Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Side 34
34 LAUGARDAGUR I7. JANÚAR 2004
Fókus DV
Krár&böll • Tríóið Hvann-
dalsbræður með Rögnvald Gáfaða í
fararbroddi verður með útgáfutón-
leika á Kaffi 22 á Laugavegi klukkan
21.
• Harmonikkufélag Reykjavíkur
heldur þorrablót sitt með dúndr-
andi stórdansleik í Ásgarði, Glæsi-
bæ klukkan 19. Fyrir dansi leika
fimm hljómsveitir.
• Línudansball verður á skemmti-
staðnum Nasa frá 21 til miðnættis.
Frítt er inn. Eftir það leikur Ný
dönsk fyrir dansi.
• Rut Reginalds og hljómsveit leika
á Fjörukránni í Hafnarflrði.
Kapital með snúðunum Lewis
Copeland, Tomma White og Andr-
ési auk söngvara og fleiri.
• Geirmundur Valtýsson og hljóm-
sveit halda uppi sveiflunni á
Krmglukránni.
• Dj Sóley spilar á Vegamótum.
• Sagaklass skemmtir á Players í
Kópavogi.
Klassík • Hanna Dóra Sturlu-
dóttir verður einsöngvari á Nýárs-
tónleikum í Salnum, Kópavogi
klukkan 16. Með henni leikur átta
manna salonhljómsveit sem skipuð
er úrvalsliði hljóðfæraleikara.
e Austrian Double Reed Quartet
heldur tónleika í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi klukkan 17.
• íslenska óperan tekur nú aftur
upp sýningar á Werther eftir
Massenet. Aðeins tvær sýningar eru
eftir, sú fyrri í kvöld klukkan 20.
Kvikmyndir • Kvikmyndasafn
íslands sýnir japönsku myndina
Yojimbo eftir Akira Kurosawa í Bæj-
arbíói, Hafnarfirði klukkan 16.
Sænskur texti
Leikhús • Rauðu skómir eftir
H.C. Andersen er frumsýnt í Borg-
arleikhúsinu klukkan 14.
• New Icon Party verður á
Menning hjá Gísla
Marteini
Myndlistarmaðurinn Ólaf-
Lífið eftir vinnu
• Bless fress með Þresti
Leó Gunnarssyni er sýnt í
Loftkastalanum klukkan 20.
• Sporvagninn Gimd er sýnt í Borg-
arleikhúsinu klukkan 20.
• Ríkarður þriðji er sýnt á stóra
sviði Þjóðleikhússins klukkan 20.
• Meistarinn og Margaríta er sýnt í
Hafnarfjarðarleikhúsinu klukkan
20.
Opnanir • Bjami Sigurbjöms-
son og Svava Bjömsdóttir opna
samsýningu á verkum sínum í
Listasafninu á Akureyri klukkan 15.
• Sigríður Guðný Sverrisdóttir opn-
ar málverkasýninguna Gulur, rauð-
ur, grænn og blár í Baksalnum í
GaUeríi Fold, Rauðarárstíg 14-16
klukkan 15. Sýningin standur til 1.
febrúar
• Sýning Ólafs Elíassonar,
Frost Actívity, verður opnuð í
Listasafni Reykjavíkur, Hafriar-
húsinu, klukkan 16.
Jæja
ur Elfasson
verður aðal-
gestur í Laug-
ardagskvöldi með Gfsla
Marteini f sjónvarpinu f 1k km
kvöld. Þá verða tónlist-
-armennimir Sigrún Eð- Hv ' JB
valdsdóttir og Björn
Thoroddsen einnig gest-1
ir. Óhætt er að segja að
þátturinn verði með menn-
ingarlegu sniði að þessu
sinni.
Kronik 10 ára
Útvarpsþátturinn Kronik á
X-inu 977 fagnar um þessar
mundir tíunda starfsári
sínu. Af því tilefni verður
heljarinnar veisla á Gaukn-
um á fimmtudagskvöld-
ið í næstu viku. Von er á
erlendum gestakomum,
^sjálfumMC
Supematural og Dj
Noize, þannig að það er
um að gera að taka i
kvöldið frá. Stjórnandi
Kronik er sem fyrr sjálfur
Róbert Aron Magnússon
eða bara Robbi rapp.
