Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 Fréttlr DV Ruslana treður upp á fslandi Úkraínska rokkstjaman Ruslana kemur til Islands og heldur tónleika dagana 9. til 11. apríl næstkom- andi, að öllum líkindum á Nasa og Broadway. Ruslana mun flytja lag Úkraínu í næstu Eurovision-keppni, en vinsældir hennar bæði heima fyrir og erlendis hafa vaxið mikið að undanfömu. Tónleikahaldið er hluti af umfangsmikilli kynning- arherferð um Evrópu og verður ísland fyrst Norður- landa í röðinni. Raunar má tala um sýningu, því hún hefur yfirleitt með sér í för hóp dansara og íjölmarga hljóðfæraleikara. Tónlistin er popp og rokk sem hlaðið er úkraínskum og rússnesk- um áhrifum, en sjálf er Ruslana hámenntuð í tón- list. Keyptu fyrir 65 milljarða Erlendir fjárfestar em orðnir einu stærstu eig- endur innlendra ríkis- skuldabréfa. Samkvæmt samantekt Greiningar- deildar KB banka námu kaup erlendra aðila á innlendum ríkisskulda- bréfum árið 2003 u.þ.b. 65 milljörðum. Þar af námu bein kaup er- lendra fjárfesta í inn- lendum ríkisskuldabréf- um um 20 milljörðum, þar sem bréfin vom keypt út úr landinu með samsvarandi gjaldeyris- innflæði. Þetta em um helm- ingi meiri kaup á ís- lenskum skuldabréfúm ffá í hitteö fyrra. Rændu reyktri ýsu Brotist var inn í húsnæði Hraðfrystihúss Gunnvarar við Hnífsdalsbryggju á ísa- firði seint í fyrrakvöld eða nótt og þaðan stolið tæp- lega 20 kg af reyktri ýsu. Var ýsan geymd í kæli og ætluð til sölu. Að sögn lög- reglunnar á ísafirði hafa einhverjir óprúttnir náung- ar sennilega verið að ná sér í soðið. En þjófnaður er þjófnaður og vill lögreglan hvetja þá sem gætu gefið upplýsingar um grunsam- legar mannaferðir á þessu svæði á fyrrgreindum tíma að hafa samband. Yngsta móðir á landinu stendur sig vel í móðurhlutverkinu en þrátt fyrir það sjá litlar sálir ástæðu til að vera með ónot á heimasíðu barnsins. Amman gætir barns- ins meðan móðirin unga er í skólanum. Skólafélagarnir taka henni vel. Ynnsla móðir á íslandi f janúar á þessu ári fæddist lítið stúlkubarn. Það hefur vakið mikla athygli að móðirin er sjálf barnung, 13 ára gömul, og á að fermast í vor ásamt bekkjarfélögum sínum í Ingunnarskóla í Grafarholti. Alda Jóhanna Hafhadóttir, þrett- án ára móðir sem heldur úti heima- síðu um barn sitt Andreu Ósk á barnaland.is, hefur orðið fyrir ónot- um á síðunni vegna ungs aldurs. Inn á bamaland.is eru fleiri hundruð heimastður barna sem haldið er út af foreldrum þeirra. Þegar hafa yfir 17 þúsund gestir heimsótt síðu Andreu Óskar og nokkrir hafa fengið útrás fyrir neikvæðar tiifinningar í garð móðurinnar ungu. Það þarf kjark að ganga með barn Alda stundar nám við Ingunn- arskóla í Grafarholti og þar hafa skólafélagar hennar sem eru á sama aldri tekið henni afskaplega vel eftir að viðtal birtist við hana um móður- hlutverkið. Móðir stúlkunnar, Helena Brynj- ólfsdóttir og amma barnsins segir að dóttir hennar sem fermist í vor fái á sig glósur á síðunni fyrir að hafa átt barn svo ung sem raun ber vitni. „Það er frekar fullorðið fólk sem er með ónot vegna hennar unga aldurs í móðurhlutverkinu. Mér finnst hins vegar hún standa sig vel en fólk virð- ist ekki átta sig á að það er miklu léttara að fara bara í fóstureyðingu eins og flestar aðrar stúlkur gera gjarnan sem lenda í því að verða barnshafandi ungar. Það þarf óbilandi kjark til að ganga með barn á þessum aldri og þann kjark hefur Alda,“ segir Helena sem er aðeins 36 ára og þegar orðin amma. Alda sækir skólann og móðir hennar gætir barnsins fyrir hana á meðan. Helena segir það sjálfsagt mál að hún sjái um lidu Andreu Ósk á meðan Alda sé í skólanum. „Hún verður fá að leika sér líka eins og önnur böm því vissulega er Alda aðeins barn. Mér hugsar vel um litíu Andreu Ósk. Það er því hart að vita til þess að það skitíi vera fullorðið fólk sem leggst svo lágt að vera að áreita hana inn á síðu bamsins," segir móðirin sem stendur fast að