Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 34
1 34 LAUGARDAGUR 3. APRlL 2004 Sport BV ÍSJÓNVARPINU Man. Utd-Arsenal Styrjöld á Villa Park. Rifrildi, spörk, hrákar og kjaftshögg. Svo sannarlega einn með öllu. Allra síðasta tækifæri United að gera eitthvað í vetur. Ef þeir tapa má fasdega reikna með því að Sörinn snappi, spóli í Wenger og reyni * að rífa af honum hárkolluna. Ekki missa af þessum. Lau. Sýn 2 ki. 1 i.oo Það eru tveir forsetar á íslandi. forseti fslands og forseti Rokklands. LIÐIÐ MITT Sá er situr f seinna hásætinu er fafur Páll Gunnarsson, Skaga- laður með meiru. Hann fylgdist vel með knattspyrnu á sfnum yngri árum enda vart annað hægt er menn alast upp á Akranesi. Á unga aldri náði rokldð heljartökum á Ólafl, sem fyrir vikið hætti algjörlega að fylgjast með boltanum. Það horfir þó til betri vegar hjá kappanum, því hann er hægt og sígandi að setja sig inn í enska boltann á ný, en hann hefur skipt um félag. „Ég er gamall Liverpool-maður að upplagi og ég á gamla treyju frá félaginu sem ég eignaðist um svipað leyti og ég hættí að fylgjast með boltanum en hún er frá 1977 ef mig misminnir ekki,“ sagði útvarps- ftiaðurinn geðþekki. „Þetta er hvít silkiskyrta með fuglinum ffaman á. Svaka flott. Svo á ég reyndar líka NY Cosmos búning með 10 á bakinu en það var treyjan hans Pelé.“ Eins og áður segir er Óli að gera sig kláran í boltann á ný en hann er farinn að halda með nýju félagi. „Ég er eiginlega búinn að skipta yflr í Man. City. Gamli Skaga-þjálfarinn, George heitinn Kirby, var miídll vinur minn og fjölskyldunnar og spilaði með City í gamla daga. Svo em Oasis- bræður miklir City-menn, en þeir hafa átt pláss í mínu hjarta síðustu tíu ár, og “svo er Skagamaður-inn Árni Gautur farinn að spila með félaginu. Þannig að þetta er pottþétt félag fyrir mig,“ sagði Óli, sem játaði að hann fylgdist ekki með úrslitunum hjá félaginu en það væri farið að styttast í það. „Ég er að koma mér í gírinn. Ég er í startholunum. Þetta er ekki alveg inni í stundatöflunni hjá mér enn þá og ég veit eiginlega ekki einu sinni hvenær það er spilað," sagði Óli, sem fylgist samt grimmt með sínum mönnum í ÍA „Ég fer eins oft á völlinn og ég get. Ég fór meira að segja einu sinni alla leið til Akureyrar til að sjá leik. ÍA er bara annar hlutur hjá mér. Þetta em mínir menn og ég fylgi þeim í rauðan dauð- ann þótt ég hafi ekki mikið ■ gaman af fót- jjjSRSHR^K bolta." Tottenham-Chelsea Gleðipinnarnir í Chelsea verða í stuði. Enda laugardagsleikur, ekkert ferðalag og því nægur tími til að fara heim og „sjæna" sig fyrir kvöld á lffinu sem er ungum ríkum drengjum mjög mikilvægt. Spuming hvort þeir endi á Hverfisbarnum? Lau. Stöð 2 kl. i4.oo Sunderland-Millwall Sorgleg staðreynd fyrir enska knattspyrnu að annað þessara liða skuli spila í úrslitum bikarsins. Úffl Sun. Sýn ki. 12.00 Fulham-Birmingham þoa Morte er með böggum hildar eftir að stóri „ljóti" Dunc, eins og hann kallar Duncan Ferguson, komst upp með að kalla hann ljótum hlutum. Það var nú bara lognið á undan storminum því að þessu sinni lendir hann f klónum á villimanninum Robbie Savage. Middlesbrough-Bolton Fyrsta tækifæri Samma til að heftia fyrir „dómaraskandalinn“ í deildar- bikarnum. Forráðamenn Bolton óttast mjög að Sammi missi sig og hafa, öllum að óvörum, sett hann í áfengisbann. Verður áhugavert að sjá hvernig hann stýrir edrú. Newcastle-Everton St. James's Park titrar því stóri Dunc er á leiðinni. Hann hefur farið á kostum í vetur. Kallað blökkumenn öllum illum nöfnum og reynt að drepa Þjóðverja. Því verður spennandi að sjá hverju hann bryddar upp á að þessu sinni. Wolves-Southampton Jói Kalli mætir til leiks fullur sjálfs- trausts eftir að hafa brillerað með landsliðinu í Tirana. Er líklegur til þess að slá met í pylsuáti í stúkunni. Aston Villa-Man. City Hvað gerist þegar tveir mis- heppnaðir stjórar mætast? Ýmist í ökkla eða eyra hjá báðum og ef það var einhvern tímann til þrítryggður leikur þá er það þessi. Liverpool-Blackburn Tvö lið með frábæra leikmenn sem geta ekki spilað saman einhverra hluta vegna. Greinilegt að fram- kvæmdastjóraskólinn hjá Liverpool er í „háum“ standard því ekki hefur Souness gert neina hluti síðan hann hætti með liðið og ekki þarf að fara mörgum orðum um störf Gerards Houllier. Skipti yfir í Man. City BOLTINN EFTIRVINNU Allt að verða vitlaust í fjölskyldudeilunni hjá Wayne Rooney Feöun munu boxu Það á ekki af aumingja Wayne Rooney að ganga. Það er ekki nóg með að foreldrar hans séu sífellt að verða honum