Akranes - 01.10.1952, Síða 8
Ól. B. Björnsson:
1UNDRAD SIININ YFIR HAFID
1 Reykjavík þekki ég hæglátan mann,
sem hefur sig ekki mikið í frammi. Hann
er gætinn glöggur, skýr og skemmtilegur,
eins og hann á kyn til, en að auki er
hann svo minnugur, að „fletta má upp
í honum eins og bók.“ Þessi maður er Geir
Geirsson, Zoega, framkvæmdarstjóri á
Öldugötu 14. Gætinn er Geir og grandvar,
en enginn flysjungur. Faðir hans var
hygginn og hagsýnn með afbrigðum. Þá
eiginleika virðist hinn ungi Geir einnig
hafa erft í ríkum mæli, og eigi hafa þeir
rýmað af áratuga kynningu við þann Eng-
lending, sem bera mun með miklum heiðri
hið enska hefðarheiti, „Gentle“-maður. Er
hér átt við hinn kunna enska stórútgerðar-
mann Hellyer í Hull. Síðan 1924, hefur
Geir Zoega, annað hvort verið fastur starfs-
maður Hellyers hér, eða umboðsmaður
hans vegna margþættra viðskipta hans hér
á landi.
Af mimni Geirs Zoega, — svo og hins
kunna skipstjóra og útgerðarmanns
Tryggva Ófeigssonar, — hefi ég heyrt
ýmislegt óvenjulega stórbrotið og skemmti-
legt um þennan enska stórútgerðarmann.
Væri ómaksins vert að færa eitthvað af
því í letur, og væri margt af því harla
lærdómsrikt, eigi aðeins fyrir nýliða í
ísl. útgerðarmannastétt, heldur einnig fyrir
þá, sem þegar hafa hlotið nokkra reynslu
á þessu sviði.
Af því tilefni að Geir Zoega er nú ný-
kominn heim úr hundruðustu ferð sinni
yfir hafið, sem aðskilur Island eg önnur
lönd, bað ég þennan margfróða mann að
segja lesendum AKRANESS, eitthvað
skemmtilegt frá þessum ferðum, eða bregða
upp nokkrum leifturmyndum af því, sem
hann á geymt í minni sínu frá marghátt-
uðum störfum fyrir innlenda og erlenda
menn.
Örlítið um einstakar ferðir.
Fyrstu ferð sina til útlanda fór Geir
í ágústmánuði 1913, með Hjalta Jóns-
syni á togaranum April. En auk hans voru
þá farþegar með skipinu, Skúli í Aber-
deen og Þórður Flygenring.
Næstu ferð fór hann einnig með togar-
anum Apríl, en þá var hann að fara til
dvalar i Grimsby, en varð þegar að fara
heim aftur, vegna stríðsins 1914. Þegar
lagt var úr höfn í Englandi, urðu þeir
samskipa af stað, April og Skúli fógeti,
sem þá fórst í Norðursjónum þann sama
dag.
Þriðju ferðina fór Geir í nóvember 1915,
íi6
með Gullfossi, sem þá var 19 daga á leið-
inni til Kaupmannahafnar, með löngum
legrnn í Leirvík og viðar vegna stríðsins.
1 þessari ferð var með skipinu Konráð
Hjálmarsson, útgerðarmaður frá Norðfirði,
er sagði Geir frá því, að þarna væri hann
í sinni fimmtugustu ferð yfir hafið. Þetta
atvik varð einmitt til þess, að Geir afréð
Geir Zoega.
þá að hafa tölu á ferðum sínum. Oftast
hefur Geir farið þetta á litlu, gömlu tog-
urunum, enskum eða íslenskum, en einnig
með póstskipunum og nú upp á siðkastið
einnig fljúgandi. Aldrei hefur Geir verið
sjóveikur, þótt oft hafi þetta verið svaðil-
farir, hin mestu mannskaðaveður.
