Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Blaðsíða 23
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 23
eep Purple
Deep Purpte starfaði upphaflega frá febrúar 1968 til mars 1976. Þá hætti
hún. A þessu tímabili voru starfandi fjórar útgáfur af sveitinni og á þessum
tíma sendi hún frá sér sínar bestu plötur. Hljómsveitin var svo endurstofnuð
árið 1984 og hefur starfað síðan, með nokkrum mannabreytingum þó. En
hér koma þessar fjórar upprunalegu Purple útgáfur:
Útgáfa I
(feb. 1968 -júní 1969)
Rod Evans - söngur
Jon Lord - hljómborð
Ritchie Blackmore - gitar
Nick Simper- bassi
lan Paice - trommur
Plötur
Shades OfDeep Purple (1968)
The Book OfTaliesyn (1968)
Deep Purple (1969)
Útgáfa II
(jún. 1969-júní 1973)
lan Gillan - söngur
Jon Lord - hljómborð
Ritchie Blackmore - gitar
Roger Glover - bassi
lan Paice - trommur
Plötur
Concerto For Group & Orchestra (1969)
Deep Purple In Rock(l 970)
Fireball (1971)
Machine Head (1972)
Made In Japan (1972)
Who Do We Think We Are (1973)
Útgáfa III (jún.1973 - apríl 1975)
David Coverdale - söngur Plötur
Jon Lord - hljómborð Burn (1974)
Ritchie Blackmore - gitar Stormbringer (1974)
Glenn Hughes - bassi
lan Paice - trommur
Útgáfa IV
(apríl. 1975 -mars 1976)
David Coverdale - söngur Plötur
Jon Lord - hljómborð ComeTasteThe Band (1975)
Tommy Bolin - gitar
Glenn Hughes - bassi
lan Paice - trommur
Áttunda útgáfan af sveitinni
Deep Purple var endurstofnuð
1984 af sömu meðlimum og skipuðu
hina rómuðu útgáfu II. Hún gaf þá út
eina plötu, Perfect Strangers, og fór í
mikið tónleikaferðalag. Eftir tvö ár
þoldu Ian Gillan og Ritchie Black-
more ekki samstarfið lengur. Fyrst
hætti Gillan, en síðan hætti Richie og
Gillan kom aftur.
Útgáfan af Deep Purple sem
spilar í Höllinni í júní er númer átta
í röðinni. f henni eru þrír af með-
limunum sem voru í útgáfu II (Ian
Gillan, Roger Glover og Ian Paice),
en líka bandaríski gítarleikarinn
Steve Morse sem var áður m.a. í
Kansas og hljómborðsleikarinn
Don Airey. Hann er gamall stríðs-
hestur í rokkinu, hefur m.a. spilað
með Judas Priest, Rainbow,
Whitesnake, Jethro Tull, Ozzy Os-
bourne og ELO.
Þessi útgáfa af Purple gaf út sína
fyrstu plötu í fyrra. Hún heitir Ban-
anas og hefur fengið góða dóma hjá
Purple-hausum. Hljómsveitin hefur
líka verið að spila stíft á tónleikum
undanfarna mánuði. Tónleikar
þeirra fá mikið lof á Deep Purple-
vefsíðum. Sveitin er yfirleitt að spila
tveggja tíma sett, 19-20 lög, þ.á.m.
Woman From Tokyo, Bananas, Hig-
hway Star, Space Truckin, Lazy,
Smoke On The Water, Hush og
Black Night. Dagskráin er samt auð-
vitað ekki alltaf sú sama. Allt getur
gerst. Don Airey þykir góður arftaki
Jon Lord (sem dró sig í hlé 2002,
m.a. vegna heilsubrests). Sveitin
þykir enn mjög kraftmikil. Ahorf-
endur í Höllinni geta líka átt von á
löngum gítar-, orgel- og trommusól-
óum.
Stór hópur hundtryggra aðdá-
enda
Deep Purple á enn mjög stóran
hóp tryggra aðdáenda úti um allan
heim. Það er alltaf verið að gefa út
fleiri og fleiri tónleika með sveitinni,
bæði gamla og nýja og endurútgáfur
af gömlu plötunum seljast vel. Á
næstu vikum er von á 30 ára afmælis-
útgáfu af Burn-plötunni og þreföld
safnplata, Platinum Collection er
væntanleg í júní.
