Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 Fréttir DV Olíufélögin auka verð- bólgu Stóru olíufélögin hækk- uðu eldsneytisverð í gær- dag og reikna má með að hækkunin haft áhrif til hækkunar vísitölu neyslu- verðs um u.þ.b. 0,15%. Greiningardeild íslands- banka Qallar um þessa hækkun og áhrif hennar á vefsíðu sinni. Gangi spáin eftir mun verðbólga reynast 2,0% í apríl og eykst frá 1,8% í mars. Peningar fyrir tonlist- armenn Ríkisstjórnin sam- þykkti í gær að leggja ffam frumvarp um tón- listarsjóð til að efla ís- lenska tónlist og kynna íslenska tónlistarmenn. Sjóðnum verður skipt í tónlistardeild sem á að styðja tónlistarmenn, hljómsveitir, kóra og tónlistarhátíðir og hins vegar markaðs- og kynn- ingardeild sem á að veita styrki til að kynna og markaðssetja tónlist á ís- landi og í útlöndum. Datt í lukku- pottinn Bandarískur vörubíl- stjóri datt heldur betur í lukkupottinn í vikunni þeg- ar hann vann í lottó- inu í Virginíu í Bandaríkjunum. Potturinn var hvorki meira jié minna en 1,6 milljarður króna og er sá annar stærsti í sögu lottósins í Bandaríkjunum. J.R. Trip- lett tók tíðindum með ró og beið í sex vikur með að ná í vinninginn. „Ég var furðu róleguryfir þessu," sagði Triplett við fjölmiðla vestra en eiginkona hans sagðist ætla að gera stórinnkaup. Hjónakornin ætla síðan að fjárfesta f fasteignum. Skýrsla Ríkisendurskoðunar um lyfjakostnað sýnir að í samanburði við hin Norð- urlöndin greiðum við 46% meira fýrir lyf Hægt vaipi ao spara 4,4 milljarða króna f nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um lyfjakostnað hér á landi kemur fram að í fýrra nam lyfjakostnaður hér á landi um 14 milljörðum kr. með virðisaukaskatti. Ef hver íslendingur hefði greitt jafnmikið fýrir lyf og Danir og Norðmenn gerðu að meðal- tali þetta ár hefði þessi kostnaður orðið 4,4 milljörðum kr. lægri. Á undanfömum árum hefur lyfjaneysla fslendinga aukist mikið. Hlutfallslega hefur lyfjakostnaður þó aukist enn meir. í skýrslu Ríkis- endurskoðunar er m.a. leitast við að skýra þann mikla mun sem fram kemur og settar fram ábendingar um það hvernig draga megi úr kostnaði vegna lyfjakaupa og stuðla að skynsamlegri lyfjanotkun. Lyfjaverð hér á landi tekur að stærstum hluta mið af lyfjaverði í Danmörku og Noregi. Samanburð- ur Rfldsendurskoðunar við þessi lönd vegna ársins 2003 leiðir í ljós að þá greiddu íslendingar að með- altali 46% meira fýrir lyf en þessar þjóðir þrátt fyrir heldur minni lyfjanotkun, Rfldsendurskoðun bendir á að þessi munur skýrist fyrst og fremst af tveimur álíka veigamiklum þátt- um. Annars vegar noti íslendingar verulega minna af ódýrum sam- heitalyfjum en Danir og Norðmenn sem á allra síðustu árum hafa auk- ið mjög sölu slíkra lyfja. Hins vegar sé kostnaður við að dreifa lyfjum og selja meiri hér á landi en í hinum löndunum, m.a. vegna smæðar markaðarins, lítillar veltu margra lyfja, kostnaðar við að merkja lyf á íslensku og þess að apótek eru hlut- fallslega fleiri hér en þar. samanbor- ið við 37% mun árið 2002. - S&Oá-'Íp; Æ Ábendingar f skýrslu sinni setur Rfldsendur- skoðun fram margvíslegar ábendingar um það hvernig - stjómvöld, lyfjafyrirtæki og lækncu geti dregið úr lyfjakostnaði hér á ? landi. ÞcU er brýnast að tryggja að framboð og verð ódýrra samheita- ly^a sé sambærilegt við það sem tíðkast í ná- grannalöndum okkar. Til þess að stuðla að lægra lyfjaverði mætti m.a. grípa til eftirfarandi ráðstafana: Breyta greiðsluþátttöku sjúkratrygginga þannig að hún Sigurður Þórðarson forstjóri Rfk- isendurskoðunnar Ýmislegt hægt að gera til að spara lyfja- kostnað. 1.4*, miðist almennt við lægsta lyfjaverð í samanburðar- löndunum að teknu tilliti til eðli- legrar álagningar. Hvetja sjúkrahús og aðrar heilbrigðisstofnanir til að notast við lyfjalista, þar sem reynt er að tryggja hagstæðustu lyfja- notkun, og fylgjast betur með því að læknar ávísi jafnan á ódýrasta sam- bærilega lyfið þegar það á við. Þá þyrfti að endurskoða heimil- aða álagningu bæði í heild- og smásölu þannig að hún hvetji til sölu á ódýrum lyijum. Einnig þyrftu stjórnvöld í samstarfi við lyfjafyrirtækin að kanna hvernig hagræða megi og draga úr kostnaði við dreifingu og sölu lyíja. Fengu staðfestingu á hóflegum hagnaði