Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004
Sport DV
Frábær sigur
á Danmörku
íslenska handbolta-
landsliðið byrjaði fjögurra
þjóða mótið í Danmörku
vel með sex marka sigri á
heimamönnum í Farum.
Það var jafnt á flestum
tölum í íyrri hálfleik og
Danir höfðu eins marks
forystu í hálfleik, 18-17.
I seinni hálfleik kom
Reynir Þór Reynisson í
markið og vörnin small
saman og íslenska liðið
hreinlega brunaði yfir það
» danska. Mest náði íslenska
liðið átta marka forystu,
32- 24, en í lokin skildu sex
mörk liðin, Island vann
33- 27.
Ólafur Stefánsson
skoraði níu mörk fyrir
íslenska liðið og átti ófáar
stoðendingarnar, Guðjón
Valur Sigurðsson skoraði
sex mörk, Sigfús Sigurðsson
var með fimm (fékk rautt í
lok fyrri hálfleiks), Snorri
Steinn Guðjónsson var með
4 mörk og þeir Patrekur
Jóhannesson og Einar Örn
Jónsson léku sinn besta leik
í langan tíma og gerðu 3
mörk hvor. Guðmundur
Ilrafnkelsson varði 8 skot í
fyrri hálfleik en Reynir Þór
Reynisson varði 11 skot í
þeim seinni.
Tveir Evrópu-
leikir í Eyjum
Það verður nóg að gera í
Eyjum um helgina þegar
kvennalið ÍBV leikur báða
leiki sína gegn búlgarska
liðinu Etar Veliko 64
Ternovo í Áskorendakeppni
^ Evrópu. Leikurinn á
laugardaginn fer fram
klukkan 16:30 en seinni
leikurinn er klukkan 14:00 á
sunnudag.
Báðir dómarar leiksins
eru kvenkyns og heita Ida
Gullaksen og Kariana Lock
og koma frá Noregi og eru
aðeins 24 og 25 ára og eru
'■þetta fyrstu Evrópuleikir
þeirra.
Þetta er fjórða árið sem
ÍBV tekur þátt í Evrópu-
keppninni. Árið 1993-
1994, tapaði ÍBV í fyrstu
umferð fyrir Varpa Riga frá
Lettlandi í Evrópukeppni
Félagsliða. Árið eftir eða
1994-1995 datt ÍBV einnig
úr í fyrstu umferð fyrir USM
Gagny frá Fraklandi, í
Evrópukeppni Bikarhafa.
ÍBV tók síðan þátt í
Evrópukeppni félagsliða
2000-2001 og unnu Pirin frá
Búlgaríu í fyrstu umferð en
töpuðu síðan í annarri
.jimferð fyrir Buxtehude frá
Pýskalandi.
Enska knattspyrnuliðið Leeds er í tvöfaldri hættu á að tilheyra ekki ensku
úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Það er ekki nóg með að liðið sitji í fallsæti þá
eru skuldirnar að sliga félagið í gjaldþrot. Eftir aðeins tvo daga rennur út frestur
félagsins til að forðast greiðslustöðvun.
Það er ljóst að næstu dagar ráða öllu um framtíð Leeds, þessa fornfræga
félags sem hefur unnið Englandsmeistaratitilinn þrisvar sinnum (síðast
1992) og telst óumdeilanlega til virtustu klúbba ensku knattspyrnunnar.
Bareinskur sjeik stökk fram á sjónarsviðið í gær og segist vera búinn að
gefa „sínu“ liði líflínu sem til þarf til að róa lánadrottna félagsins. Skuldir
Leeds eru þær mestu í sögu enskra íþróttafélaga og síðasta frjárhagsár var
metár í skuldasöfnun en skuldir þessa miðlandafélags jukust þá um 49,5
milljónir punda eða um 6,3 milljarða íslenskra króna. Á Leeds liggja nú
rúmlega 10 milljarða skuldir sem eru allt annað en auðvelt að losna við.
Sjeikinn umræddi, sem ber nafn-
ið myndarlega Abdulrahman bin
Mubarak al-Khalifa sem forráða-
menn Leeds taka reyndar með fyrir-
vara, segist búinn að safna um 4,5
milljörðum frá viðskiptahring í
heimalandi sínu. Peninginn ætlar
hann bæði að nota í að borga fyrr-
nefndum lánadrottnum sem og að
leggja fram 15 milljónir punda til
kaupa á nýjum leikmönnum.