baki dóttur sinni. Unga móðirin í barnauppeldi en á að fermast í vor Alda Jóhanna segir sjálf að krakkamir í skólanum beri virðingu fyrir móðurhlutverkinu og spyrji hana út í það ffemur en að vera með ónot. Þeim finnist ekkert óeðlilegt við að hún skuii vera mamma. „Kannski dálítið skrýtið," segir hún. Alda segist vera sár út í fólk sem skrifi ónot í gestabók Andreu Óskar á heimasíðu hennar og finnst furðulegt að fólk skuli leggjast svo lágt. Alda segir að Andrea Ósk sé oftast sofandi þegar hún komi úr skólan- um en hún er afar vær og góð. Litía stúlkan tók aldrei brjóst en er með pela. Alda er því ekki eins bundin „Fljótlega eftir að ég kem heim úrskólan- um á daginn vaknar hún og þá tek ég hana en mamma hjálpar mér með hana og ég kemst út til að vera með vinum mín- um án þess að það sé nokkuð vesen/' segir móðirin heima eins og hún væri ef Andrea Ósk tæki brjóst. „Fljótlega eftir að ég kem heim úr skólanum á daginn vaknar hún og þá tek ég hana en mamma hjálpar mér með hana og ég kemst út til að vera með vinum mínum án þess að það sé nokkuð vesen," segir móðir- in unga sem hefur nóg að stússa við barnauppeldið og undirbúning eigin ferming- ar, sem fer fram í vor. Stolið af torfærukappa íslands Þjófar tæmdu bílinn „Þetta er hræðilegt, það var öllu stolið," segir Gunnar Gunnarson, torfærukappi. Aðfaranótt föstudags var brotist inn í bíl Gunnars og hann tæmdur af verðmætum. Gunnar tel- ur að tjónið nemi hundruðum þús- unda en meðal þess sem Gunnar saknar er taska sem inniheldur allar upplýsingar um ferð íslenskra tor- færukappa til Noregs á heimsbikarmót í torfæruakstri í maí. „Við erum aftur komnir á byrjun- arreit," segir Gunnar sem byrjaði að skipuleggja ferðina í nóvember á Hvaö liggur á? Gunnar Gunnarson Skorar á þjófana að skila töskunni. síðasta ári. Gunnar segist hafa verið fenginn til að skipuleggja mótið fyrir hönd hópsins en nú sé öll sú vinna fyrir bí. „Ég skora á ykkur að skiia henni aftur,“ segir Gunnar við þjófana. „Þaö er kannski ekki hægt að taia um asa núorðið, því skilin á skattframtölunum batna ár frá ári segir Gestur Steinþórsson, skattstjóri i Reykjavík, en skattatíð er að komast í hámark. „Eftir því sem fleiri einstakiingar skila á netinu og eftir þvísem meiri upplýsingar eru fyrirfram settar á framtals- eyðublööin því meðfærilegra verður allt í framkvæmd. Færri þurfa frest en áður og á næstu árum bætast við fyrirfram útfylltar upplýsingar. Þannig að fyrir flest fólk er að koma aö þvíað skattfram- talsskilin veröa orðin afskaplega einföld." Frægt merki sett í gjaldþrot Óttar Felix afskrifar Japis Verslun Japis á Laugavegi hefur verið lokað og sett £ gjaldþrot. Þar með eru horfhar síðustu leifar frægr- ar verslunarkeðju sem var ráðandi í sölu á rafeindatækjum frá Japan um árabil. „Ég átti helminginn í þessu og af- skrifaði einfaldlega minn hlut. Með- eigendur mínir vildu ekkert gera þannig að ég setti verslunina í gjald- þrot, greiddi virðisaukaskatt, laun og launatengd gjöld og lít svo á að þetta sé búið. Nú horfi ég fram á veginn enda nóg annað að gera,“ segir Óttar Felix sem átti Japis á Laugavegi með þeim Úlfari Þórðar- syni og Hafsteini Hásler sem áður ráku veitingastaðinn Gauk á Stöng í sameiningu. Úlfar hefur ráðið sig sem rekstrarstjóra á Hótel Búðir á Snæfellsnesi. Nú ætíar Óttar Felix að einbeita sér að útgáfumálum hjá fyrirtæki sínu Sonet. f bígerð er samhæfð Óttar Felix Hauksson Ekki um annað að ræða en að losa sig viðJapis.. markaðssetning á Norðurlöndum á barnastjömunni Robertino sem átti eina söluhæstu hljómplötuna hér á landi fyrir síðustu jól. Þá verður Ro- bertino settur á markað í Kína 15. maí næstkomandi. Að auki rekur Óttar Felix Austurbæ við Snorra- braut þar sem verið hefur blómleg menningarstarfsemi af ýmsum toga. Gjaldþrot Japis á Laugavegi mun ekki hafa nein áhrif á annan rekstur Óttars Felix.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.