Akranes - 01.10.1952, Blaðsíða 29
Aflaskýrsla.
Aflaskýrsla Akranessbáta,
haustvertiö 1952, reknetaveiöi.
Dags. Bátanöfn Sjóferðir Samt. kg.
17/8 Aðalbjörg . . . 31 191,045
25/8 Ásbjörn •• 49 200,785
10/8 Ásmundur . . . 46 221,340
8/8 Bjami Jóhannesson . • 19 107,975
15/8 Böðvar • • • 35 194,990
n/8 Reynir • • • 37 221,340
6/9 Farsæll 22 ioi,455
20/7 Sæfari V. E. 104 ... 24 117,365
20/7 Fylkir ... 42 225,010
10/8 Heimaskagi • • • 37 282,765
27/7 Hrefna 40 219,760
7/8 Keilir . . . 42 224,955
13/8 Ölafur Magnússon • • • 34 201,555
10/8 Sigrún ... 38 213,390
10/8 Sigurfari • ■ • 39 198,410
1/8 Svanur ■ • ■ 44 293,655
7/8 Sveinn Guðmundsson ■ ■ 41 224,901
2/8 Aðkomubátar ... 17 154,585
Samtals kg. 35,952.85
Af sildveiðinni hefur farið til bræðslu i S. F. A.
10,971,05 kg. eða 8126,95 mál.
Afli togaranna.
Löndun á karfa á Akranesi frá 30/g—23/11.
Akurey: Bjarni Ólafsson:
Löndun: löndun:
30/9 323,985 kg. 30/9 321,715 kg.
9/io 319,350 — 8/10 294,930 —
21/10 324,940 — 19/10 280,040 —
1/11 230,650 — 24/10 172,860 —
8/11 202,550 — 5/11 281,700 —
21/11 273,830 — 15/n 292,395 — 23/11 246,420 —
1675,305 1890,060 kg.
Báðir togaramir sigldu á Þýzkalandsmarkað
i ágúst, en fengu lélegar sölur.
Mikil aðsókn að sjúkrahúsinu.
tJt litur fyrir að við höfum verið mjög heppin
í vali sjúkrahússlæknis. Þar hafa legið á annað
hundrað sjúklingar og þar hafa verið gerðir
stórir uppskurðir sem allir hafa tekizt mjög vel.
Hingað hefur fólk komið úr 13 sýslum og bæjar-
félögum viðsvegar að af landinu til hinna marg-
vislegustu aðgerða.
öll tæki eru ný og fyrsta flokks, allur aðbúnaður
ágætur og starfsfólk ágætt. Má þvi búast við vax-
andi aðsókn að þessu nýja sjúkrahúsi, þannig aB
þar verði fólk á biðlista sem á hinum stærri sjúkra
húsum landsins. Þrátt fyrir þessa miklu aðsókn
mun ganga erfiðlega að reka slikt hús sem þetta
hallalaust.
Vart mun það viturlegt
að hækka kaup þegar markaðir lokast, eða
þrengjast mjög fyrir aðal-útflutningsvöru þjóðar-
innar. Þar er ekki verið að hugsa um alþjóðar-
hag. Bændumir byrjuðu, og þvi telja einhverjir
að eftirleikurinn sé óvandari. Það gladdi mig þó
mnilega að heyra, að á þvi „bændaþingi“ hafi
verið skiptar skoðanir um nauðsyn og gagnsemi
sliks frumhlaups sem þar var samþ. Sæmra hefði
þeim verið að geyma sinn rétt og gera þar heldur
þessu líka yfirlýsingu: Við eigum rétinn, en mun-
um geyma okkur þann rétt til hækkunar, og nota
okkur hann þvi aðeins, að aðrir aðilar ríði á
vaðið. 1 þvi fólst mikill manndómur og það hefði
▼erið myndarlega gert, og til stórum meiri eftir-
breytni.
Elliheimilið Grund 30 ára.
Hinn 29. okt s.l. var Elliheimilið Grund í Rvík.
30 ára. Um það leyti eða nokkru fyrr tók það í
notkun nýja viðbyggingu við austur-álmu hússins,
sem er að stærð hvorki meira né minna en 2100
rúmmetrar. Kjallari, hæð, þar sem eru 10 tveggja
manna og sjö eins manns stofur fyrir vistmenn.
Á efstu hæðinni er samkomusalur, sem tekur
250—300 manns í sæti, en salinn á samhliða að
nota sem kirkju, en þar er stór kór sérstaklega
gerður við austurgafl.