Rauður bónus
íslendingar em farnir að
átta sig á kostum þess að
ferðast með Strætó. Fyrir-
tækið vinnur statt og
j.stöðugt að því að bæta
þjónustuna og fyrr en
varir munum við ekki
verða neinir eftirbátar
nágrannalandanna.
Leyndur gullmoli hjá
Strætó sem námsmenn
einir virðast þekkja er
að hægt er að kaupa Rauða
kortið á litíar 10.500 krón-
ur. Kortíð gildir um allt
leiðakerfi Strætó í heila
þrjá mánuði.
Mínus kveöup
landann og fagnar
Hljómsveitin Mínus efnir til tónleika á Grand Rokk í
kvöld í tilefni af útkomu smáskífu þeirra Angel in disgu-
ise sem er að finna á bestu plötu síðasta árs, HalldárLax-
ness. Þetta verða jafnframt síðustu tónleikar þeirra hér á
landi í bili þar sem þeir munu halda til Englands í næstu
viku til tónleikahalds. Mínus hefur fengið tvær ungar
sveitir til þess að hita lýðinn upp fyrir alvöru átökin í
kvöld en það eru hljómsveitirnar Manhattan og Jan
Mayen.
„Þetta verða síðustu tónleikarnir okkar á íslandi í bili.
Þetta eru eiginlega kveðjutónleikar og útgáfupartí um
leið þar sem við fögnum útgáfu nýrrar smáskífu,“ segir
Frosti Logason gítarleikari Mínus.
„Videoið við Angel in disguise verður líka sýnt þarna
áður en við stígum á sviðið en annars má fólk bara eiga
von á alvöru Mínustónleikum - rokk, geðveiki og berir
kroppar," segir Frosti sem segir sveitina v.era byrjaða að
vinna að nýju efni.
„Við spiluðum eitt nýtt lag á tónleikum um daginn
sem kom bara vel út þannig að það er líklegt að það verði
eitthvað af nýju efni flutt þarna í kvöld."
Fólk ætti því að drífa sig á Grand Rokk í kvöld til þess
að bera Mínus augum því ekki er víst að annað tækifæri
gefist til þess í bráð. Húsið mun opna kl. 23 og þarf fólk
að reiða fram lítinn 1000 kall til þess að komast inn.
Handbendi myrkravaldsins
með söng sínum. En það er aðeins
yfirskin eins og síðar kemur í ljós.
Rithöfundurinn Sjón er af mörg-
um þekktur fyrir að skrifa illskiljan-
legar bækur í súrrealískum anda sem
enginn skilur, nema kannski mennt-
aðir táknfræðingar. En það er auðvit-
'að tómt bull. Maður þarf hvorki að
vera doktor né dúx í kabbalisma til að
skemmta sér yfir skáldsögum hans.
Sjón skrifar vissulega „skrítnar" sög-
ur, a.m.k. frá sjónarhóli þeirra sem
aðhyllast tært raunsæi, en fyrir þá
sem eru hrifnir af ævintýrum, óvænt-
um uppákomum og fantasíu eru
bækur hans gullnáma. Sögurnar em
spennandi og vel skrifaðar og ekki
spillir hinn sjónski húmor gleðinni en
hann er ávallt innan seilingar, jafnvel
í alvarlegustu umfjöllunum. Það var
því með nokkurri eftirvæntingu sem
undirrituð settist niður með nýjustu
bók Sjóns, Skugga-Baldur.
Grasafræðingur og glæpa-
„stúlka
Skugga-Baldur er raunsærri en
fyrri sögur Sjóns, a.m.k. á yfirborð-
Sjón „Þrátt fyrir
gloppurer
Skugga-Baldur
vönduð og flott
saga"
inu. Hún gerist
seint á 19. öld og
em þrjár persónur
forgrunni, prest-
urinn Baldur
Skuggason, Friðrik
B. Friðjónsson
grasafræðingur og
stúlkan Abba.
