Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004
Fókus DV
Mv brilliant divorce
Edda Björgvinsdóttir
spjallar um dætursín-
ar sem hún átti í fyrra
sambandi, mennina í
lífi sínu, upplogna
samfélagsþjónustu á
Sólheimum og Kaffi-
brúsakarlana og Gísla
Rúnar Jónsson. Hún
reifar einnig ástina og
gleðina sem hún fær
út úr hverjum degi og
ekki má gleyma öllum
kjaftasögunum.
Edda Björgvins er leikkona
sem vart þarf að kynna
fyrir þjóðinni. Hún er á
toppi ferils síns um þessar
mundir og blómstrar sem
aldrei fyrr í Fimmstelpum.com.
Áhorfendur tryllast þegar hún stígur
á svið og ærast þegar hún yfirgefur
það. En á milli þess sem hún stend-
ur á senunni gerir hún upp hús í
Hafnarfirði (það hefur hún ekki gert
áður því Gísli Rúnar hefur alltaf séð
um framkvæmdirnar hingað til) og
svo brunar hún austur á Sólheima í
Grímsnesi þar sem almannarómur
segir að hún sé í samfélagsþjónustu.
Þessi sami almannarómur er ekki
viss um hvað hún sé að afþlána, en
telur að það kunni að vera eitthvað
tengt glæpaakstri eða umferðar-
dólgshætti.
„Jú, ég hef heyrt þetta. Það
hringdi til mín ónefndur blaðamað-
ur og vildi ræða þessi mál við mig
um daginn. Ég hafði ekki heyrt þetta
fyrr en þá,“ segir Edda hlæjandi og
bætir við að þó að hún geti skemmt
sér yfir sögunni nú þá hafi henni
ekki verið hlátur í huga þegar hún
komst að því að þessi saga væri
komin á kreik. „Ég neita því ekki að
það sveið dálítið, því þetta var rakin
lygi. En ég á vin sem rakti þessa sögu
til föðurhúsanna. Já, eigum við ekki
að segja að það komi úr óvinaher-
búðum Sólheima og leggi nú hver
sem vill saman tvo og tvo."
Gamli hippinn fílar Sólheima
Edda er að æfa sumarleikhús Sól-
heima og kemur þangað nokkrum
sinnum í viku og gistir. Hún segir
staðinn yndislegan, þar sé mikil veð-
ursæld á sumrin en að sama skapi
kaldara á veturna.
„Það er ekki amalegt fyrir mig
gamlan hippann að fá að vera hér.
Hann eflist allur í mér og gömlu
Jtippavinimir mínir skilja mig vel,“
segir hún kankvís og hugurinn renn-
ur aftur til þeirra ljúfu daga:
„Ég átti kornung tvær dætur sem
nú em eldri en ég. Ég vil að það komi
skýrt ffam. Evu Dögg átti ég 17 ára
og var orðin ófrísk af Margréti þegar
ég setti upp stúdentshúfuna. Eg var
últra mega vinstri sinnaður hippi
með kringlótt gleraugu og pípu, í
lopapeysu og klossum. Barnsfaðir-
inn átti rússajeppa með blæju og var
á svipuðum aldri," segir Edda og
bætir við að hann sé nú skólastjóri á
Hellu. Hún hlær dátt að minning-
unni sem hún segir ekkert annað en
ljúfa.
Hún var rúmlega tvítug með tvær
dætur og átti eftir að fara í leiklistar-
skólann sem hún hafði alltaf verið
ákveðin í taka með stormi. „Ég held
að þeim ffæjum hafi verið sáð þegar
ég var sjö ára. Það blundaði í mér
síðan og óx með ámnum. Við hipp-
inn, sem síðar varð skólastjóri, fór-
um í sína hvora áttina, ég með Evu
Dögg, þá eldri, en hann með Mar-
gréti, þá yngri."
Eignaðist börn í skólum
Eftir að leiðir Eddu og skólastjór-
ans skildi snéri hún sér að því að
læra leiklist og kynntist ást lífs síns.
„Já, það má segja það, ást lífs míns.
