Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 46
446 LAUGARDAGUR 3. APRtL 2004 Síðast en ekki síst DV Rétta myndin Útsala í Perlunni. Nýi boltadrengurinn hans Gaupa Ha? Þeir sem fylgjast með íþróttum á sjónvarpsstöðinni Sýn hafa fengið nýja „rödd“ sem leiðir þá í allan sann- leika um hvað er á dagskrá. DV hefur fýlgst grannt með þessu máli en fyrir var Magnús Ragnarsson. En eins góðri röddu og Magnús státar af þótti vitaskuld ekki við hæfi að hann væri að kynna prógrammið á Sýn eftir að hafa tekið við framkvæmdastjórn á Skjá einum. (Ef til vill hefur sá starfi, að lesa upp dagskrárkynningar á Sýn, orðið til að vekja sérstaklega áhuga hans á bolt- anum en hans fyrsta verk á Skjá ein- um var jú að stela enska boltanum frá íslenska útvarpsfélaginu.) Sá sem tekið hefur við af Magnúsi sem rödd Sýnar er einnig leikari líkt og Magnús auk þess sem hann er poppsöngvari. Þetta er Guðmundur Ingi Þorvalds- son og er nú til reynslu. Íþíóttafrétta- maðurinn Guðjón Guðmundsson, Gaupi, er að sögn hæstánægður með hinn nýja liðsmann sjónvarpsstöðv- arinnar og svo ánægður að gárung- arnir á Lynghálsi kalla hann nú nýja boltadrenginn hans Gaupa. Guðmundur Ingi Þorvaldsson Hin nýja rödd Sýnar. Hann þykir standa sig vel enernú til reynslu. Allt bendir til þess að hann verði áfram þvi að sögn er Gaupi afskaplega ánægð- ur með hina nýju rödd. Síðast en ekki síst • Margir hafa verið hugsandi yfir því hvernig Helgi Magnússon for- stjóri Hörpu-Sjafnar gat dregið ff am níu milljarða króna til að kaupa stóran hlut í ís- landsbanka á dögun- um. Helgi neitaði því í samtah við DV að um nokkuð plott væri *^&ð ræða og að síðar kæmi í ljós hverjir kæmu að ijárfestingunni með honum. En spurningin um það hvernig hann fór að þessu stendur enn opin. Svarið gæti ver- ið að finna á síðu 25 í Morgun- blaðinu í gær. Þar sýnir málningar- fýrirtækið Harpa-Sjöfn málningar- rúllu sem málar fimmþúsundkalla. Þetta er málið, segja menn. Helgi hefur einfaldlega málað mu millj- arða fyrir íslandsbanka með pen- ingarúllu... • Annars er ýmislegt athyglisvert í Mogga gærdagsins ef vel er að gáð. Þannig kemur sjálfur Víkveiji úr skápnum og upplýsir að langþráð- ♦ur draumur sinn hafi ræst. Víkverji er sem sagt kominn í kommúnu! Má þetta vera til marks um að allt er í heiminum hverfult. Það er opinbert leyndarmál að menn úr innsta hring ritstjórnar rita fyrir hönd Víkverja og hafa þannig fengið útrás fyrir margvíslega gremju srna sem neytendur í ís- lensku samfélagi og ábyrgir, borg- aralegir þegnar þessa lands. Spennandi verður að fýlgjast með ævintýrum Vikverja í kommún- unm en þetta mega heita fullkom- in umskipti... w • Haukur Heiðarsson og Sveinn Baldursson heita menn sem eru í forsvari fýrir fyrirtækið Landmat. Fyrirtæki þeirra hefur verið að gera sérdeilis góða hluti á erlendum mörkuðum í tengslum við búnað í farsíma. Þeir eru í nánu samstarfi við Nokia-risann. Land- mat er eitt fárra fyrir- tækja sem lifði af hugbúnaðarkrepp- una sem menn sjá nú fyrir sér að *sé að dvína. Sá sem er yfir sölumálum þeirra