Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 Fréttir BV Tveir síbrota- menn teknir Lögreglan í Hafnarfirði handtók tvo síbrotamenn í vikunni vegna tveggja inn- brota í bænum og voru þeir úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gærdag til mánaðamóta. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var tilkynnt um tíu innbrot og þjófrxaði í vik- unni. Þar af voru fjögur inn- brot í bifreiðar, í verslun í Garðabæ, bílapartasölu við Dalshraun, verksmiðju við íshellu og lagerhúsnæði við Drangahraun. Þá voru til- kynntir tveir þjófhaðir á reiðhjólum. VSÓ og Landsvirkjun báðu Dr. Ragnhildi Sigurðardóttur um sérfræðilega matsvinnu en sættu sig ekki við umfang vinnunnar og niðurstöðurnar. Hún vann fullnaðarsigur fyrir dómi og fyrirtækin fengu skömm í hattinn. Dómupinn sigur fyrir íslenska vísindamenn Slökkviliðs- stjóri rekinn fyrirskróp Slökkviliðsstjórinn á BfldudaJ var leystur frá störfum á fundi bæjar- ráðs Vesturbyggðar í vik- unni vegna þess að hann mætti ekki á boðaða æf- ingu slökkviliðsins. Hér eftir verður aðeins einn slökkviliðsstjóri í hinu sameinaða bæjarfélagi Vesturbyggðar, sem sam- anstendur af byggðar- kjörnunum Patreksfirði og Bfldudal, ásamt sveit- um. Var fráfarandi slökkviliðsstjóra á Bfldu- dal þakkað fyrir störf sín á fundi bæjarráðs á mið- vikudaginn. Er rétt að auka heimildir til hlerana? Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður „Þaö skiptir máli að lögreglan hafi ákveðnar heimildir til að afla sér upplýsinga um hættu- lega aðila. Hins vegar er þarna ákveðin hætta á ferðinni því stjórnvöld eiga það til að ganga oflangtí svona mál- um. Þvi veröur að tryggja það að ekki verði gengið á per- sónuvernd einstaklinga með lagasetningu afþessu tagi." Hann segir / Hún segir „Mér finnst eðlilegt að hleranir séu notaðar I alvarlegum glæpamálum eins og eitur- lyfjamálum. En ég er hræddur við að yfirvöld misnoti slíkar heimildir eins og dæmin sanna erlendis frá. Þvi er ég ekki hlynntur þvi að heimildir verði auknar. Ég held að þær séu nægar fyrir og yfirvöld eiga ekki að hlera samtöl nema brýnar ástæður liggi að bakisllku." Garðar Baldvinsson ábyrgur faöir „Þetta er mikill sigur fyrir íslenska vísindamenn þar sem hann veitir þeim stuðning til að stunda og skila faglegri, hlutlausri vinnu. Að því tilskyldu að VSÓ áfrýi ekki þá er tveggja ára mála- ferlum loksins lokið. Fyrir mér er úrskurðurinn mikill léttir, þrátt fyrir að hann hafi í rauninni verið fyrirsjáanlegur og frekari stað- festing á þeim óvönduðu vinnubrögðum sem VSÓ og Lands- virkjun höfðu í frammi gagnvart skýrsiunni um mat á umhverf- isáhrifum Norðlingaöiduveitu og ennfremur áfellisdómur yfir framgöngu þeirra gagnvart mér,“ segir dr. Ragnhildur Sigurðar- dóttir, en í gær vann hún dómsmál gegn VSÓ ráðgjöf ehf í deilu- máli sem snérist einkum um vinnuframlag hennar vegna um- hverfismatsins sem VSÓ annaðist fyrir Landsvirkjun og um höf- undarrétt að hennar vinnu. Deilan tengdist því að í skýrslu um umhverfisáhrif Norðlingaöldu- veitu var texti Ragnhildar klipptur og skorinn að hætti VSÓ og Lands- virkjunar og sætti hún sig ekki við það. „Svo virðist sem framganga þeirra í þessu dómsmáli öllu sé meira til að „hegna“ mér og vara aðra við að leggja ekki út í álíka framgöngu og _ ég gerði í þessu rnáli," segir Ragnhildur. Vanmat og misskilningur Málsaðilar deildu um það magn vinnu sem VSÓ hefði fengið Ragn- hildi til að annast og hún lagt af mörkum. VSÓ hélt því fram að hún hefði lagt fram reikninga fyrir vinnu sem hún hefði ekki verið beðin um að inna af hendi og rukkað fyrir óhóflegan tímafjölda, auk þess sem VSÓ ætti höfundarréttinn og hefði e ákvörðunarvald um það hvernig textinn yrði nýttur í matsskýrsl- unni. VSÓ lagði fram matsgerð því til stuðnings að rukkaður vinnu- tímafjöldi væri of mikill og að Ragn- hildur ætti þvert á móti að greiða fyrirtækinu rúmlega hálfa milljón til baka af því sem hún hefði