Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Side 30
30 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004
Fókus DV
Á íslandi eru 86% landsmanna skráð í Þjóðkirkjuna miðað við 92% fyrir um áratug siðan. Þetta samsvarar rýrn-
un upp á 6% og hafa meðlimir Þjóðkirkjunnar aldrei verið hlutfallslega færri. En hvað hefur orðið um þessi 6%?
Á síðustu Wárum hefur trúleysingjum og ásatrúarmönnum fjölgað, kaþólikkar hafa tvöfaldast og skráðum
trúfélögum hefur fjölgað úr 11 í21. Trúarbrögðin bjóða upp á eftirsóknarverða hluti sem ekki fást annarsstað-
ar, s.s. eilíft líf og syndaaflausn, en í staðinn eru hins vegar ýmsar kvaðir og skyldur settar á fólk sem geta verið
allt frá tíundargreiðslum yfir í trúboð. Trúarbrögðin eru þannig orðin neytendavænni og barist er um hvert ein-
asta sóknarbarn. Hér verðurþví stuttlega fjallað um hvað trúfélögin hafa upp á að bjóða þessa dagana.
Ásatrúarfélagið - 777
Ásatrú, eða Vor Siður, er siður sem byggist
á hinni lifandi náttúru, sem er sá hluti al-
heimsins sem við sjáum og skynjum.
Guðirnir gerðu ekki heiminn úr engu,
heldur sköpuðu hann úr hinni eitifu orku
alheimsins (ginnungagaps), samkvæmt
lögmálunum sem búa ( Aski Yggdrasils.
Sköpun og eyðingin eru því endalaust sam-
spil, eilíf hringrás sem viðheldur tilverunni
Engar messur eru haldnar en Höfuðblót eru
fjögur á ári. Ásatrúin á sér enga „biblíu" en mest er
sótt til Eddukvæðanna og sambandið við náttúruna er mikilvægt.
Hvað? - Náttúrutrú að fornum sið
Skyldur? - Bera virðingu fyrir náttúrunni
Verðlaun? - Vist í Ásgarði uns að ragnarökum kemur
Annað? - Fjögur blót á ári með tilheyrandi skemmt-
anahöldum
Félag múslima á íslandi - 289
Gengur út á undirgefni við hinn eina Guö, Allah. Orð Allah voru
skráð af Múhammed I Kóraninn og eftir honum skal fara. Fimm stoð-
ir Islam eru fastan, bænin, Mekkaferð, staðföst trú á AHah og umburð-
arlyndi og ölmusugjöf til þeirra sem minna mega sín. Sé fólk sanntrú-
að og fari eftir Kóraninum í einu og öllu bíður þess eilíf sæla þegar
að dómsdegi kemur. Þeir sem þjást fyrir Allah verða sérstaklega bað-
aðir í náð hans þegar þeir deyja.
Hvað? - Boðskapur Allah
Skyldur? - Fasta, bæn fimm sinnum á dag, Mekka-
ferð, ölmusa og staðföst
trú á Allah
Verðlaun? - Eilíf sæla
Annað? Eilíf þjáning
bíður þeirra sem gera grín
að Islam
Krossinn - 572
Forstöðuhjón eru þau Gunnar og Ingibjörg en
rætur Krossins liggja f Hvítasunnukirkjunni
og má einna helst skilgreina söfnuðinn
sem klofningshóp. Þátttaka einstakling-
anna er mikilvæg og þeir verða að fylgja
sterkum siðferðislegum gildum. Tilvist
djöfulsins er viðurkennd og allir fæðast
syndugir. Markmiðið er þvi að„frelsast"
en frelsið er ekki áunnið fyrir góð verk eða
vandað líferni, það er alfarið og að öllu leyti
gjöf Guðs, fyrir trú á úthellt blóð Krists.
Krossinn er einangrað samfélag og safnaðar-
meðlimir eru þeir einu sem eiga möguleika á að öðlast eillft líf.
Ákveðinn „við og hinir" hugsunarháttur er því í gangi.
Hvað? - Staðfastur og hefnigjarn Jesús
Skyldur? - Safnaðarstarf og tíund
Verðlaun? - Möguleiki á himnavist
Annað? - Hliðhollir (sraelsríki
Þjóðkirkjan - 250051
Þjóðkirkjan er eins og gefur að skilja lang
fjölmennasta trúfélagið. Trúin byggir vitan-
lega á kenningum Jesú Krists og lýsir hin
svokallaða gullna regla þessu ágætlega:
„Allt sem þér viljið, aö aðrir menngjöri yður,
það skuluð þér og þeim gjöra." Það er svo
allur gangur á því hvort fólk fari eftir þessu
og messusókn er frekar frjálsleg. Þjóðkirkjan
er Ifka mjög frjálslynd, í raun getur fólk gert
það sem það vill svo lengi sem það heldur
sig innan ákveðins regluramma sem flestir
kalla siðgæðisvitund. Ef það er gert hlýtur
fólkeilíft Iff með Kristi.
