Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 3. APRlL 2004
Fréttir DV
Útgáfufélag:
Frétt ehf.
Útgefandi:
Gunnar Smári Egilsson
Rltstjóran
lllugi Jökulsson
Mikael Torfason
Fréttastjórar:
ReynirTraustason
Kristinn Hrafnsson
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn:
550 5020 - Fréttaskot 550 5090
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing-
an auglysingar@dv.is. - Dreifing:
- dreifing@dv.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagna-
bönkum án endurgjalds.
Hvað veist þú um
páskanafr
m
1. Hvað kallast sunnudag-
urinn á morgun?
2. Hvað kallast næsti
fimmtudagur?
3. Til minningar um hvað
héldu gyðingar upphaflega
páskahátíð?
4. Hvað eru margar vikur
milli páska og hvítasunnu?
5. Hvað ræður því hvaða
dag páskadagur er?
Svör neðst á síðunni
Dýrar kartöflur
Leiðarahöfundtlr Mirror
í Bretlandi undrast það
hve kartöflur hækka í.
verði við að þær séu
skornar
niður,
saltaðar og
settar í
poka. „Við getum keypt
kartöflu fyrír nokkur
pens en þegar henni er
breytt í flögur, fer verðið
upp úr öllu valdi,“ segir
Mirror. Svo hækkar
verðið enn meira þegar
flögupokar eru seldir á
kram. „Við vitum að
þetta er óhollt en okkur
virðist vera sama hvað
við borgum," segir blað-
ið.
Páskar
Orðið„páskar" er komið
úr arameísku og öðrum
tungumálum Miðaustur-
landa og þýðir einfald-
lega„páskalambið" sem
gyðingar neyttu á sinni
hátíð sem varð að hinum
kristnu páskum.
Gyðingar nota (á ensku)
orðið Passoveryfir sina
hátíð, sem þeir halda vita-
skuld ennþá hátíðlega, og
merkingin er komin frá
því að engill drottinsjór
framhjá" Lpassed over'j
dyrum gyðinga í Egypta-
landi þegar frumburðir
allra Egypta voru
drepnirí tilraun
til að fá gyðinga
lausa úr Egyptalandi.
Orðið„dym bilvika “ sem
notað er um dagana fyrir
páska mun vera dregið af
þvíað á páskum var sett-
ur trékólfur - svokallaður
„dymbill" - í kirkjuklukkur
til að gera hljóðið úrþeim
lágværara og sorglegra
en ella. Því þótt
boðskapur páskanna eigi
að heita gleðilegur hefur
löngum þótt við hæfi að
vera dapur þessa daga.
Málið
Svörvið spurningum:
1. Pálmasunnudagur - Z Skírdagur - 3.
Brottför þeirra frá Egyptalandi - 4. Sjö - 5.
Páskadagur er fyrsti sunnudagur eftir fyrsta
fulla tungl eftir vorjafndægur.
Skrautfjaðrirnar skornar af RÚV
Stjórnvöld í landinu verða að gera
einhverjar ráðstafanir til þess að
losa Ríkisútvarpið úr þeirri spenni-
treyju fjársveltis og stjórnsýsluvesens
sem plagað hefur stofnunina mörg
undanfarin ár.
Nii er Rfldsútvarpinu ætlað að skera nið-
ur kostnað um hundrað milljónir og í DV
í gær var skýrt frá því að meðal þeirra
þátta sem ættu að fjúka úr sjónvarpsdag-
skránni væru unglingaþátturínn At,
fréttaskýringaþátturinn í brennidepli og
ef til vilf Af fíngrum fram þar sem Jón
Ólafsson ræðir við tónlistarmenn. Nú
þegar hefur Pressukvöldið verið lagt af.
Ég hef ekki á hraðbergi neinar töfra-
lausnir á þeim vanda sem Rfldsútvarpið á
í. Vel er sennilegt að einhvers staðar í því
stóra bákni megi finna leiðir til hagræð-
ingar og sparnaðar sem ættu að liggja
beinna við heldur en að hætta útsending-
um á nokkrum af helstu skrautfjöðrum
stofnunarinnar.
