Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Page 31
DV Fréttir
LAUOARDAGUR 17.JANÚAR2004 31
Kirkja sjöunda dags Aðventista
á íslandi - 727
Söfnuðurinn segist vera fjölskylda Guðs sem
hann hefur tekið að sér sem sín börn. Þegar
Kristur kemur aftur sigri hrósandi mun hann
taka hina trúföstu, þá sem hann keypti með blóði
sinu - hinir munu brenna að eilífu. Ennfremur seg
ir söfnuðurinn að: „Uppfylling spádómanna um hina síðustu
tíma sýnir að koma Krists er í nánd. Nákvæmur tími þessa at-
burðar hefur ekki verið opinberaður og þess vegna erum við
áminnt um að vera reiðubúin hvenær sem er."
Hvað? - Sönn böm Guðs
Skyldur? - Tíund og safnaðarstarf
Verðlaun? - Hásæti í Guðsríki á jörðu
Annað? - Heimsendirer í nánd - gjörið iðrun
^ .
Fríkirkjan Vegurinn - 704
Þetta er einangrað samfélag fyrir fólk sem hefur tekið á móti
Jesú Kristi semfrelsara sínum.Söfnuðurinn byggirá sterkum
siðferðishugmyndum sem fengnar eru úr
Biblíunni. Öllu er stjórnað af Öldunga-
ráði sem ber ábyrgð á biblíulegri kenn-
ingu kirkjunnar, standa vörð gegn villu-
kenningum, hafa agavald i siðferðilegum
málum og endanlegt ákvarðanavald. Þetta er í raun
ofsafenginn söfnuður þar sem gamalmenni eru allt i öllu.
Hvað? - Sterkur siðferðislegur Jesús
Skyldur? - Gera eins og kirkjan segir (þ.m.t.tí-
und)
Verðlaun? - Möguleg himnavist
Annað? - Öldungaráð sem ræður öllu
Kaþólska kirkjan - 5582
(haldssamt batterí sem gerir eins og útsendari guðs á jörðu, þ.e.
páfinn, segir. Kaþólska kirkjan er því á móti fóstureyðingum,
notkun getnaðarvarna og samkynhneigð svo eitthvað
sé nefnt. Skyldur sem lagðar eru á sóknarbörnin er t.d.
aðjáta syndir sinarvið skriftir, biðja reglulega og vera
góður kaþólikki, þ.e.trúa því að sannleikurinn séal-
ger og óþreytanlegur (nema páfi ákveði annaðj.Þvi
betri sem þú ert þvi minni vist í hreinsunareldinum.
......--
Hvað? - Ihaldssamur Jesús
Skyldur? - Bænir, skriftir og guðsþjónustur
Verðlaun? - Miði til himnaríkis
Annað? - Gætir tafist í hreinsunareldinum í ein-
hverjar aldir á leiðinni til himna
Betanía -147
Dótturkirkja Christ Gospel
Church International en í raun er
um klofningshóp úr Krossinum
að ræða. Um er að ræða kristna
bókstafstrú sem kennd við séra
Hicks og hefur sérstaka áherslu á
heilagsanda-skírn og tungutal.Á
samkomum fer fólk gjarnan í trans - það hleypur um, dans-
ar, klappar,öskrar og hvað sem er til að lofa Jesú
Hvað? - Bókstafstrúar Jesús með transi
Skyldur? - Safnaðarstarf og tíund
Verðlaun? - Möguleiki á himnavist
Annað? - Transfílingur þar sem andinn kemur
yfir fólk og það talar tungum
Hvítasunnukirkjan á íslandi -1721
Frjálslynd kirkja sem trúir þó að hin heilaga ritning sé óskeikul og
óvéfengjanleg. Þeir hafa sérstakar skirnarvenjur sem þeir leggja
mikið upp úr en á samkomum þeirra er jafnan mikið fjör.Gospell-
söngur er þar áberandi og Hvítasunnufólkið getur vel starfað með
öðrum kristnum trúfélögum, svo lengi sem þau líta ekki á sig sem
æðri öðrum trúfélögum.l raun má líkja trúfélaginu við Þjóðkirkjuna
nema hvað þeir taka hlutina aðeins alvarlegar og enginn kemst til
himna nema hann endurfæðist og eignist lifandi trú á Guð.
Samfélag trúaðra - 35
Trúa á kenningar Bibllunnar en álfta ákveðna þætti mikil-
vægari en aðra. Byggir á kenningum bróður Branham sem er
eins konar andlegur leiðtogi á jörðu og minnir einna helst
á Benny Hinn því Branham býr yfir mætti til að lækna sjúka
o.s.frv. Samfélag trúaðra er eindreginn stuðningsmaður
(sraelsríkis líkt og bræður þeirra i Krossinum.
Hvaö? - Öfga Jesús
Skyldur? - Tíund og safnaðarstarf
Verölaun? Hinir staðföstu
hljóta vist á himnum
Annað? - Bróðir Branham
getur læknað sjúka
Hvað? - Syngjandi Jesúboðskapur
Skyldur? - Endurfæðing og lifandi trú
Verðlaun? - Farmiði til himna
Annað? - Sérstök skírn í sundlaug
JESU5 LOVEs you
Bur I M
FAVOURTTB
&
Óháði söfnuður-
inn-2496
Hér er einnig um afbrigði af Krist-
indómi að ræða með þessum
klassiska„verum góð við náung-
an" boðskap. Óháði söfnuðurinn
býður aftur á móti upp á
skemmtilega hluti eins og af-
djöflanir og andasæringar
sem fæstir aðrir þora að leggja í.
Hvað? - Óháður Jesús
Skyldur? - Messur og safnaðarstarf
Verðlaun? - Himnavist
Annað? - Andasæringar og afdjöflun
Utan trúfélaga - 6929
Trúleysingjar trúa ekki á neitt eins og
gefur að skilja. Ekki er því um söfn-
uð að ræða og lítið er vitað til þess
að trúleysingjar haldi hópinn og
ræði um trúleysi sitt. Samkvæmt
flestum öðrum söfnuðum mega
þessir einstaklingar því eiga von á
því að fara beina leið til helvítis
þegar þar að kernur.
Hvað? - Ekkert
Skyldur? - Engar
Verðlaun? - Enginn
Annað? - Bein leið til helvítis
-x