Hvað? - Kenningar Jesú
Skyldur? - Engar
Verðlaun? Eilíft líf
Annað? - Ríkisstyrkt trú
Vottar Jehóva - 655
Samkvæmt trúnni veitti Jehóva (Guð) Jesú það vald sem hann hafði heitið honum árið 1914, þ.e.að verða kon-
ungur I ríki Guðs.Trúfastir einstaklingar munu svo verða valdir til að ríkja með honum sem dómarar og prestar
yfir mannkyninu.Tala þeirra er 144.000 og því færri sem komast að en vilja. Jafnskjótt og Jesús varð konungur
kastaði hann Satan og illum öndum hans frá himni niður til nágrennis jarðarinnar sem útskýrir styrjaldir, hung-
ursneyðir, farsóttir og aukið lögleysi frá árinu 1914 - allt eru þetta„tákn" sem gefur til kynna að endirinn sé
nærri. Vottar Jehóva eru þvi hinir trúföstu og þeir einu sem (raun eiga möguleika á framhaldslífi. Iðrun og agi
eru einkennandi og söfnuðurinn hittist þrisvar í viku að jafn
aði.Trúboð er mikilvægur þáttur f trúnni.
Hvað? - Öfgafullur Jesú með tölfræðilegar
staðreyndir á hreinu
Skyldur? - Þrjár samkomur á viku, iðrun, trú-
festa og trúboð
Verðlaun? - Dómarasæti í Guðsríki á jörðu
Annað? - Endirinn er nærri og aðeins 144.000
manns geta orðið meðstjórnendur með Jesú í
himnaríki
Búddistafélag íslands - 518
Búdda var auðugur prins um 500f.Kr.sem ofbauð þjáningar heims-
ins en fann innri frið með hugleiðslu. Ekki er því um trú á einhverja
æðri veru að ræða heldur eins konar sjálfstrú sem fléttast inn (
ákveðna heimspeki.Talað er um sannindin fjöguntilveran er þjáning.
Orsök þjáningarinnar er lífsgirnd. Lækning þjáningarinnar er fólgin (
að uppræta Iffsgirndina. Leiðin til lækningar er meðalvegurinn. Hann
áfólksvo aðganga.
Hvað? - Sjálfstrú og heimspeki
Skyldur? - Ganga meðalveginn
Verðlaun? - Innri ró og full-
kominn friður
Annað? - Þú fæðist aftur
með sama karma og heldur
áfram að fæðast uns þú hefur
náð nirvana.
Baháísamfélag - 374
Baháí eru ungt en nokkuð útbreitt trúfélag.
Það byggir á kenningum sem segja mannkyn-
ið eina þjóð f einu landi. Öll trúarbrögð eru
komin frá sama Guðinum, Jesús og Mú-
hammed eru því bara spámenn. Baháísamfé-
lagið fer eftir boðorðunum 10 auk þess sem
áfengisneysla, fjárhættuspil, slúður og baktal
er bannað. Helvíti og himnariki eru bara
ástand og þegar fólk deyr fer það þangað sem
sálin hefur andlegan þroska til að fara, hvað
svo sem það þýðir. Bahál reynir að brúa bilið á milli trúarbragða og vís-
inda og hefur það að markmiði að koma á friði með lýðræðislegri al-
heimsstjórn. Einar Ágúst er líklega frægasti meðlimur
Baháíasamfélagsins.
Hvað? - Öll trúarbrögð í einum graut
Skytdur? - Samkomurá 19 daga fresti,fasta ílokBa-
háí-ársins
Verðlaun? - Sálin kemst á næsta áfangastað
Annað? - Dóp, slúður og baktal eru ekki liðin
Fríkirkjurnar í Rvk
og Hfj. - samtals
10060
Frikirkjurnar er frjáls evangelísk
lútersk trúfélög, svipað og Þjóð-
kirkjan en með sjálfsforræði í eigin
málum. Safnaðarfélögum, konum
sem körlum, er tryggður jafn réttur
til áhrifa sem Frlkirkjan telur vera í
samræmi við boðskap Krists. ( raun er
því um uppreisnarseggi að ræða sem vilja
vera óháðir ríkisvaldinu. Himnavist er lofað í
skiptum fyrir líf með Jesú.
Hvað? - Jesús án ríkisvalds
Skyldur? - Messur og safnaðarstarf
Verðlaun? - Eilíft líf
Annað? - Frjáls fjárframlög vel þegin