En eftir mun sitja enn hærra hlutfall af
erlendu sjónvarpsefni, sem ekkert er at-
hugavert við að sé inn á milli innlendra
dagskrárliða, en beinlínis út í hött að
rfldsrekið sjónvarp sé nálega ékkert
nema erlent efni, nánast eins og sú vídeó-
leiga sem sumar aðrar sjónvarpsstöðvar
eru gjarnan gagnrýndar fyrir að vera.
Tilverugrundvöilur Ríkisútvarpsins, bæði
útvarps og sjónvarps, felst vitaskuld í
innlendri dagskrárgerð og svona aðfarir
duga einfaldlega ekki.
Olugt Jökulsson
Sönn íslnnsk sakamál
„[LJögreglan hafði nokkrar vonir
um að þáttagerðin gæti orðið tíl
að ýta við hinum seku og stuðla
að því að málið leystist Sam~
kvæmt greinfDVJ gekk það eftir.
Fyrst og fremst
EINKAVIDTAL DV við Jónínu Bald-
ursdóttur, sem birtist í blaðinu á
fimmtudaginn var, vakti mikla at-
hygli enda sagði hún þar
dramatíska og jafnvel átakanlega
sögu. Hún hafði um skeið búið með
einum af þeim, þremur mönnum
sem frömdu á sínum tíma hið svo-
kallaða Skeljungsrán árið 1995 og
hann sagði henni ffá hlut sínum að
ráninu, rétt eftir að það var framið.
Hún átti þá við peningavandræði að
stríða og þáði hluta af ránsfengnum
en hefur alla tíð síðan þjáðst af sam-
viskubiti vegna þess.
Nú er hún búin að segja lögregl-
unni sögu sína og sagði þjóðinni
hana í DV. Ljóst er að hún hefur ekki
auðgast þótt hún hafi látið freistast
til að þiggja fyrrnefndan hluta af
ránsfengnum. Og það er lögregl-
unni og yfirvöldum til sóma að hafa
í ljósi þess sem á undan er gengið
ákveðið að höfða ekki mál á hendur
henni.
Raunar er vafasamt - þótt við
eftirlátum þá spurningu öðrum -
hvort höfða eigi mál á hendur ræn-
ingjunum sjálfúm eftir öll þessi ár.
Einn þeirra virðist þegar hafa goldið
fyrir ránið með lífi sínu þar eð hann
mun hafa svipt sig lífi þegar hlutur
hans í ráninu var í þann veginn að
komast upp.
ATHYGLISVERÐUR VAR eftirfarandi
kafli í viðtalinu við Jónínu:
V, „Kveikjan að þessu [játningunni]
J var þátturinn Sönn íslensk sakamál
^ ífyrra. Það var nákvæmlega þá sem
c þetta gaus allt upp hjá mér og ég
S fann aðégþurfti að segja frá þessu. “
_ Á forsíðu var lagt út frá þessum
orðum hennar á
~ þessa leið: „Hún
tók ákvörðunina
« [um að ljóstra upp
\ um málið] eftir að
~ hafa horft á sjón-
„ varpsþátt Sigur-
- steins Mássonar,
~ Sönn íslensk saka-
*> ‘ mál.“
™ Hér var raunar ekki hárnákvæmt
£ farið með. Nafn Sigursteins er að
^ vísu og verður ævinlega mjög tengt
- fyrrnefndum sjónvarpsþáttum um
Z „sönn íslensk sakamái". Hann skrif-
aði handritið að fyrstu þáttaröðinni
~ og var l£ka þulur á svo eftirminnileg-
ai an hátt að þótt Sigursteinn hafi síð-
an ekki komið nálægt handritagerð í
frekari þáttum, þá hefur hann ætíð
verið fenginn til að lesa textann.
Handritið að þættinum ' um
Skeljungsmálið skrifaði hins vegar
Kjartan Björgvinsson og Sævar
Guðmundsson var leikstjóri. En
Sigursteinn las sem sagt textann.