fengið greitt. Ragnhildur hélt því aftur á móti fram að VSÓ hefði vanmetið og misskilið eðli og umfang vinnunnar þegar upphaflegt samkomulag var gert um hennar aðkomu að málinu. Hún hafi svo og í ýmsum atriðum verið ósammála framsetningu VSÓ og Landsvirkjunar á hennar vinnu og texta í matsskýrslunni. Fullur sigur Ragnhildar Sigurður Guðmundsson hdl flutti málið fyrir Ragnhildi. Stefnu- krafan var upp á rúma eina milljón króna, sem er mismunurinn á heildarupphæð reikninga hennar, 2,6 milljónir króna, og greiðslum sem inntar höfðu verið af hendi, 1,5 milljónir króna. Páll Þorsteinsson hér- aðsdómari tók undir að áætlanir VSÓ um umfang verksins hefðu ekki stað- ist og að matsgerð sem lögð var fram um vinnutímann væri ekki mark- tæk. Páll taldi að VSÓ hefði hvorki hnekkt því að um- deildar vinnustundir hefðu né því að fjár- hæðir reikninga Ragn- hildar væru ósann- gjarnir. Hann dæmdi VSÓ til að greiða Ragnhildi alla stefnu- upphæðina, ásamt vöxtum og 400 þús- und krónur í máls- kostnað en hafnaði endurgreiðslu- kröfu VSÓ. frídrik@dv.is Dr Ragnhildur Sigurðardóttir Ætluðu VSÓ og Landsvirkjun að hegna henni? Byggðastofnun sögð ábyrg fyrir helsvelti Fiskurinn sveltur vegna smáaura „Ég benti Byggðastofri- un ítrekað á að fiskurinn væri sveltur - Það átti öllum að vera ljóst," segir Jón Bek, formaður landeigenda- félags TáJkna- fjarðar. Tvær fiskeldis- stöðvar urðu gjaldþrota á Tállcnafirði. Byggða- stofhun var stærstí kröfuhafinn í þrotabú annars fiskeldisins, Bleikj- unnar og tók því við rekstri stöðvar- innar. f stað þess að fóðra fisldnn Jét Byggðastofnun hann svelta - þrátt fýtit aðvaranir yfirdýralæknis og landeigenda. „Það var oft skorað á Byggðastofii- un að hefja fóðrun," segir Jón Bek. „Sjálfur sendi ég tugi tölvubréfa og var í mildum samskiptum við þessa menn." í einu tölvubréfinu sem Jón sendi fer hann yfir stöðuna í málinu. „Staðan í dag er einfaldlega þessi: Edisfískurinn í stöðinni hefnr ekki verið fóðraður svo mánuðum skiptir vegna fjárskorts oghefurhann hlotið varanlegan skaða af. Stórhluti affísk- inum hefur þegar verið dæmdur ónýtur og bíður hans ekkert nema förgun, “ segir Jón Bek í tölvubréfi til stjómar Byggðastofnunar. Ekkert var Jiins vegar aðhafst þangað til í mars þegar yfirvöld gripu í taumana. Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofhunar, segir að deilur við landeigendur hefðu spilað stóran þátt í málinu. Jón Bek segtr deilurnar fjalla um að landeigandinn, sem einnig var hluthafi í fýrirtækinu, hafi vilj- að fá hærri leigu en áður. Þetta sættí Byggðastofnun sig ekki við og „þarna varð tugmilljóna tjón út af deilum um smápeninga, segir Jón. simon@dv.is Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjórl Byggðastofnunar Ber fyrir sig deil- ur við landeigendur Ríkisútvarpið Afnotagjöld hækka ó sama tima og skor- ið er niður i dagskró. Afnotagjöld RÚV hækkuð um 2.100 á ári Niðurskurður í dagskrá og hærri afnotagjöld Eigendur sjónvarpstækja þurfa að greiða 2.112 krónum meira til Rfldsútvarpsins en áður. Afnota- gjaldið verður hækkað um 7 prósent 1. maí næstkomandi, eða úr 2.528 krónum á mánuði í 2.704 krónur. Ástæðan er hallarekstur Rfldsút- varpsins. Á sama tíma er verið að skera niður í dagskrá og em horfur á því að pistlahöfundar og þáttagerð- armenn verði látnir fara frá Rás 2. Auk þess er áformað að taka inn- lenda sjónvarpsþætti af dagskrá. Helst em nefndir til sögunnar unglingaþátturinn At og fréttaskýr- ingaþátturinn í brennidepli. Afnotagjaldið var síðast hækkað um 5 prósent í byrjun ársins. Rekstr- arhalli stofnunarinnar var 314 millj- ónir króna á síðasta ári, en tekjur munu aukast um rúmlega 160 millj- ónir á ári með hækkuninni. Sú upp- hæð kemur úr vasa sjónvarpseig- enda í landinu. Hækkunin leysir ekki fjárhagsvanda Rfldsútvarpsins og er því lagt upp með um 150 millj- óna króna niðurskurð það sem eftir er ársins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.