Þessi viðbót mun kosta um 1500 þúsund krónur,
þar af lagði bæjarsjóður Reykjavikur 700 þús.
kr. en hitt hefur stofnunin sjálf séð um. Nú
eru á Grund rúmlega 300 vistmenn, og fá færri
rúm en vilja.
Hér var ekki ætlunin að skrifa langt mál um
Elliheimilið, ]iar sem það var nokkuð rækilega
gert hér í blaðinu áður. Siðan það var ritað hafa
þó margar endurbætur verið gerðar á húsi ofl.,
sérstaklega í sambandi við heilsugæzlu vistfólks-
ins, sem er orðin ótrúlega fjölþætt. Til þeirra
hluta hefur verið aflað allra hugsanlegra ný-
tizku tækja og hinar fullkomnustu aðferðir not-
aðar til þess að lækna vistfólkið og halda heilsu
þess við.
Allt ]ietta sýnir dugnað og hina dæmalausu ár-
vekni forsjórans, Gisla Sigurbjömssonar, fyrir
heill og hamingju gamla fólksins, sem auðvitað
er algert einsdæmi hér á landi, og ef til vill i
heiminum. Enda hafa útlendir menn staðið alveg
undrandi gagnvart byggingu, tækjum, rekstri og
reglusemi þeirri, sem einkennir allt starf þama
úti og inni. Ef öll sjúkrahús, opinberar og hálf-
opinberar stofnanir í landinu væm rekin með
samsvarandi atorku og einlægri viðleitni til þess
að ná sem fullkomnustum árangri, fjárhagslega
og félagslega, mundi margt vera á annan veg en
nú er í þjóðarbúskapnum.
1 sumar setti Gísli á fót útibú austur í Hvera-
gerði, sem Ámessýsla á, en hann rekur á vegum
Grundar samkv. samningum við sýsluna. Þar
er þegar auðséð — þótt stutt sé — að Gísli hefur
komið við sögu, og hann lætur áreiðanlega ekki
þar við sitja. Hveragerði mun fljótlega bera þess
merki að góður „gikkur" sé kominn í þá „veiði-
stöð.“
Þennan sama dag — 29. október — varð Gisli
45 ára. Þessi ungi maður hefur þegar unnið þrek-
virki, sem lengi mun halda nafni hans á lofti,
en illa þekki ég Gísla ef hann þykist þegar hafa
lokið dagsverki sinu. Hann á áreiðanlega eftir að
vinna mörg stórvirki enn til heilla sinum skjól-
stæðingum og til fyrirmyndar um einstaklings
og alþjóðar rekstur.
Ég óska honum og Grund til hamingju með
afmælin og óska þeim gæfu og gengis í bráð og
lengd.
Ól. B. Björnsson.
Einstaklingurinn og áfengismálin
Lítið kver með þessari yfirskrift er til sölu í
bókabúðinni hér og er nýkomið út. Það er eftir
Indriða Indriðason, verzlunarmann í Reykjavík.
Kaflafyrirsagnir þessa litla rits eru þessar: Ástand-
ið í dag, Þrenns konar viðhorf, Hinir ófélags-
bundnu reglumenn. Þeir sem neyta áfengis, Sjálf-
stætt fólk og lokaorð.
1 þessu riti er glögglega og með hófsemi og still-
ingu rætt um þetta mikla vandamál einstaklinga
og þjóða, en hér er sérstaklega rætt um okkur Is-
lendinga. Eru menn hvattir til þess að kaupa
þetta kver, sem og að taka virkan þátt í öllum
skynsamlegum ráðum til þess að minnka ofdrykkju
og hjálpa hinum mörgu, sem ánetjast, að losna
úr þessu hættulega neti.
‘Xaupmmn, kaupfclög!
Höfum jafnan fyrir-
liggjandi OP súkku-
laðikex, „Golden
Grain“ -heilhveitikex,
Cream Cracker, auk
ýmsra annarra teg-
unda. „Desert Goldu
döðlur í hentugum
cellófanpökkum o. fl.
V. SIGURÐSSON
& SNÆBJÖRNSSON H.F.
ASalstræti 4, Reykjavík.
ViÖ óskum öllum við-
skiptavinum nær og fjær
gtéÖilegra jóla og far-
sœls komandi drs, um
leið og við þökkum við-
skiptin á liðnum árum.
r
S. Arnason & Co.
tyerzlunin Brynfa
REYKJAVÍK.
AKRANES
f37