Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 41
DV Fókus LAUGARDAGUR 3. MARS 2004 41 ------------------------» kl. 6, 8 Og 10.10 ----- SYND kl. 12, 2,4,6, 8 Og 10 M/ENSKU TALI B.i. 16 SÝND kl. 12, 2, 4 og 6 M/ISLTALI ÞEGAR EKKl ER MEIRA l'LÁSS I HELVlTI.MUNU HINIRDAUÐU HELTAKA JÖRÐINA! An efa einn besti spennuhrollur sem sést hefur I bíó. Myndin fór beint á toppinn i Banda- rfkjunum fyrir tveimur vikum og hefur slegið hryllilega I gegn. SÝND Id. 8 og 10.10 B.i. 16 SÝND kl. 12, 2 og 4 MEÐ fSLENSKU TALI m www.sonibioin.is REGFIBOGinn LAUGARAS ~ 553 2075 eioj sýnd kl 3.30, 545, 8.30 Og 10.40 SÝND kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 Sýnd kl. 2,4,6,8 og 10.15 KMKJáem. drewbarktmcwe stefnumótið... endalaustl Fyndnasta mynd ársins! 2 vikur á toppnum f USA! z Mmsmms fet/., T I « R A ÍÍV'lýj, ■pMEl GIBSO'hf - «r'** Skonrokk ^>♦ /2 kvikmyndir.com P/-SSION tin umtalaðaðasta og aðsóknar mesta kvikmynd allra tima Sýnd kl. 8 og 10.15 B. i. 16ira www.laugarasbio.is Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins setur nú upp verkið Sorgin klæðir Elektru eftir Eugene O’Neill. Eugene er talinn með höfuðskáldum Banda- ríkjamanna, en hann er eini Banda- ríkjamaðurinn sem hefur unnið Nóbelsverðlaun fyrir leikritagerð. Eugene fæddist áiið 1888 á hótel- herbergi í Broadway, en faðir hans var einhver vinsælasti leikari tíma- bilsins. Fátt gaf þó til kynna að Eu- gene myndi feta í fótspor hans og hefja feril í leiklistarheiminum. A fyrsta ári í Princeton var hann rek- inn tímabundið, og ákvað að snúa ekki aftur á skólabekk. Þess í stað fór hann til Hondúras til að gerast gull- grafari, en var sendur aftur heim eft- ir sex mánuði með hitabeltisveiki. Næstu árin var hann ýmist sjómað- ur, asnahirðir, flækingur eða blaða- maður. í desember 1912 fékk hann berklaveiki og var lagður inn á spít- ala, og það var þá sem hann byrjaði að lesa leikrit af krafti, og var Svíinn þunglyndi Strindberg í sérstöku uppáhaldi. Upp ffá þessu hóf hann að skrifa leikrit, og persónur hans voru oftar en ekki byggðar á einstaklingum sem hann hafði hitt á flækingsárum sínum. Árið 1916 komst hann í kynni við leikhópinn „The Provincetown Players," og varð brátt hirðskáld hópsins. Leikritið Beyond the Horizon var sett upp á Broadway árið 1920, og frægðarsól hans reis hratt upp frá því. Árið 1936 fékk hann svo Nóbelsverðlaun í bók- menntum. En það var einmitt upp- frá því sem vinsældir hans tóku að dala, þveröfugt við Halldór Laxness sem öðlaðist loks almenna viður- kenningu þegar hann fékk sín verðlaun 20 árum eftir Eugene. Ný kynslóð gagnrýnenda gaf lítið fyrir verk hans, og hann hvarf af sjónar- sviðinu. En þörf hans til að skrifa var áfram öllu öðru yfirsterkari, og það var einmitt á þessum tíma sem hann skrifaði flest sín helstu verk, svo sem The Iceman Cometh og A Long Days Journey into the Night. Flest þessara verka hans voru þó ekki sett upp meðan hann lifði. Hann dó í kyrrþey árið 1953. Það liðú ekki nema þrjú ár þar til verk hans voru enduruppgötvuð og sett upp á Broadway, og er hann í dag ekki einungis talinn fyrsta merka bandaríska leikritaskáldið, heldur eitt af merkustu leikrita- skáldum allra tíma. Sorgin klæðir Elektru var skrifað árið 1931. Leikritið er byggt á harm- Sorgin klæðir Elektru eftir Eugene O'Neill er sýnt á Smíðaverk- stæði Þjóðleikhúss- ins með Hilmi Snæ, Arnbjörgu Hlíf og Guðrúnu Gísladóttur í aðal hlutverkum. Helsi Bandarikjanna leik Æskilos, Oreisteu sem fjallar um konu sem drepur eiginmann sinn og dóttur sem reynir að hefna föður síns. O’Neill var undir mikl- um áhrifum frá sálgreiningarað- ferðum Freuds og Jungs, og kemur þetta skýrt fram í leikritinu. Upp- runalega gerist verkið eftir lok bandaríska borgarastríðsins en í Sarah Jessica Parker hefur verið valin tískudrottning New York borgar. Leflckonan sem sló í gegn í þáttunum Sex and the City þykir afar smart í klæðnaði og stfll hennar bæði í senn per- . sónulegur og faglegur. Hátíðarhöldin fara fram í júni en þar mun hönnuðurinn Donna Karan fá verðlaun fyrir ævistarf sitt L ásamt því að kventískuhönnuður ársins verður valinn. Þeir I, sem eru tilnefhdir eru Carolina Herrera, Marc Jacobs, Michael Kors og Ralph Rucci. Þess ber að geta að P. Diddy er tilnefnd- Úklk ur í flokki karlatískunnar. uppfærslu Þjóðlefldiússins er tíma- setningin óræð. Með helstu hlut- verk fara Hilmir Snær Guðnason, Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Guörún Gísladóttir og Ingvar E. Sigurðsson, en þetta er í fyrsta sinn sem hann stígur á svið í Þjóðleikhúsinu í þó nokkurn tíma. valur@dv.is Samstarfssjóður Nuuk-Reykjavíkur-Þórshafnar auglýsir eftír styrkumsóknum fyrir árið 2004 Reykjavíkurborg er aðili að sjóði höfuðborga Færeyja, Græn- lands og íslands. Sjóðurinn hefur að markmiði að efla skilning og samstarf milli þessara borga, íbúa þeirra, samtaka og stjórn- málamanna og veita fjárstyrki til verkefna sem þjóna þessum markmiðum. Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem tengjast samskiptum milli bæjanna og efla tengsl þeirra með einhverjum hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða íþrótta. í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ítarlega, fyrir- komulagi þeirra, tímasetningu og kostnaði. Skriflegri umsókn skal beint til: Samstarfssjóður Nuuk-Reykjavíkur-Þórshafnar b.t. Gunnars Eydal, skrifstofustjóra borgarstjórnar Ráðhúsi Reykjavíkur 101 Reykjavík Umsóknir berist eigi síðar en 7. maí n.k. og koma umsóknir sem síðar kunna að berast ekki til afgreiðslu. Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða. Æskilegt er að umsókn fylgi þýðing á dönsku. Upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarstjórnar, Ráðhúsi Reykjavíkur, s: (354) 563 2000. Stjórn sjóðsins mun afgreiða umsóknir í júní n.k. Reykjavík, 31. mars 2004 Borgarstjórinn í Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.