry, Nasfy
Ghetto og til þess að ná úr þeim
stressinu og „fá þær til þess að vera
heiðarlegar í söngnum" hellti Linda
í þær fullt af tequila. Gekk víst vel og
svo var útkoman fínpússuð síðar
þegar þær voru allar allsgáðar. Suga-
babes sömdu reyndar þrjú lög með
Lindu, en aðeins eitt þeirra náði á
plötuna.
Öðruvísi stelpupopp?
Framundan hjá Sugababes er
heljarinnar tónleikaferð, þeirra önn-
ur á ferlinum. Tónleikarnir í Höll-
inni eru hluti af þvf tónleikaferða-
lagi.
Það hefur verið töluvert gert úr
því að Sugababes sé öðruvísi en aðr-
ar stelpuhljómsveitir, þær starfi
sjálfstætt og semji sjálfar sín lög. Það
er nú kannski orðum aukið eins og
sést á samstarfsmönnunum sem
vinna með þeim og á þeirri stað-
reynd að þær eru á snærum eins
stærsta útgáfufyrirtækis heims, Uni-
versal, og eru auðvitað með helling
af fagmönnum í vinnu hjá sér. Það
er hins vegar alveg rétt að þær taka
þátt í því að semja bæði lögin og
textana. Melódíurnar koma oft frá
þeim og þær vinna textana saman.
Þær eru líka örugglega ein af ferskari
stelpupoppsveitum heims og þær
hafa sýnt að þær gefast ekki upp þó
að á móti blási.
Það sem skiptir samt líklega
mestu máli fyrir þá sem ætla að
skella sér í Höllina 8. apríl er að
Sugababes þykir mjög góð á tónleik-
um eins og stórtónleikar þeirra á
Glastonbury tónlistarhátíðinni í
fyrrasumar sýndu. Það eru aðallega
rokkhljómsveitir sem spila á hátíð-
inni í Glastonbury, en Sugababes
fóru létt með það að trylla rokk-lýð-
inn sem skemmti sér konunglega og
söng hástöfum með í lögum eins og
Overload og Stronger.
Svalasta stelpubandið