Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 Fókus BV ♦ DV varpar hér upp hugmynd að nýrri íslenskri kvikmynd og gott betur - útfærir hana svo hægt sé að vinda sér í verkið. Þess eru dæmi að íslenskar kvikmyndir hafi byggt á sannsögulegum atburðum: Agn- es og Svo á himni. En ekki er um auðugan garð að gresja þegar kemur að samtímaviðburðum. Hver vill ekki sjá á hvíta tjaldinu söguna um afdrifaríka för Vaidasar Jucivicius til íslands? Vaidas Jucivicius Ingvar E. Sigurðsson Heiðveig Þráinsdóttir Elma Lísa er módel líkt og Heiðveig og á auð- velt með að setja sig f hennar spor. Elma Lísa á einnig frægan kærasta Ifkt og Heiðveig sem er kvikmyndagerðarmaðurinn Reynir Lyng- dal. Menn kannast reyndar ekki við það að Reynir hafi lent í einhverju misjöfnu en vfst er að Elma Lfsa þarf örugglega oft að fyrirgefa Reyni þegar hann kemur heim seint og um sfðir eftir að hafa snúið plötum með Jóa vini sfnum Bé f diskótekaradúettinum Gullfoss og Geysir. Ingvar hefur áður leikið menn af sla- venskum uppruna. Margir muna af- bragðs frammistöðu hans sem foringi rússnesku sjómannanna f mynd Óskars Jónassonar um Perlur og svín. Enginn ef- ast um hæfileika Ingvars auk þess sem hin meðfæddu háu kinnbein munu auka á trúverðugleika hans sem Litháa. Jónas er stór, Stefán er stuttur. En það skiptir ekki máli. Bestu kvikmyndaleikar- ar sögunnar, De Niro, Pacino og Dustin Hoffman, jaðra allir við að vera dvergar. En á hvíta tjaldinu eru þeir risar, líkt og Stefán verður þegar hann túlkar Jónas. DV bindur við það vonir að þarna muni Stefán toppa frammistöðu sína frá þvf að brillera í hlutverki Erlings, en undirbún- ingur fyrir það hlutverk gæti einmitt gagnast honum vel í tengslum við undir- búning þessarar myndar. ArnarJensson (raun og veru kemur enginn annar en Þórir til greina þegar hlutverk Amars Jenssonar er annars vegar. Þórir er, Ifkt og Arnar, fjall- myndarlegur. Og svo það sem fellur alveg eins og flís við rass - Þórir er, auk þess að vera þaulreyndur leikari, rannsóknarlögreglumað- ur líkt og Arnar. Hvað vilja menn hafa það betra? Þórir Steingrímsson |\ Grétar Sigurðarson Ólafur Darri Ólafsson Fáir ef nokkrir fara betur með hlutverk manna sem verða fórnarlömb aðstæðn- anna. Ólafur Darri hefur til að bera þenn- an trega f augunum, þennan þunglyndis- lega tón, sem höfðar svo vel til fslend- inga. Ólafur Darri er einnig kraftalega vaxinn líkt og Grétar og því færi hann til að mynda létt með að koma líki Vaidasar fyrir f jeppanum á meðan Egill Heiðar Anton Pálsson og Friðrik Friðriksson flækjast fyrir Ifkt og hverjir aðrir aum- ingjar. Tomas Malakauskas Egill HeiðarAnton Pálsson Consalves da Silva Gfsli Pétur er kjörinn í hlutverk kafarans. Ekki aðeins að Gfsli Pétur sé hinn kafaralegasti þá vill svo vel til að faðir hans er einmitt kafari. Gísli Pétur þekkir þvf vel til starfans. Þá er hann einnig afar líkur Grétari sem gæti gefið skáldinu Ævari Erni byr undir báða vængi með óvæntri fléttu. Og... ef Ólafur Darri for- fallast gæti Gfsli Pétur hlaupið f skarðið og leikið Grétar. Þarna ráða þvf bæði sjónarmið sem snúa að margsnúinni fléttu sem og praktfsk sjónarmið. Gisli Pétur Hinriksson Enginn veit hver Egill Heiðar Anton Pálsson er fremur en Tomas Mala- kauskas, sem gerir Egil Heiðar kjör- inn til að takast á við hlutverk huldu- mannsins. Egill Heiðar Anton er Ifk- lega þekktastur fyrir það að vera kærasti Margrétar Vilhjálmsdóttur ieikkonu, en hún fær þvf miður ekki hlutverk f þessari stórmynd. Annar góður kostur við Egil Heiðar Anton er sá að hann á þetta volduga nafn sem mun örugglega selja f útlöndum. Maðurinn sem stakk Grétar Hér koma ýmsir til greina og f raun frjálst val þvf engin lýsing á manninum liggur fyrir. Því er alveg tilvalið að kalla tll Magnús Ólafsson en eins og menn vita er ekki hægt að gera kvikmynd á fslandi án þess að hann leiki f henni. Magnús Ólafsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.