Kaffibrúsakarlarnir vom með mér í
leiklistarskólanum. Ég leit á þessa
menn sem þóttust vera fyndnir með
fyrirlitningu og sagði við sjálfa mig
að þeir hlytu að vera heimskir. En
það kom síðar á daginn að þeir vom
fjandi greindir og það kom mér
verulega á óvart. Ég áttaði mig líka á
að þeir em með skemmtilegri
mönnum, báðir tveir," segir hún og
útskýrir að á þessum árum hafi hún
verið hrokagikkur eins og ungu fólki
er tamt.
Edda varð fljótlega ófrísk af sínu
þriðja bami og Björgvin fæddist á
meðan hún var í leiklistarskólanum.
„Ég var dáhtið í því að eiga börn í skól-
um, svona rétt til að gera mér þetta
aðeins erfiðara. En allt gekk vel og
sextán árum seinna átti ég Róbert sem
nú er tíu ára. Hann var bamið sem ég
hafði loksins tíma til að ala upp," seg-
ir Edda og leggur áherslu á að hún sé í
góðu sambandi við þau öll og verið
mjög lánsöm hvað þau varðar.
„Við faðirinn ólum Margréti upp
saman, þó að hún hafi átt heimili hjá
honum og Eva hjá mér þá skiptum
við þeim eins og við gátum," segir
hún og bætir við að ekki hafi það
verið minna lán að Gísli sá ófor-
betranlegi bamakall hafi tekið dætr-
um hennar tveimur ofsalega vel. „Ég
var mikið öfunduð af vinkonum
minum sem einnig áttu börn og
voru komnar í samband, hve Gísli
var dætrum mínum góður. Þannig
hefur það verið síðan og hann verð-
ur alltaf að heyra í öhum skaranum á
hverjum degi. Annars hður honum
ekki vel."
Giftist Gísla kannski
á morgun
Síðan hefur þjóðin meira eða
minna fylgst með Eddu og Gísla og
brölti þeirra í gegnum árin. Menn
hafa velt því mikið fyrir sér hver stað-
an sé hjá þeim núna. Þau sjást saman
eins og hjón en búa ekki saman. Em
þau í fjarbúð eða um hvað snýst sam-
band þeirra? Um það segir hún að
þau séu í ofsalega góðu sambandi:
„En af prinsipp ástæðum ætlum
við ekki að upplýsa nánar um það.
Nema að við tækjum upp á því að
gifta okkur einn daginn eða flyttum í
sitt hvora heimsálfuna. Það er bara
annað hvort sem gerist hjá okkur. Ég
mun sennilega giftast einhverjum af
gömlu kærustunum mínum aftur því
ég er svo htið fyrir nýjungar. Nema að
ég hitti góðan skátapilt og giftist hon-
um. Sjáðu, okkur langar bara ekki að
eyðileggja allt fyrir hárgreiðslustof-
unum. Fólk verður að hafa eitthvað
um að tala," segir hún og skellir upp
úr.
Edda hefur ekki ósjaldan orðið
fyrir Gróu gömlu á Leiti og þrátt fyr-
ir sakleysi sumra sögusagna séu aðr-
ar ekkert annað en mannorðsmorð.
„Já, eins og þetta með meðferð-
imar," segir Edda. „Það eiga margir
að hafa verið með mér í meðferð en
ég myndi segja frá því með stolti ef ég
hefði farið í meðferð. Ég er bara ekki
alki, heldur aðstandandi og hef verið
í Al-Anon samtökunum. Þeir sem
ekki þekkja muninn eru fljótir að
álykta að ég hafi verið í meðferð. Mér
er nákvæmlega sama því þetta tólf
spora kerfi er það besta sem hægt er
að hugsa sér og Al-Anon eru mann-
ræktarsamtök sem hjálpa fólki að líða
betur. Það er það besta sem hefur
komið fyrir mig," segir hún alvarleg í
bragði.
Þióðin elskar Eddu og gleypir
í neilu lagi
Þeir sem fylgst hafa með Eddu
segja að hún sé á hátindi ferils síns.
