Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Blaðsíða 39
r
DV Sport
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 39'
Það hefur gripið
um sig handbolta-
æði í Slóveníu og
löngu orðið uppselt
á leikina í Celja
þar sem íslenska
landsliðið spilar.
Stoltir stuðningsmenn Slóvenar styðja
jafnan vel við bak sinna íþróttamanna sem
eru margir i fremstu röð þrátt fyrir að þjóðin
sé ekki fjölmenn.
SLÓVENÍA
Slóvenía er nyrsta landið sem áður
tilheyrði gömlu Júgóslavíu.
Slóvenía er um 20 ferkílómetrar að
stærð sem er um það bil helming-
urinn af stærð Sviss.
Upplýsingar um Slóveníu:
Sjálfstæði: 2S.jún(1991
Stærð: 20,273 ferkílómetrar
Fólksfjöldi: 1,935 milljónir
Höfuðborg: Ljubliana
Þjóðtrú: Rómversk-kaþólskir
Tungumál: Slóvenska
Allt a öðrum
Nú eru aðeins nokkrir dagar þar
til að Evrópumðtið í handbolta
hefst en að þessu sinni fer mótið
fram í Slóveníu, nyrsta landinu sem
áður tilheyrði gömlu Júgóslavíu.
Slóvenar eru tveggja milljóna
þjóð og löngu þekkt íþróttaþjóð
þrátt fyrir fámenni. Slóvenar voru
sem dæmi með á bæði EM 2000 og
HM 2002 í knattspyrnu og eru
fámennasta þjóðin sem hefur
komist í lokakeppni í vinsælustu
íþrótt í heimi. En íþróttaafrekin telja
ekki bara í knattspyrnunni því
Slóvenar eiga afreksfólk í fremstu
röð á skíðum, í tennis og í frjálsum
íþróttum.
Það kemst þó ekkert annað en
handbolti að þessa daga í landinu
enda eru Slóvenar í fyrsta sinn að
halda stórmót í íþróttum og það er
óhætt að segja að Slóvenar ætla taka
vel á móti gestunum sínum.
Island er með Slóvenum í riðli og
liðin mætast í fyrsta leiknum, leik
sem kemur til með að hafa mikið að
segja um framhaldið í keppninni.
Riðillinn fer fram í 37 þúsund
manna borg norður af
höfuðborginni í Ljubliana.
Roman Pungartnik er leikmaður
Kiel og einn af aðalmönnunum hjá
Slóvenum. Pungartnik er sann-
færður um að þjóðin sameinist á
bak við liðið en Slóvenar hafa jafnan
farið langt á liðsheild og þjóðastolti.
„Það er bara rætt um eitt mál
þessa dagann í Slóveníu og það er
Evrópumótið. Þetta mót hefur
gríðarmikið að segja og það vita
mínir landar enda er löngu uppselt
á leikina. í sjónvarpinu, útvarpinu
og blöðunum er um fátt annað rætt
en EM. Við ætlum að nýta okkur
þennan meðbyr en við vitum að við
þurfum að taka eitt skref í einu og
einn leik fyrir í einu og aðalatriðið í
upphafi er að tryggja okkur inn í
milliriðilinn,“ sagði Pungartnik í
viðtali við þýska netmiðilinn
Sportl.
Stærsta markmiðið er þó að
tryggja sig inn á Ólympíuleikana í
Aþenu en Slóvenar eru ein af níu
þjóðum sem ekki hafa tryggt sig inn_»
á leikana. „Við vitum að við þurfum
að hafa mikla heppni með okkur til
að ná þessu markmiði en við erum á
heimavelli og eigum möguleika."
ooj@dv.is
15-50% afsláttur
Skeifunni 19 i Póstkröfusími 581 4488 ljosogorka@ljos.ís
Orka
i