Sigursteinn hafði getið sér gott orð
fyrir þætti um Geirfinnsmálið sem
mikla athygli vöktu á sínum tíma.
SÖNN ÍSLENSK SAKAMÁL voru all-
nokkur nýlunda á íslandi þegar
þættirnir hófu göngu sína, en hug-
myndina að þeim fékk Björn Brynj-
úlfur Björnsson og hefur hann
framleitt alla þá sextán þætti sem
þegar hafa verið gerðir og leikstýrt
mörgum þeirra. Allir þættirnir
nema einn hafa fjallað um mál sem
upplýst eru, og þátturinn um Skelj-
ungsránið sker sig því vandlega ffá
hinum. í þeim
þætti var auk ráns-
ins á peningunum
frá Skeljungi fjallað
um bíræfið banka-
rán sem framið var
sama ár í Búnaðar-
bankanum ’á Vest-
urgötu en þessi rán
áttu það sameigin-
legt að vera óvenjuvel skipulögð af
íslenskum ránum að vera.
Björn Brynjúlfur Björnsson sagði
í gær um þáttinn:
„Það athyglisverða við þáttinn
um Skeljungsránið er að það er eini
þátturinn í seríunni sem fjallar um
óupplýst mál. Þar var um tilraun að
ræða og lögreglan hafði nokkrar
vonir um að þáttagerðin gæti orðið
til að ýta við hinum seku og stuðla
að því að málið leystist. Samkvæmt
grein [DV7 gekk það eftir."
DV HEFUR RAUNAR heimildir fyrir
því að lögreglan hafi verið sannfærð
um að sömu mennirnir hafi staðið
bæði að Skeljungsráninu og Búnað-
arbankaráninu og vonir lögreglu-
manna um að sjónvarpsþátturinn
yrði til þess að málið leystist hafi
verið svo ríkar að lögreglan hafi
meira að segja fengið leyfi til að
hlera síma hjá þeim sem hún grun-
aði um báða verknaðina um það
leyti sem þátturinn var sýndur í
þeirri von að þeir hlypu beint í sím-
ann til að skeggræða efni þáttarins.
Ekki gekk það eftir þá en þó hef-
ur sem fýrr segir þátturinn greini-
lega orðið til þess á endanum að
málið leystist.
Kona Adams eða næturgrýla
Þegar flállað var í þessum dálld fýrir fáeinum dögum um þá mikilvægu spumingu hvort kettir séu nefiidir í Biblí-
unni, þá birtum við m.a. kafla úr enskri Biblíuþýðingu á Jesaja 34:14 sem hljóðaði svo:
„Wildcats and hyenas will hunt together / demons and devils dance through the night, / The night-demon Lflith,
evil and rapacious, / will establish permanent quarters."
Þama var hebreska orðið „tsijjim" þýtt sem „villikettir" og í fslensku BibKunni er orðið þýtt „urðarköttur" en eins
og sýnt var fram á er varla um neins konar kött að ræða heldur frekar einfaldlega „eyðimerkurdýr" af einhveiju tagL
En „næturdjöfullinn Lilith" sem sagt er frá í enska textanum er í fslensku þýðingunni „næturgrýla" og Gunnlaug-
ur A. Jónsson prófessor sem við leimöum til lét fylgja medálegar hugleiðingar um Lilith þessa sem við komum hér á
framfæri:
„Þess má geta til gamans að á einum staðnum þar sem hugtakið [urðarkötturj kemur fyrir (Jesaja 34:14) er einnig
aö finna hebreska nafiúð Lilit sem í gyðinglegri hefð er stundum sögð hafá verið fyrri kona Adams. Því hefur verið
haldið fram að í kvikmyndinni the Passion of the Christ sé hún fýrirmyndin að hinni sérkennilegu satanfaku vera í
myndinni
Þetta er eini staðurinn í Biblíunni þar sem Lilit er nefiid og hefur hún í íslenskum Biblíuþýðinguni gjaman verið
nefnd næturgrýla enda engan veginn ljóst að þama sé um sémafn að ræða."