Abba finnst um
borð í skipi sem
verður skipreka við
ísland og er hún
síðar hneppt í
varðhald fyrir glæp. Á þann glæp
ber hún hinsvegar ekki skynbragð
því hún er vangefin. Friðrik grasa-
fræðingur rekst á stúlkuna fyrir til-
viljun og tekur hana undir sinn
vemdarvæng og fer með hana í
sveitina þar sem hún unir glöð við
sinn hlut, jafnvel eftir að henni er
úthýst úr kirkjunni. Þangað fær
hún ekki að koma eftir að Skugga-
Baldur tekur við prestsembætti því
hann segir hana trufla messuhald
Dr.Jekyll og herra Hyde
Greinilegt er að höfundi hefur ver-
ið í mun að draga hlutskipti þeirra
sem minna mega sín fram í dagsljósið
og einnig má lesa söguna sem
ákveðna gagnrýni á yfirráð valda-
manna. Þessum sjónarmiðum kemur
höfundur dável á framfæri, bæði í Iýs-
ingum á aðstæðum Öbbu í upphafi
bókarinnar og persóna Skugga-Bald-
urs er ágætlega upp byggð. Afdrif
hans em óvænt og mynda hugrenn-
ingatengsl við ekki ómerkari sögu en
Dr. Jekyll og hr. Hyde þar sem dýrslegt
eðli vex stig af stigi og yfirtekur á end-
anum mennskuna. Óhugnaðurinn
sem ríkir í gömlu hrollvekjunni er þó
langt undan í Skugga-Baldri því ham-
skiptin sem þar eiga sér stað eru bæði
spaugileg og með miklum ólíkindum.
Illskan og góðvildin
Eins og nafnið bendir til er
Skugga-Baldur handbendi myrkra-
valdsins en á hvaða hátt og hvernig er
aldrei fyllilega ljóst. Það er ákveðinn
galli sem einnig endurspeglast í held-
ur veikburða tengslum prestsins við
Friðrik og Öbbu. Baldri er greinilega í
nöp við Öbbu og á því fær lesandinn
skýringar í lok bókarinnar en í sög-
unni sjálfri reynir lítið á togstreitu á
milli persónanna. Þar með eru helstu
andstæður sögunnar, illskan og góð-
vildin, lítt sýnilegar og í bragðdaufara
lagi. En þrátt fyrir gloppur er Skugga-
Baldur vönduð og flott saga enda ekki
við öðru að búast af höfundi sem býr
yfir víðfeðmri þekkingu á bókmennt-
um, listum, trúarbrögðum, heimspeki
og vísindum, svo fátt eitt sé nefnt.
SigríÖui Albertsdóttii
Upprisanna
safnaranna
Sýningin Stefnumót við safnara
verður opnuð í Gerðubergi þann í
dag klukkan 14. Ellefu safnarar á öll-
um aldri sýna þar brot af gersemum
sínum og má finna á sýningunni allt
frá rakvélablöðum til útvarpstækja.
Safnararnir skiptast í tvær ólíkar
fylkingar í söfnuninni, annars vegar
er um að ræða þá sem eru af gamla
skólanum og sanka að sér gripum og
láta þá standa óhreyfða. Hins vegar
er um að ræða þá sem safna til að
móta eitthvað nýtt úr því sem safnað
er. Á sýningunni er meðal annars að
finna styttur af mæðgum sem frú
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum for-
seti, hefur safnað og Hawaiiskyrtur
og veggspjöld með Marilyn Monroe
sem Birgir örn Thoroddsen, Bibbi
Curver, hefur safnað. Auk þess eru á
sýningunni munir safnaranna Bald-
vins Halldórssonar, Sólveigar Sig-
urðardóttur, Helgu Hansdóttur,
Ragnars Fjalars Lárussonar, Ragn-
heiðar Viggósdóttur, Þórs Gunnars-
sonar, Sigríðar Þórðardóttur, Hrafn-
hildar Sigurðardóttur og Hugrúnar
Daggar Árnadóttur.
Kaldaljós til
Berlínar
Kvikmyndin Kaldaljós hefur ver-
ið valin til þátttöku á kvikmyndahá-
tíðinni í Berlín í næsta mánuði.
Myndin verður sýnd í flokknum
„Panorama" sem einungis 15 kvik-
myndir eru valdar í af fleiri hundruð.
í næstu viku verður myndin opnun-
armynd kvikmyndahátíðarinnar í
Gautaborg. Aðsóknin hér heima hef-
ur heldur ekki verið neitt slor, tæp-
lega 15 þúsund manns á tveimur
vikum.