Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2004, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2004, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 Fókus DV SmHRHKL BIO kl. 10 B.i. 14 Stórbrotin og margverðlaunuð stórmynd með óskarsverð- launahafanum Nicole Kidman, Golden Globe og BAFTA verðlaunahafanum Renée Zellweger og Jude Law. [SÖMETHING'S GOTTA GIVE kl. 6 og 9] [KALDAUÓS ld. 6 og 8 [ MYSTIC RIVER kl. 9.10 B.i 16 ára HEIMUR FARFUGLANNA kl. 6 FILM-UNDUR KYNNIR SV MBL | SÝND kl. 6 og 9 B.i.16 {HESTASAGA Sýnd kl. 8.05 SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is jSOMETHING GOTTA GIVE kl. 5.40, 8, og 10.201 jBJÖRN BRÓÐIR kl. 4 og 6 M. ISL TALI www.sambioin.is Færeyskir dagar Dagana 5. mars til 14. mars verða Færeyskir dagar haldnir á Fjöru- kranni og Hótel Víkingi í Hafnarfirði. Hingað til lands koma þjóðkunnir Færeyingar, bæði tón- listarmenn og eins mat- reiðslumenn til að kynna matargerð þeirra. Mikið verður um dýrðir í Firðinum af þessu tilefni og ætti fólk að kynna sér dagskrána vel. Opið bíó nr. 20 Bíó Reykjavík heldur Opið bíó í tuttugasta sinn í kvöld. Hátíðin er sem fyrr í húsakynnum MÍR, Vatns- stíg lOa, og hefst klukk- an 20. Húsið opnar hálf- tíma fyrr. Aðgangur er ókeypis. Jæja Nýr Hattur og Fattur Möguleikhúsið frumsýn- ir nýtt íslenskt leikrit um grallarana góðkunnu Hatt og Fatt og ævintýri þeirra með Siggu sjoppuræningja á fimmtudaginn. Verkið er samið af Olafi Hauki Símonarsyni. Leikstjóri er Bjarni Ingvarsson og leikarar eru Pétur Eggerz, Valur Frqyr Ein- arrson og Alda Arnar- dóttir. Skáldaspírukvöld fer fram á Jóni forseta í kvöld. Kvöld þessi eru haldin annað hvert þriðjudagskvöld og segjast forsprakk- arnir hafa uppgötvað mörg ung og efnileg skáld. Sterk þörf fyrir Ijóð „Við erum að uppgötva mörg ung og efnileg skáld,“ segir Bene- dikt S. Lafleur, sem er forsprakki skáldaspírukvölds sem haldið er annað hvert þriðjudagskvöld á menningarbarnum Jóni forseta. „Ég og Gunnar Andrésson erum að skipuleggja þessi kvöld með þann tilgang í huga að kynna ný skáld í bland við þekktari skáld. Það er svo mikið að gerast í þessum heimi að það er alveg ótrúlegt og við höfum orðið varir við mjög mikla eftirspurn í að lesa upp.“ Benedikt rekur sjálfur sína út- gáfu sem heitir Lafleur-útgáfan og segist tilbúinn til að hjálpa þess- um skáldum að koma sér á fram- færi. „Ég er að gefa út bæði Gunn- ar Dal og Geirlaug Magnússon svo og óþekktari skáld. Eg hvet alla sem hafa áhuga á að lesa upp ljóð til að hringja í mig og skrá sig og svo sjáum við til með framhaldið," segir Benedikt. Ljóðakvöldið í kvöld verður þriðja kvöldið í þessari syrpu en búið er að skipuleggja dagskrána fram í maí. „Það hefur verið fullt á þessi kvöld, bæði meðal lesenda og áhorfenda, þannig að það er mikill áhugi í gangi. Það hefur gengið vonum framar að fá fólk til að mæta og hlusta og áhorfendur eru á öllum aldri, bæði fólk sem hefur gaman af skáldskap og svo fólk sem þekkir skáldin og svo koma margir líka af forvitni. Ég var mjög undrandi yflr því hve þörfin fyrir ljóð er mikil, það er miklu meiri áhugi á að hlusta, skrifa og yrkja en ég bjóst við. Ég held að • fólk sé að fylla upp í andlegt tóma- rúm, þessi þörf er alltaf mjög sterk og ekki síst núna. Ljóðið er mjög nútímalegt form á texta, það er beint og fer engar krókaleiðir og í hraða nútímans hittir það beint í mark. Þetta snýst líka um þörf Benedikt Lafleur „Ég var mjög undrandiyfir því hve þörfin'fyrir Ijóð er mikil, það er miklu