Lyfjahópur fagnar úttekt Lyfjahópur FÍS - Félags ís- lenskra stórkaupmanna - fagnar vandaðri úttekt Ríkisendurskoðun- ar á lyfjakostnaði; notkun, verði og framboði lydja á íslandi. Þetta kem- ur fram í tilkynningu frá hópnum. „Mikilvægt er að í skýrslunni er staðfest að afkoma fyrirtækja í lyfjaheildsölu bendi ekki til þess að hagnaður þeirra sé óeðlilega mikill. Álagning lyfjaheildsala er heldur ekki gagnrýnd sérstaklega, en því er hins vegar haldið fram að þær regl- ur, sem opinberir aðilar hafa sett um álagningu, hvetji ekki til kaupa á ódýrustu lyfjum," segir m.a. í til- kynningunni. Lyfjahópur FÍS tekur undir það að kostnaður við að setja lyf á ís- lenskan markað er tiltölulega hár. Lyfjaheildsalar á íslandi gegna mildu víðtækara hlutverki heldur en heildsalar annars staðar á Norð- urlöndum, þar sem þeir annast m.a. skráningu, merkingu og pökk- un á vörunni, sem framleiðendur gera víðast í stærri löndum. Hægt er að einfalda og spara í opinbera kerfinu eins og Rfldsend- urskoðun bendir á, en varast ber að draga úr merkingum og leiðbein- ingum til sjúklinga. f gildandi regl- um á Evrópska efhahagssvæðinu eru skýr fyrirmæli um merkingar, sem vandséð er hvernig hægt er að sniðganga, enda er skylt í því efni að hafa hagsmuni sjúklinga í fyrir- rúmi. karla i knattspyrnu. Logi Ólafsson erhúmoristi af guös náðs og mikill gleðimaö- ur. Menn koma ekki að tómum kofanum hjá Loga sem þykir bæði hörkuduglegur og skipu- lagöur í störfum. Hann er frá- bær knattspyrnuþjálfari. Logi hefur veriö vanmetinn því góður árangur landsliðsins er ekki slst honum að þakka. Forseti Palestínumanna hvergi banginn Sharon hótar að myrða Arafat Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, hótaði í gær að fyrirskipa af- töku Yassers Arafat, forseta Palest- ínumanna. Sharon viðhafði sams- konar hótun gagnvart sheik Hassan Nasrallah, leiðtoga Hizbollah- skæruliða. Hótanirnar bar forsætis- ráðherra fram í viðtali við dagblaðið Haaretz og sagði hvorugan manninn geta verið öruggan um líf sitt. „Ég myndi ekki mæla með því við nokk- urt tryggingafyrirtæki að selja þeim líftryggingu/1 er haft eftir forsætis- ráðherra. „Hver sá sem drepur gyðing, slas- ar ísraelskan borgara eða fær annan mann til að drepa gyðing hefur fyrir- gert réttinum til lífs," sagði Sharon. Arafat mun hafa brugðist við með orðunum: „Sharon hefur reynt að myrða mig þrettán sinnum en aldrei tekist. Ég er ekki auðvelt skotmark." Saeb Erekat, ráðherra í stjórn Palestfnu, segir að verði Arafat myrt- ur muni það hafa í för með sér Yasser Arafat. Ariel Sharon. ringulreið, öfgar og stjórnleysi á her- teknu svæðunum á Vesturbakkan- um og í Gaza. ísraelsmenn tóku fyrir stuttu Ah- medYassin, andlegan leiðtoga Ham- as, af lífi. Hamas hótaði blóðugum hefndum gagnvart ísrael. Staða Ariels Sharon þykir hafa veikst vegna áætlana sinna um að flytja Gyðinga frá Gaza og vegna yfirvofandi ákæru þar sem honum er gefið að sök að hafa þegið mútur. Hjörtur Magni Jóhannsson Hefur ekki digran rikissjóð til að vaða í. Prestur leiður yfir vanskilatilkynningu Bankinn gerði mistök „Það voru mistök bankans að senda út þessa kröfu," segir Séra Hjörtur Magni Jóhannsson um van- skilatilkynningu sem send var frá Landsbankanum til safriaðarmeð- lima Frfldrkjunnar en þetta var gert til að fýlgja eftir loforði um 2.500 króna fjárstuðning til kirkjunnar. „Við höf- um sent öllum þeim sem fengu slíka kröfu afsökunarbeiðni," segir Hjörtur og bætir við að þessi beiðni um sam- skot hafi verið vegna útgáfu á veglegu hátíðarriti til að minnast hundrað ára afmælis Frfldrkjunnar. „Við verðum að fara þessa leið því að við getum ekki sótt í digra sjóði eins og Þjóð- kirkjan." Hjörtur Magni hefúr gagmýnt harðlega afar ójafna stöðu trúfélaganna gagnvart opinberum sjóðum. „Ég hef bent á það að þjóð- kirkjan fær á árí hverju einn og hálfan milljarð króna umfram önnur trúfé- lög sem notaður er í daglegan rekstur, krkjubyggingar og ýmsa starfsemi." Frfldrkjan reiðir sig mjög á frjáls framlög enda hefúr kirkjan þá sér- stöðu að taka ekki gjald fyrir ýmsa kirkjulega þjónustu. Þannig er í Frí- kirkjunni ekkert gjald innheimt fyrir fermingar, skímir og giftingar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.