Það er ljóst að eitt af stóru nöfn-
unum í rokksögunni spilar í Höllinni
24. júní nk. Þetta er einstakt tækifæri
fyrir landann og líka síðustu forvöð
að sjá Deep Purple áður en lykil-
menn sveitarinnar komast á sjötugs-
aldurinn.
Elín Hirst og Sigríður Árnadóttir eru fréttastjórar á sitt hvori
sjónvarpsstöðinni. Búast má við aukinni samkeppni á milli
stöðvanna í kjölfar þess að Stöð 2 færði fréttatíma sinn til
18:30 í vikunni sem leið. Það mun því reyna meira á sjálfa
fréttastjórana þegar líður á sumarið. DV setti sig í samband
við konurnar sem stjórna þessum tveimur fréttastofum og
fékk að kynnast þeim aðeins nánar.
Drolingar íslenskra
1. Fullt nafn?
Sigrlður Árnadóttir.
2. Fæðingardagurog ár?
Fædd 24. maí 1960.
3. Maki?
Helgi Már Arthúrsson.
4. Böm?
Gunnar Arthúr Helgason, 10 ára og Elin Þóra Helgadóttir 7 ára.
5. Bifreið?
Er sjálfá milli bila I augnablikinu.
6. Btaðamennskuferilinn?
Byrjaði ungí sumarafíeysingum i Útvarpinu 1975, var i morgunþættin-
um Gull I mund veturinn 1982-83. Fréttamaður á Fréttastofu Útvarpsins
1984-2004. Tók við starfi fréttastjóra á Stöð 21.2.2004.
7. Hvað varð til þess að þú heillaðist af starfinu?
Kynni min afstarfinu á Fréttastofu Útvarpsins á áttunda áratugnum. Ég
held við höfum valið hvort annað, ég og starfið, enda kemur okkur bæri-
lega saman. Eins og sjá má af upptainingunni hefur það samband hald-
ið bærilega.
8. Hver er helsta erlenda fyrirmyndin í fréttabransanum?
Ég hefekki tekið mérneinn einn erlendan fjöl-
miðlamann til fyrirmyndar.
9. Hverer helsta innlenda fyrirmyndin I
fréttabransanum?
Aftur verð égað nefna Fréttastofu Útvarps-
ins. Þar voru fyrirmyndir mlnar. Þar lærði ég
til verka hjá Margréti Indriðadóttur. Hún er
hörkutól, hún ersanngjörn, en kenndi mér
að besta veganestið er að hafa það sem
sannara reynist og bera virðingu fyrir lesend-
um, hlustendum og áhorfendum. I þvi felst að
þora og vilja viðurkenna mistök.
l. Hverjar eru aðaláherslurnar í frétta-
flutningi á þinni fréttastofu?
Áhugaverðar, trúverðugar fréttir fyrir fólk og um
fólk. Við erum ófeimin við að taka á viðkvæmum
málum á snarpan hátt efvið teljum að það
eigi erindi til almennings. Skörp, skýr og
skemmtileg, þegar við á. Það eru okkar
mottó. Ekki skaðarað vera fyrst og fremst,
nú þegar við höfum flutt fréttatímann
afturfram til klukkan 18:30.
11. Hvað er toppurinn og botn-
inn á ferlinum?
Botninn (eða kannski toppurinn) var
þegar ég stóð úti í kartöflugarði á
Hvaleyrarholti i svartamyrkri
í október 1986 og lýsti því
stóran óþjálan farsima,
þegar Reagan, Banda-
rikjaforseti ók framhjá á
leið frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur.
Hann átti leiðtogafund með Gorbatsjov
í Höfða skömmu siðar. Toppurinn var
að tilkynna með fimmtán minútna
fyrirvara að gos væri að hefjast i Heklu i
febrúar2000. Það stóðst og heyra
mátti beina lýsingu afupphafi gossins i
kvöldfréttum Útvarpsins, sem var vinnu-
staður minn þá. Ég held að þetta verðiseint
slegið út.
12. Hvort er fréttnæmara og af
hverju?
a) Maður bítur hund til bana.
b) Hundur bítur mann til bana.