4sigrarí21 leik
Leeds hefúr aðeins unnið 4 af 21
leik og tapað öllum þremur leikjun-
um eftir jól. Leeds hefur á undan-
fömu ári selt marga af sínum bestu
leikmönnum. Rio Ferdinand, Robbie
Keane, Lee Bowyer, Robbie Fowler,
Jonathan Woodgate, Harry Keweli og
Olivier Dacourt er hópur af frábæmm
leikmönnum sem stuðningsmenn
Leeds hefur mátt horfa á yfirgefa fé-
lagið á þessum erfiðu tímum. Vegna
vandræða félagsins hafa þessir leik-
menn farið að margra mati alltof
ódýrt og sölu leikmanna gæti hvergi
nærri verið lokið, gangi fjáröflun ekki
eftir.
Þrír leikmenn hafa verið nefndir
þar til sögunnar, framherjarnir Mark
Viduka og Alan Smith og markvörður-
inn Paul Robinson. Viduka hefur ver-
ið á fömm nánast allt tímabilið en
Smith hefur haldið tryggð við félagið í
Ijölmiðlum, en staðan er svo slæm að
hann væri einnig þvingaður til að yflr-
gefa Elland Road.
Til að lifa af tímabilið ijárhagslega,
þarf að safna á bilinu 5 til 8 miljónum
punda (600 milljónum til eins millj-
arðs íslenskra króna) en fáist þeir
peningar einungis með því að selja
umrædda leikmenn verður svo að
vera. Middlesbrough hefur áhuga á að
kaupa Viduka, Newcastle er spennt
fyrir Smith og Robinson er undir smá-
sjánni hjá mörgum félögum í enska
boltanum. Yfirgefl þessir þrír leik-
menn félagið fyrir góðan pening er
ljóst að verkefni þeirra sem eftir
standa sé orðið mjög strembið í að
halda liðinu í ensku úrvalsdeildinni.
Fari svo að Leeds fari í greiðsstöðv-
un er ljóst að framtíð félagsins er end-
anlega úr þeirra höndum og að það
Þó að þarna sé enginn
Roman Abramovich á
ferðinni er Ijóst að
áhugi þessa bar-
einska sjeiks og hans
manna eru góðar
fréttir eins og sést á
verðbréfamarkaðnum
þar sem gengi bréfa í
Leeds hækkuðu um
50% um leið og kaup-
hallirnar opnuðu.
verði forráðamenn ensku úrvalsdeild-
arinnar og hin liðin 19, sem hana
skipa, sem ákveða hvernig tekið verði
á málum Leeds í framhaldinu. Stig
gætu vissulega verið dregin frá liðinu
en það stefnir í það að örlög Leeds
ráðist aldrei fyrr en eftir núverandi
keppinstímabfl.
Væri liðið í 1. deildinni myndi það
hrapa niður í 3. deild en þetta mál
kemur til með að hafa algjört for-
dæmisgildi fyrir mál af þessu lagi í
ensku úrvalsdeildinni sem hefur verið
við lýði frá 1992 en glímir í fyrsta sinn
við mál sem þetta. Fall í 1. deild þýðir
minni tekjur og enn meiri skuldir, því
er það flestra hagur að bjarga Leeds,
bæði inni á knattspyrnuvellinum sem
og út úr fjárhagsvandræðunum.
Eitt er víst, stjórnarmenn Leeds
sitja stífa stjórnafúndi þessa dagana
til að reyna að leysa mál Leeds.
Enginn Roman
Þó að þama sé enginn Roman
Abramovich á ferðinni er ljóst að áhugi
þessa bareinska sjeiks og hans manna
em góðar frétdr eins og sést á verð-
bréfamarkaðnum þar sem gengi bréfa í
Leeds hækkuðu um 50% um leið og
kauphallirnar opnuðu. Líflína Leeds
gætí því komið frá smáríkinu Barein í
SA-Asíu reynist umræddur Abdulra-
hman bin Mubarak al-Khalifa vera all-
ur þar sem hann er séður. ooj@dv.is
Alltof sjaldgæf sjón Leedsarar hafa fengið alltoffá tækifæri til að fagna á siðustu tveimur árum þegar félagið hefur mátt þola mikil
fjárhagsvandræði og i ofanálag slakt gengi inni á knattspyrnuvellinum. Reuters