til skammar, og hafl slegist við tilvonandi tengda- foreldra hans í afmæli unnustu hans á dögunum, heldur hefur faðir hans skorað á tilvonandi tengda- pabba Rooneys í boxbardaga. Áskoruninni hefur verið tekið. Faðir Rooneys heitir einnig Wayne og er 39 ára. Tilvonandi tengda- pabbinn heitir Antony McCloughlin en þeir eru báðir fyrrverandi hnefa- leikakappar og kunna því ýmislegt fyrir sér í hringnum. Sögusagnir segja að það hreinlega rjúki úr hausnum á Wayne eldri þessa dagana. Eiginkonur þeirra slógust með látum í afmæli Colleen McCloughlin á dögunum en Wayne yngri hyggst giftast henni í sumar. Sá eldri ætíar að berja McCloughlin í buff er þeir mætast í liringnum. Spýtir blóði „Wayne eldri spýtir blóði þessa dagana," sagði vinur fjölskyldunnar. „Hann segir að Anthony hafi kýlt sig tvisvar í andlitið í afmælinu. Hann vffl gera út um málið á gamla mátann - í hringnum. Þeir vita hvað þeir eru að gera en þetta verður ekki fallegt. „ Báðar fjölskyldurnar eru frá Liverpool-borg en þar er hefð fyrir því að menn geri út um deilumál í hringnum. Þegar bardaganum er lokið er málið sfðan aldrei rætt aftur. „Það er löng hefð fyrir þessum bar- dögum. Með því að berjast geta karl- menn gert út um málin á heiðarlegan og karlmann- legan hátt. Það eru engin vopn notuð og menn ræða málið aldrei aftur að loknum bardaganum." „Wayne eldrí spýtir blóði þessa dagana. Hann segir að Anthony hafí kýlt sig tvisvar i andlitið í afmælinu. Hann vill gera út um málið á gamla mátann - í hríngnum. Þeir vita hvað þeir eru að gera en þetta verður ekki fallegt." Vonandi verður friður Ástæðan fyrir því að þeir hafa ákveðið að berjast er svo það fáist einhver friður á mffli fjölskyldnanna sem eðli málsins m samkvæmt þurfa að umgangast hvort annað nokkuð eftir að Wayne yngri og Colleen hafa gift sig. „Vonandi verður síðan friður í brúðkaupinu í sumar en ég er ekki viss um það,“ sagði fjölskyldu- vinurinn málglaði. Bardaginn verður háður síðar í þessum mánuði í íþróttahöll Evertori. Við munum að sjálfsögðu flytja ykkur fréttir af honum. Rooney grét Annars er það að ffétta af Rooney að hann átti mjög erfitt uppdráttar í undirbúningi enska landsliðsins fyrir leikinn gegn Svíum sem fram fór r' vikunni. Unnusta hans var með böggum hildar eftir að allt hafði farið til fjandans í afmælinu hennar og Rooney játaði að hafa grátið mikið með henni r' gegnum símann næstu daga á eftir. £ REMBINGURINN Danny Murphy hefur látið meira aje til sín taka á X^JÍSM „vellinum" vi. heima hjá sér vetur en á Anfield j Road. Svo slakur; hefur folinn verið í vetur að sumir stuðningsmanna Liverpool vilja hann burt frá félaginu. DV setti sig í samband við tvo menn sem líta málið ekki beint sömu augum. Burt með Murphy „Hann er búinn að vera arfa- slakur í ár, sem kemur á óvart því hann var svo sprækur r' fyrra," sagði gamla spjótkastskempan Sigmar Vilhjálmsson. „Einbeitingin er eitthvað farin hjá honum og hann er farinn að minna á David James þegar hann var upp á sitt besta r' tölvuleikjunum. Murphy hefur samt vinninginn því hann eyðir tímanum heima r' eitthvað skemmtilegra en James. Ég held við verðum að losa okkur við kappann. Liver- pool ætti að rhuga tilboðið frá Luton r' hann. Igor Biscan getur svo farið með r'kaupbæti ogjafn- vel Houllier lrka,“ sagði Sigmar, sem á samt ekki von á því að fá ósk sfna uppfyllta. Losa sig við konuna „Ég er langt frá þvr' að vera sammála Simma. Hann veit ekkert hvað hann er að tala um. Auðvitað á Murphy að vera áffam hjá félaginu," sagði glókollurinn Jóhannes Ásbjörnsson sem stýrir Idol- Stjörnuleit með gamla spjótkastar- anum. „Hann átti gríðarlega gott tímabil r' fyrra. Hann hefur verið ffekar dapur r' ár en móralskt séð er hann liðinu mjög mikilvægur. Þar að auki er hann góður leikmaður og á eftir að rrfa sig upp,“ sagði Jói, sem vffl að Murphy losi sig við konuna þar sem hún taki allt of mikla orku frá honum. „Ef staðreyndin er sú að hún er að draga úr honum orkuna er alveg klárt að hann verður að losa sig við hana. Annars hef ég engar áhyggjur af stráknum. Hann er í lægð og á eftir að koma sterkur upp aftur. Sjáið bara tfi." Rafmagnsgítar magnari poki, ól- snúra -stillir og auka strengjasett. Söngkerfi frá 59.900,- Trommusett frá 49.900,- stgr Gítarinn ehf. Stórhöfða 27, sími 552-2125 www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is '★★★★★★★★★★★★☆★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★☆★★★★★☆★★★★★★★ Rafmagnsgítarsett 29.900,- stgr. *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.