Einhverju sinni, fór hann út með Sel-
fossi, sem fór héðan 6. janúar. Þeir fengu
ágætt veður austur fyrir Eyjar, en úr
því eitt versta veður, er hann man eftir
á sjó. Selfoss fór vel í sjó, eins og öll gang-
treg^kip gera. Farmur skipsins þessa ferð
var eingöngu ísaður kassafiskur, sem ýmsir
áttu. Skipstjórinn var Ásgeir Jónasson, og
átti hann að fá „hatt“ sem kallað var, ef
farmurinn seldist fyrir 2000 £. Hvað sem
þvi leið langaði hann til að salan yrði
góð, vegna eigendanna, en ekki sízt vegna
félagsins sjálfs, því að áframhladandi fisk-
flutningar byggðust í bráð og lengd á sölu
fiskjarins. Þetta fór allt saman vel í þetta
sinn. Selfoss kom til Hull á 9. degi og
seldi það, sem þar var selt fyrir hvorki
meira né minna en 4000 £, en auk þess
var skipið með 250 kassa af hrognum,
sem sendir voru til London og seldir þar
fyrir gott verð.
Árið 1934 fór Geir Zoega til Norður-
Noregs ýmissa erinda, vegna umbjóð-
enda sinna í Englandi. Af þvi ferðalagi
hafði hann hina mestu ánægju, sérstaklega
af því að sjá hina dæmalausu hirðu hjá
Norskum sjó- og fiskimönnum. Telur Geir,
að Islendingar gætu margt lært af þeim.
Hellyer í Hafnarfirði.
1 marzmánuði 1924 kom Hellyer til
Hafnarfjarðar með 6 enska togara, til þess
að hafa þar bækistöðvar, og var samið
um þetta alveg sérstaklega við stjórn lands-
ins. Á öllum togurunum voru í fyrstu
enskir skipstjórar, hins vegar voru ráðnir
á þá ísl. flatningsmenn og svokallaðir flatn-
ingsformenn. En ekki leið á löngu, þar
til fjórir af þessum flatningsformönnum
voru orðnir fiskiskipstjórar á skipunum.
Þetta ár, og hið næsta, 1925, voru ákaf
íega mikil fiskiár, og bryggjupláss þvi
mjög takmarkað. Á vertíðunum var því
oft unnið dag og nótt, einnig alla helgi-
daga, nema rétt um messutímann. Þá var
ekki atvinnuleysi í Hafnarfirði.
Árið 1925 lánaði Hellyer bryggjufélag-
inu peninga til þess að stækka bryggjurnar
um rúmlega helming. Ætíð voru ísl. fiski-
skipstjórarnir á skipunum, og Jietta ár,
1925, byrjaði Tryggvi Öfeigsson sinn glæsi-
lega skipstjórnarferil, einmitt hjá Hellyer,
ng fékk, — þótt nýliði væri, — stærsta og
nýjasta togara Breta, Imperialist. Þannig
leizt Hellyer á þennan unga íslending, og
hefur þar ekki frekar en oft áður farið
villur vegar. Á þessu ágæta skipi var
Tryggvi þar til í nóvember 1929, er hann
tók Júpiter.
1 janúar 1925, keypti Hellyer hina svo
kölluðu Bookless-stöð í Hafnarfirði, sem
hann stækkaði þegar mikið og endurbætti,
og var þá langstærsta útgerðarstöð hér á
landi.
Þau sex ár, sem Hellyer gerði út hér á
landi, var Geir framkvæmdarstjóri hans
hér. Segir Geir, að þetta hafi verið mjög
ánægjulegur tími, vegna þess, hve mikið
var að gera og allt gekk vel. M. a. af því,
að alltaf var allt, sem þurfti, til á staðnum,
og fyrir þvi öllu séð af óvenjulegri þekk-
ingu og nákvæmni.
Meðan verið var að koma þessu öllu
fyrir, svo sem Hellyer vildi vera láta, var
hann hér i 8 mánuði, frá því í marz 1924,
til maíloka 1925, en þá tók bróðir hans
við, og var hér næstu 3 mánuði. Eftir
þetta komu þeir bræður hingað aldrei.
Hins vegar voru þeir sitt árið hvor með
lúðuleiðangrum sínum við Grænland. Þeir
kunnu betur við að fylgjast sjálfir með
slíkum byrjunarleiðöngrum á fjarlægum
miðum, heldur en að þurfa að byggja þar
eingöngu á frásögnum annarra.
Margt væri frásagnarverf um nákvæmni
Hellyers í smáu og stóru, t. d. um orð-
heldni hans og áreiðanleik. Gagnvart út-
gerð sinni í Hafnarfirði, lagði hann ríka
AKRANES