meiri áhugi á að hlusta, skrifa og yrkja en ég bjóst við.' Krár • Það verður fjör á Ellef- unni í kvöld þegar hljómsveitirnar Æla og Tommygun spila þar. Dag- skráin hefst klukkan 22 og.sveitirnar spila til lokunar. • Davíð A. Stefánsson, Ófeigur Sig- urðsson, Fríða Bonnie Andersen, Hörður Gunnarson og Kristín Ómarsdóttir lesa ljóð á þriðja Skáldaspírukvöldinu á Jóni forseta, Aðalstræti 10, klukkan 21. Bíó • Kvikmyndasafn fslands sýnir japönsku kvikmyndina Seppuku eftir Masaki Kobayashi, frá árinu 1962 f Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarflrði, klukkan 20. Lífið eftir vinnu mannsins til að stoppa tímann í hraða nútímans og um þörf hans til að vita hvar hann stendur í nú- inu og ljóðið, það stoppar tímann," segir Benedikt. Skáldaspírukvöldið verður haldið í kvöld kl. 21 og aðgangur er ókeyp- is. Gunnar Jónsson leikari Ætla að kaupa hjólastól Hvað gerðirðu við peningana sem frúin í Hamborg gaf þér? Ég lagði þá inn í banka. Afhveijuíbanka? Til þess að ávaxta féð. í hvaða banka lagðirðu inn? KB banka að sjálfsögðu. Hvað fékkstu mikinn pening frá henni? 350.000 eftir skatt. Frúin í Hamborg Hvað ætlarðu að láta peningana ávaxta sig lengi? Þangað til þeir eru orðnir 1.000.000. Hvað ætlarðu þá að kaupa þér? Hjólastól, vegna þess að ég verð orðinn svo gamall. Einhver sérstök ósk um hjóla- stól? Hann á að vera hvítur og svart- ur... Tónleikar • Davíð Ólafsson bassi flytur afríska sálma frá Amer- íku í Duushúsum í Reykjanesbæ klukkan 12. Með honum leikur hljómsveit undir stjórn Daníels Bjarnasonar. • Kolbeinn Bjamason ilautuleikari og Geoffrey Douglas Madge píanó- leikari flytja verk eftir Boulez, Bach og fleiri í Salnum, Kópavogi, klukk- an 20. • Tangósveit lýðveldisins heldur sitt fimmta tangókvöld í Iðnó klukk- an 21. Tangósveitina skipa Hjörleif- ur Valsson fiðluleikari, Tatu Kantomaa harmonikkuleikari, Gunnlaugur T. Stef- ánsson kontrabassaleikari og Vignir Þ. Stefánsson píanóleikari. Fundir og fyrirlestrar • Agúst Þór Amason flytur erindi um íslensku stjórnarskrána og þá hugmyndafræði sem býr að baki stjórnarskrám á Lögfræðitorgi Há- skólans áAkureyri, Þingvallastræti 23, stofu 24. Erindið er klukkan 16.30. • MaryMcDonald-Rissanen, dós- ent í ensku við Tampereháskóla í Finnlandi, flytur fyrirlestur um sjálfsævisöguleg skrif og konurnar á Prince Edward-eyju í stofu 201 í Amagarði, klukkan 17.15. • Þorfinnur Ómarsson, Sigríður Anna Þórðardóttir, Bryndís Hlöðversdóttir og Róbert MarshaU ræða um konur og fjölmiðla á hinu mánaðarlega Hitú Feministafélags íslands á Sóion, klukkan 20. • Kynning á þeim möguleikum sem bjóðast í meistara- og doktors- námi við Háskóla íslands fer fram í Hátíðasal Aðalbyggingar frá kl. 16 til 18 og eru allir áhugasamir vel- komnir. Kennarar og nemendur verða á staðnum og veita allar upp- lýsingar. • Valur Ingimundarson sagnfræð- ingur heldur erindi í Norræna hús- inu í fyrirlestraröð Sagnfræðinga- félags íslands, „Hvað er (um)heimur?" Er- indið neftúst „Nýju stríðin" og verður fjallað um eðli stríðsreksturs eftir að kalda stríðinu lauk. Erindið er flutt klukkan 12.05, aðgangur er ókeypis og öllum heimill. I erindinu verður ijallað um eðli stríðsreksturs eftir að kalda stríðinu lauk. Sjónum verður beint að kenningu Mary Kaldor um „nýju stríðin" og „einka- væðingu" hernaðar, en einnig að hlutverki bandarískra hátækni- eða „sýningarstríða“ ogverndar- og hernámssvæða á vegum alþjóða- stofnana og vestrænna ríkja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.