Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 36
J6 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004
Sport DV
Neville segir
Arsenal-menn
hrædda
Gary Neville, bakvörður
Manchester United, segir
að leikmenn Arsenal séu
skíthræddir fyrir leikinn í
dag. „Þeir vita að við erum
eina liðið sem getur varist
þeim og síðan sött hratt á
þá. Þeir vita lika að við er-
um eina liðið sem getur
unnið þá," sagði Neville.
Hann sagðist jafnframt ekki
geta skrifað undir það ða
Arsenal væri besta lið Eng-
lands. „Þessi lið eru hníf-
jöfn.og það ríkir mikil virð-
ing þeirra á milli. Við höf-
um oft verið betri en eins
og staðan er í dag eru þeir
■Sbetri. Það gæti hæglega
breyst fljótlega."
Saha ekki
með í dag
Franski framherjinn
Louis Saha mun ekíd
leika með Manchester
United gegn Arsenal í
dag þar sem hann lék
með Fulham gegn
Cheltenham í þriðju
umferð bikarkeppn-
innar í janúar. Saha,
sem verið meiddur að
undanförnu, hleypti
nýju blóði í leik Man-
chester United gegn
Arsenal um síðustu
helgi og því er slæmt '
fyrir liðið að njóta ekki
krafta hans.
Erum stóru
strákarnir
PatrickVieira, fyrirliði
Arsenal, segir að þeir séu
stóru strákarnir í barátt-
unni við Manchester Uni-
ted. „Við erum líkamlega
sterkari en þeir og það þarf
ekki annað en að horfa á
f Sol Campbell til að sjá það.
Við erum grimmari en þeir
og með mann frammi,
Thierry Henry, sem getur
unnið leiki fyrir okkur upp
á sitt einsdæmi.
Svona
stilla liðin
líklega upp
Arsenal: Jens Leh-
mann; Lauren, Kolo
Toure, Sol Campbell,
Gael Clichy; Freddie
Ljungberg, Patrick Vi-
eira, Edu, Robert Pires;
Thierry Henry, Dennis
Bergkamp.
Man. Utd: Roy
Carroll; Gary Neville,
Wes Brown, Mikael
SOvestre, John O’Shea;
Cristiano Ronaldo, Roy
Keane, Nicky Butt, Ryan
Giggs; Paul Scholes,
- Ruud Van Nistelrooy.
Ryan Giggs, vængmaður Manchester United, upplifði eitt sitt stærsta augnablik á
knattspyrnuferlinum á Villa Park 14. apríl 1999. Þá skoraði hann sigurmarkið gegn
Arsenal í framlengingu í undanúrslitum bikarsins með stórkostlegum einleik.
Hann hefur verið gagnrýndur fyrir slaka frammistöðu í vetur en ætlar sér að slá á
þær í dag.
Stund sannleikans
Ryan Giggs hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu
sína með Manchester United í vetur og hafa margir gengið svo
langt að telja að hann muni yfirgefa félagið að loknu þessu
tímabili. Giggs upplifði augnablik ferils síns fyrir tæpum fimm
árum, gegn Arsenal á Villa Park.
Giggs mætir á nýjan leik í dag á
völlinn þar sem hann átti sína
sætustu stund sem knattspyrnu-
maður, gegn sama liði og þá og
markmið hans er að stoppa sigur-
göngu Arsenal og sýna öllum knatt-
spyrnuáhugamönnum að hann er
ekki dauður úr öllum æðum - stund
sannleikans er runnin upp.
Það var 14. apríl 1999 sem Ryan
Giggs sýndi aUri heimsbyggðinni
hvers hann er megnugur. Hann
skoraði þá mark sem var
skólabókardæmi fyrir alla þá
hæfileika sem hann hefur sem
knattspyrnumaður, mark sem átti
stóran þátt í því að Manchester
United vann hina eftirsóttu þrennu,
defid, bikar og meistaradeUd.
Sviðið var klárt
Það voru liðnar 108 mínútur af
stórkostlegum undanúrslitaleik
Manchester United og Arsenal, síð-
ari hálfleikur framlengingarinnar
var nýhafinn. David Beckham hafði
komið United yfir en Dennis
Bergkamp jafnaði metin fyrir
Arsenal. Hann lét síðan Peter
Schmeichel, markvörð United, verja
frá vítaspymu og sviðið var klárt
fyrir galdramanninn ffá Wales.
Giggs fékk boltann á sínum eigin
vaUarhelmingi, lék á helminginn af
Arsenal-liðinu áður en hann
þmmaði boltanum yfir vamar-
lausan David Seaman, markvörð
Arsenal, og í netið. Fögnuðurinn var
eftir því og það var ógleymanleg sjón
að sjá Giggs rífa sig úr peysunni og
hlaupa með hana töluverðan spotta.