Húrí er sammála því og viðurkennir
að hún hafi þurft að hafa fyrir því.
„Ámi Pétur vinur minn sagði við mig
um daginn að ég væri komin á það
stig að þjóðin elskaði mig skilyrðis-
laust. Hann sagði: „Edda ég held að
þú sért komin á þann stað að allir
sem voru að gagnrýna þig hér áður
séu sáttir og vilji bara eiga þig. Þú ert
komin yfir það að detta niður og
stíga upp á víxl." Mér þótti það
ógeðslega fyndið þegar hann sagði
það en ég held að það sé bara svo
mikið komið í sarpinn að þjóðin
nenni ekki að vera að skammast og
ónotast út í mig lengur," segir hún
og leggur áherslu á að hún sé sátt við
stöðu sína.
En aðspurð um það hvort gamli
hippinn, Edda Björgvins, sé ekki
vinstrisinnaður eða hvort efnis-
hyggjan hafi gleypt hana eins og
flest annað fusscu: Edda. „Það er nú
öðru nær. En pólitíkin í mér hefur
engu að síður breyst að því leyti að
ég hef hallast að kvennapólitík. Ég
er róttæk og mér finnst það ofboðs-
lega sorglegt að Kvennalistinn skuli
ekki hafa haldið þetta út,“ segir
Edda sem ekki hefur gefist upp.
Ingibjörg Sólrún er hennar kona en
ekki munaði miklu í síðustu kosn-
ingum að hún yrði forsætisráð-
herra.
Gjöfult lífshlaup og orðin 51
Edda verður á Sólheimum í
sumar og hefur umsjón með sum-
arleikhúsinu. Hún hefur mikla
ánægju af .að vinna með vistmönn-
um Sólheima og segir fátt meira
gefandi. „Hvað síðan er framund-
an, menn halda að ég sé að djóka
þegar ég segi hvað ég er að fara að
æfa. My brilliant divorce, heitir ein-
leikur um fimmtíu og eins árs konu
sem er að gera upp skilnað sinn.
Það er auðvitað enginn annar en
Gísli Rúnar sem þýðir og staðfærir
en höfundurinn er írskur. Þetta er
bráðsniðugur einleikur sem. ég
hlakka til að hella mér í," segir hún
og vill ekki segja mikið meira. „Það
er svo gaman að eiga leyndarmál og
ekkert gaman að gefa allt upp. Ég
get þó sagt það að við erum að
þreifa fyrir okkur og sá sem vill
hagnast og býður best fær þetta
verk sem ég efast ekki um að á eftir
að verða vel tekið," segir hún og
brosir leyndardómsfull.
Hún segir að þrátt fyrir að vera
orðin 51 árs þá gleymi hún því alltaf.
„Ég er eins og fífl og spyr fólk sem er
tíu eða fimmtán árum yngra en ég
hvort það hafi verið með mér í skóla.
Sé ekki nokkurn mun á því og mér.
Svona er maður veruleikafirrtur,"
segir hún og hlær dátt.
Edda er á því að lífið hafi verið
henni gjöfult. Telur að hún hafi
fengið ótrúlega mikið í vöggugjöf.
„Þá á ég við svona
a gleðiensím," segir
hún og hlær. „Ég
vakna með tilhlökkun í maganum á
hverjum morgni, ég er aldrei í vondu
skapi. Það er ofsalega mikið að
þakka fyrir. En erfiðleikar í lífinu, ég
fellst ekki á það. Alls ekki þó ég hafi
þurft að selja einhverja húskofa
vegna þess að ég hef verið að
skemmta mér með frjálsum leik-
hópum, nei. Lífið hefur leikið við
mig og ég myndi vera verulega reið
ef einhver færi að gera því skóna að
ég hefði hafi gengið í gegnum erfið-
leika. Eðlileglífsreynslajá, enþreng-
ingar, nei," segir Edda ljómandi af
lífsgleði.
bergljot@dv.is
„Ég var últra mega vinstri sinnaður hippi með kringlótt gleraugu og pípu, í lopapeysu og klossum