Hauks og Sveins er enginn ann- ar en gamli hugbún- aðarrefurinn Eyþór Amalds. Hann finnur sér tíma til að koma r . Frábær frammistaða hjá Davið Oddssyni forsætisráðherra íaprllgabbi Ríkissjón- varpsins. Þar sýndi forsætisráðherra hvers hann er megnugur þegar mikið liggur við. Snilldartaktar. Svehileysi vegna Deep Purple Biðröð myndaðist á göngum Kringlunnar í gærmorgun og vissi starfsfólk verslana ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar það mætti til vinnu. Biðröðin teygði sig frá Hard Rock og alla leið út í verslunina 17. Þarna var fólk sem vaknað hafði fyrir allar aldir til að krækja sér í síðustu miðana á tónleika Deep Purple sem fyrirhugaðir eru í Laugardalshöll í lokjúní. Tónleikahaldarar hafa ekki verið í neinum vandræðum með að selja miðana á tónleika Deep Purple en hljómsveitin var upp á sitt besta skömmu efth eldgosið í Vestmanna- eyjum. Varla þurfti að auglýsa tón- leikana því miðarnir seldust af sjálfu sér. Athyglisvert þótti að í biðröðinni löngu í Kringlunni var fólk á öllum aldri. Sumir með bjór, aðrir með far- tölvur. Deep Purple er í stöðugum tón- leikaferðalögum og er þessa dagana í Kína. Til íslands kemur hljómsveitin beint af tónleikum í Vín og Zagreb og tveimur dögum eftir Laugardals- hallarævintýrið 24. júm' er það Istan- búl í Tyrklandi. Og alls staðar stend- ur fólk í biðröðum eftir miðum. Biðröðin í Kringlunni Deep Purple núi Kina og kemur hingað frá Vín og Zagreb á leið til Istanbúl. fyrirtaks varningi á framfæri við þakkláta heimsbyggðina miRi þess sem hann sækir að Bjama Hauki Þórssyni og þeim í fýrirtækinu Lífsstfl sem skulda honum fúlgur • Félagarnir Ingi Hrafii Jónsson, Júlíus Hafstein og Hallur Hallsson halda sínu striki í útvarpsþættin- um Hrafnaþingi á Sögu. Þeir gerast æ sérkennilegri og ofsafengnari í mál- flutningi sínum svo þykir á tíðum sem þeir séu að fara fram af brún- inni í hinu villta hægri. Þegar þeir komast á flug eru þeir kostulegir. Þannig eru þeir á því að mennta- málaráðherra vor, frú Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sé enn einn vargur í véum - kommúnisti - en þá einkunn fær hún hjá þeim félögum fyrir að samþykkja leyfi RÚV til að hækka afnotagjöld sín... • Fataffömuðurinn og Ustunn- andinn Sævar Karl heldur sínu striki og sýnir verk snjaUra Usta- manna. Og nú hefur honum tekist vel að sameina þessi hugðarefni sín því nú sýnir hjá honum HaU- dóra Emilsdóttir listakona afar skemmtíleg verk sem hún málar á plexígler. En HaUdóra er líklega þekktust fyrir sínar Ustrænu og fögru húfur sem hún hefur nú heklað í um tólf ára skeið og selur í versluninni Nælon og Jarðarber. Nú er spumingin hvort Sævar tekur | gjald fyrir að ljá búð- ina/galleríið sitt undir verk eftir Halldóm eða að hann fari að annast húfusölu fyrir I Halldóm upp á hlut... Veðrið *á £y Gola +6 m +8 Nokkur vindur ** +f0 Nokkur Nokkur vindur vindur +6 *é Gola * é - V j.Q Nokkur vindur ■* * Strekkingur +6CS\ +0 * * Gola é é Strekkingur rQ +7 •* Strekkingur +7 ** é é Strekkingur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.