Giggs sagði í samtali við enska
„Ég get ekki lýst því
hversu mikið okkur
langar til að vinna
þennan titiL"
fjölmiðla í gær að hann væri viss um
að þetta mark yrði sýnt þúsund
sinnum fyrir leikinn í dag.
„Mér er alveg sama um það því
þetta er besta mark sem ég hef
skorað. Ég geri mér hins vegar grein
fyrir því að þetta mark mun ekki
skipta nokkru einasta máli um
útkomuna í leiknum núna. Það er
langur tími liðinn frá þessum leik,
það eru nýir leikmenn í báðum
liðum og staðan er aUt önnur,” sagði
Giggs.
Skarplega athugað hjá honum
því fyrir fimm árum var Manchester
United á miklu skriði og kláruðu
tímabilið með glæsibrag. Nú er það
hins vegar Arsenal sem er í
forystusætinu, með sjö stiga forystu
á toppi ensku úrvalsdeUdarinnar, í
átta liða úrslitum meistaradeUdar-
innar og aðeins með Manchester
United í veginum fyrir þriðja
bikarmeistaratitlinum í röð.
Okkar úrslitaleikur
BikarmeistaratitUlinn er sá eini
sem Manchester United getur unnið
á þessu tímabUi og Giggs sagði að
það hjálpaði honum og félögum
sínum að það væri meira í húfi fyrir
þá en leUcmenn Arsenal.
„Ég get ekki lýst því hversu mikið
okkur langar tU að vinna þennan titU
því hann er sá eini sem við eigum
möguleUca á að vinna á þessu
tímabih. Þetta er okkar úrshtaleikur
en Arsenal á eftir mikið af svoleiðis
leikjum. Við verðum að klára
þennan leik því það bíður okkar ekki
annað tækifæri,” sagði Giggs.
Hann hefur verið harðlega
gagnrýndur í vetur en segist ætla að
sýna öUum hvers hann er megnugur
í leiknum. „Mér Uður vel í
stórleikjum og hef yfirleitt spUað vel
í þeim. Ég vona að það verði engin
breyting á.“ oskar@dv.is
Arsenal og Manchester United gætu bæði orðið án sinna bestu framherja í dag
Van Nistelrooy meiddur og Henry hvíldur
Svo gæti farið að bæði Arsenal og
Manchester United verði án sinna
bestu framherja í undanúrslitaleik
Uðanna í bikamum á VUla Park í dag.
Hollenski markahrókurinn
Ruud van Nistelrooy á við meiðsli
að stríða á hné og lék tíl að mynda
ekki þegar Holland og Frakkland
gerðu markalaust jafntefli í
vináttulandsleik á miðvikudaginn.
Það eru miklar efasemdir í
herbúðum Manchester United
hvort hann verði klár í leikinn sem
væri að sjálfsögðu mikið áfall fyrir
liðið en van Nistelrooy er
markahæsti leikmaður liðsins í
bikarnum með fjögur mörk. TU að
bæta gráu ofan á svart má
Frakkinn Louis Saha ekki spUa
með United í leiknum þar sem
hann hefur áður leikið með
Fulham í bikarnum.
Þrír framherjar klárir
Þar með eru aðeins þrír
ffamherjar eftir innan raða .ensku
meistaranna. Norðmaðurinn Ole
Gunnar Solskjær, sem er nýstiginn
upp úr löngum og erfiðum
meiðslum, Urúgvæinn Diego
Forlan, sem lék landsleik með
Úrúgvæum á miðvikudagskvöldið
og hinn ungi David BeUion en þessi
þrenning mun varla hræða líftóruna
úr varnarmönnum Arsenal.
íhugar að hvíla Henry
Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, íhugar að hvfia sinn
besta mann, franska framherjann
Thierry Henry, vegna mikfis leikja-
álags á næstunni. Hann leyfði Henry
að spila landsleik gegn Hollend-
ingum og sagðist ekki vita hvort
hann yrði nægUega ferskur tU að
spUa undanúrslitaleikinn í
bikarnum.
„Thierry stendur mér að
sjálfsögðu tll boða en ég hef ekki
ákveðið hvort ég læt hann byrja inn
á eða hef hann á bekknum. Við
spUum fjóra leiki á næstu sjö dögum
og ég er í erfiðari aðstöðu. Ég verð að
vega og meta þau verkefni sem eru
fyrir höndum hverju sinni því við
vUjum ná árangri alls staðar. Það er
markmiðið og vonandi finn ég rétta
lausn á þessu vandamáli. Það
jákvæða er að aUir leikmennimir,
sem spUuðu landsleiki í vikunni,
komu tíl baka í góðu formi, hefiir og
klárir í slaginn,” sagði Wenger.
Henry og van Nistelroy Verða hugsanlega
ekki íeidtínunni þegar Arsendal og Man. Utd.
mætastidag.