Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2004, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004
Síðast en ekki síst DV
Blóta þorrann í Kristjaníu
Ha?
íslendingar sem búsettur eru í
Danmörku eru þekktir fyrir að halda
hópinn og hittast og gera sér glaðan
dag. Þann 7. febrúar næst-
komandi verður árlegt
þorrablót félagsins haldið og er þeg-
ar farin að myndast góð stemning
úti að sögn kunnugra. Boðið verður
upp á happadrætti, hópsöng, uppi-
stand, gamanvísur og auðvitað
þorramatinn auk þess sem veislu-
stjóri er Gísli Pétur Hinriksson,
fyndnasti maður íslands á síðasta
ári. Að borðhaldi loknu mæta svo
Einar Ágúst og félagar í Skítamóral á
svæðið og leika fyrir dansi fram eftir
nóttu. Verð fyrir mat og dansleik er
300 danskar krónur fyrir þá sem eru
í félaginu en 350 fyrir utanfélags-
menn, 100 kall kostar bara á ballið
en 150 ef þú ert ekki í félaginu.
Nokkra athygli hefur vakið að blótið
er að þessu sinni haldið í Kristjaníu,
á Den Grá Hal, og mun það vera ný-
mæli. Þó svo margir íslendingar hafi
lagt leið sína í Kristjaníu í gegnum
árin má víst telja að einhverjir láti sjá
sig í fyrsta sinn, að minnsta kosti svo
þeir segi stoltir frá því...
Skítamórall Btóta þorrann ÍKristjaniu með
Islendingafélaginu i Danmörku.
• Alþingismenn hafa margir
hverjir verið þekktir fyrir elju sína
og hörku, og er þar skemmst að
minnast Áma
Johnsen. Hann
mun hafa keyrt
um allt kjördæmi
sitt á Suðurlandi
reglulega á áber-
andi jeppa með
~*númeraplötunni
Island. Minnti
hann helst á ofur-
hetju. Þegar eitthvað bjátaði á, líkt
og í Suðurlandsskjálftanum, var
Árni jafnan mættur, en þegar ró-
legra var rúntaði hann um kjör-
Síðast en ekki síst
dæmið líkt og könnunarmaður.
Raufarhafnarbúa rak í rogastans á
dögunum í miðjum kafaldsbyl þeg-
ar tveir alþingismenn birtust á
hreppsskrifstofunni í þorpinu ein-
angraða út úr bylnum. Voru þar á
ferð Halldór Blöndal og Ambjörg
Sveinsdóttir sem komu að austan.
Þrátt fyrir langa og erfiða ferð um
“'ófæra þjóðvegi stoppuðu þing-
mennirnir stutt og fóru eftir að
hafa hlustað á Guðnýju Hrund
Karlsdóttur sveitarstjóra tjá sig um
fjarskipti og tengsl þeirra við jafn-
rétti til náms...
• Eyðijörðin Svalvogar sem
stendur fyrir opnu hafi á milli
DýraflarðarogAmar^arðar var boð-
in til sölu hjá Ríkiskaupum fyrir
skömmu og bárust í hana nítján
tilboð. Hæsta tilboðið hljóðaði upp
á sex milljónir króna og hefur því
_verið tekið. Tilboðið átti einka-
iilutafélagiö Rósir á Laugavegi 161 í
Reykjavík. Ekkert greiðslumark fyl-
gir Svalvogum. Þar stendur 111 fer-
metra hlaðið einbýlishús frá árinu
1947 ásamt ónýtum útihúsum.
Þangað er hægt að aka á sumrin
eftir vegi sem Elís Kjaran ruddi um
árið og er ekki með öllu hættulaus
þar sem hann hangir í hlíðinni fyrir
utan Keldudal. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Ríkiskaupum er íbúðar-
húsið mjög illa farið. Á jörðinni er
viti sem er undanþeginn í sölunni.
Óvíst er hvað kaupendurnir ætla
^sér að gera við jörðina en tæplega
hyggjast þeir hefja þar búskap...
• Eins og DV hefur greint frá oftar
en einu sinni á síðustu dögum er
Pétur Jóhann Sigfússon nýjasti
liðsmaðurinn í 70
mínútum á Popp-
tíví. Pétur gengur
þar í lið með snill-
**ingunum Sveppa
ogAuddaoghætt-
ir þar með í morg-
unþættinum Ding
Dong á FM957. Þó
DV hafi upplýst
um inngöngu Péturs í 70 mínútur
ætla strákarnir samt að vera með
húllumhæ í
Smáralindinni, fyr-
ir framan BT, í dag
klukkan 13 og
kynna Pétur til
sögunnar. Við
þetta tækifæri ætla
þeir líka að kynna
nýjan kostunarað-
ila þáttarins og að
_^sjálfsögðu verður gripið til gamalla
ttragða og drukknir ógeðsdrykkir
og sett íslandsmet og fleira...
FyRIR 100 ARUM FLUSU
MENN í FYRSTA SKIPTI.
Ný HOPPUM VIÖ “f;XPRESS"
A MILLI LANDA AN PESS
AD TELJA FLUSID EINU
SINNI SPENNANDIPART
AF FERÖALASINU.
PESAR ES VAR LITILL
ÁTTI ÉS TÖLVU SEM VAR
MED 16K í MINNI SEM
ÞÓm BARA NOKKUD SOTT!
NÚ ER SÍMINN MINN
MED 800K í MINNI SEM
PYKIR BARA EKKERT SPES.
FRAMFARIR SIDUSTU
100 ÁRA HAFA FALIST
í ÞVÍ AD ÞRÓA ÚTLIT
OSINNVID - OS SVO í
SEINNITÍD VIDMÓT
HUSBÚNADAR.
ÞVI LESS ES TIL AD
KLÓNUN VERDI BEITT
í ÞVÍ SKYNI AD ÞRÓA
OKKUR MENNINA í
SAMRÆMI VID
TÆKNIFRAMFARIR
AFTUR A MOTI
MUN ÞAD VERA UNDIR
HVERJUM OKKAR KOMID
AD UPPFÆRA
HUSBÚNADINN SJÁLF
OS VINNA AD BETRUM-
BOTUM A VIDMOTINU.
Hópur útlendinga mænur
í tökur Engin leti í Latabæ
„Nickelodeon mun frumsýna
Lazy Town þættina sem síðdegis-
þætti í júní eða júlí á þessu ári,“
segir Brown Johnson yfirmaður
barnaefnis Nickelodeon sem til-
heyrir Viacom, einni stærstu sjón-
varpssamsteypu Bandaríkjanna.
Hún segist hafa fulla trú á því að
þættirnir muni slá í gegn og að
Iþróttaálfurinn, sem leikinn er af
Magnúsi Scheving sjálfum höfundi
konseptsins, verði jafn þekktur og
vinsæll í Bandaríkjunum og hann er
á íslandi - þá miðað við hina marg-
umræddu höfðatölu. ("Sportacus
might be as big a star in the US as
he is in Iceland.") Hún segir hug-
myndina enda einstaka. „Svona
nokkuð hefur aldrei sést í sjónvarpi
áður, blanda af húmor og boðskap
um heilsusamlega lifnaðarhætti
hefur mikla möguleika á að slá í
gegn.“
Johnson segir Nickelodeon legg-
ja til gerðar þáttanna umtalsverða
fjármuni í stað sjónvarpsréttar.
Hversu mikið er hins vegar trúnað-
armál en DV hefur heyrt nefndar
tölur á borð við 25 milljónir á þátt
en fyrirhugað er að framleiða 40
hálfrar klukkustundar þætti að
þessu sinni. Þessar tölur eru hins
vegar óstaðfestar.
Karl Óskarsson kvikmyndatöku-
maður mun skjóta Latabæjar-þætt-
ina en tökur munu hefjast á næst-
unni. Til landsins steðja nú erlend-
ir fagmenn sem munu taka þátt í
gerð þáttanna. í gær kom til lands-
ins stúlka sem heitir Julíanna og
mun hún fara með hlutverk Sollu
stirðu. Ekki tókust samningar við
stúlkuna sem áhugamenn um Lata
bæ þekkja úr prufutökum eða
svokölluðum pilotþáttum sem
sýndir hafa verið en stúlka kemur í
stúlku stað. Samkvæmt heimildum
DV gengur undirbúningur afar vel
og leggja menn nótt við dag í því
skyni að allt gangi snurðulaust fyrir
sig þegar tökur svo hefjast. Með
öðrum orðum, engin leti er í Lata-
bæ.
íþróttaálfurinn. Magnús Scheving heilsar
uppá hina isiensku æsku. Efallt fer að óskum
mun hann verða átrúnaðargoð ungmenna
um heim allan.
• Það vakti
athygli gesta á
íslensku tón-
listarverðlaun-
unum að sjá
saman í svip-
hendingu par
sem flestir
töldu vera sun-
drað. Þetta
voru hin geð-
þekku Jóhann
Bachmann
trommuleikari
og húsvíska
heilladísin
Birgitta Haukdal. Á síðasta ári bár-
ust af því tryllingslegar tröllasögur
að vegir þeirra
hefðu skilið og
meðal aðdá-
enda hlaust af
því nokkuð íra-
fár. Aðdáendur
þeirra vænta
þess hins vegar
að þau hafl tek-
ið upp þráðinn
þar sem frá var
horfið í sam-
bandi þeirra
eins og með-
fylgjandi mynd,
sem tekin var
við áðurgreint tilefni, gefur vissu-
lega vísbendingar um...
Veðrið
.gT?/
y a “■
Allhvasst
8
Nokkur
vindur
♦ * Nokkur
r „g vindur
Strekkingur"'
-lOV^pNokl
* Strekkingur
o^^jbrNokkur
^ * ♦ vlndur
5,-7,, Nokkur
^ikT#vindur
10.****|
Allhvasst
æL
o
+ 1 4í|e4s|c AUhvasst
Strekkingur
^ ^Nokkur
vindur