Eftirað búið erað bæta„til bana“við þessa
gamalkunnu setningu er hvort tveggja þó
nokkuð fréttnæmt þykir mér. Hundursem ban-
armanni kemsl i fréttirnar, sem ogmaður sem
banaði hundi með mannsbiti.
13. Neyðarlegasta atvik í beinni útsend-
ingu?
Það var þegar ég spjallaði frjálslega ummann
sem var á leið I viðtal ibeinni útsendingu. Það var
lag í gangi og ég hélt að öllu væri óhætt. Komst svo
að þviað léttúðugt hjal mitthafði lekið út.
14. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrlinu?
Fara um landið á fjórum sívölum.
15. Ahugamál?
Fréttir og fagið. Svo auðvitað fótbolti í sjötta flokki
eftir að ég komst að þvi hvað snýr fram og hvað aft-
urá boltanum, eftir að drengurinn fór að spila með.
16. Uppáhalds söngvari?
Pabbi við uppvaskið.
17. Uppáhalds leikari?
Dóttir min.
18. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera?
Tjalda I rigningu og biða alla nóttina, milli vonar og
ótta, eftirþví að fyrsti dropinn bori sig I gegn.
19. Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera?
Vakna i tjaldi á fögrum sumarmorgni i íslenskri
sveit, heyra flugurnarsuða og fuglana syngja.
20. Finnst þér koma til greina að
breyta rekstrarformi RÚV?
Pass.
1. Fullt nafn?
Elin Hirst.
2. Fæðingardagur og ár?
4.september 1960.
3. Maki?
Friðrik Friðriksson, hagfræðingur.
4. Börn?
Friðrik Árni, menntaskólanemi, Stefán, mennta-
skólanemi og Hekla (hundur) heimasæta.
5. Bifreið?
BMW-316, árgerð 2001.
6. Blaðamennskuferilinn?
Blaðamaður DV frá 1984-86, fréttamaður Bylgjunnar 1986-88,
fréttamaður Stöðvar 2 1988-91, varafréttastjóri Stöðvar 2 og
Bylgjunnar 1992-94, fréttastjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar 1994-
96, fréttastjóri DV 1997, fréttamaður Sjónvarpsins 1998-2001,
varafréttastjóri Sjónvarpsins 2001-2002, fréttastjóri Sjónvarpsins
frá 2002.
7. Hvað varð til þess að þú heillaðist af starfinu?
Virtist vera starfþar sem hægt væri aðfá útrás fyrir sköpunar-
gleði. Það hefur lika komið á daginn.
8. Hver er helsta erlenda fyrir-
myndin f fréttabransanum?
Gefþað ekki upp. Vil ekki móðga
neinn.
9. Hver er helsta innlenda fyrir-
myndin í fréttabransanum?
Sama svar.
10. Hverjar eru aðaláherslurn-
ar í fréttaflutningi á þinni
fréttastofu?
Áreiðanleiki, hlutlægni, snerpa, sann
girni og tillitssemi i viðkvæmum mál-
um.Áhersla á að segja fréttir frá öll-
um stöðum á landinu, ekki bara suð-
vesturhorni þess.
11. Hvað er toppurinn og
botninn á ferlinum?
Toppurinn er ekki kominn enn.
Botninn var þegar ég pindi
hana elsku ömmu mina i for-
síðuviðtal með mynd fyrir 20
árum eftir að brotist var inn
hjá henni. Þetta lét hún yfir
sig ganga fyrir barnabarn-
ið sitt sem ætlaði að verða
frægur blaðamaður.
12. Hvort ei
fréttnæmara og
af hverju?
a) Maður bítur
hund til bana.
b) Hundur bftur mann
til bana.
Það er fréttnæmara ef
hundur bltur mann til
bana. Mannslifer verðmæt-
ara en hundslíf samkvæmt
þeim gildum sem við lifum
eftir.
13. Neyðarlegasta atvik í
beinni útsendingu?
Þegar eldri strákurinn minn var lítill var ég
í vandræðum með pössun, enn eina ferð-
ina, svo ég lét hann sitja undir fréttaborð-
inu hjá mér í fréttaútsendihgu. Allt gekk vel
þar til lítill glókollur gægðist upp milli okk-
ar Sigmundar Ernis þegar við vorum að
Ijúka fréttatímanum. Við létum sem ekkert
væri en áhorfendum hefur trúlega ekki þótt
þetta mjög fagmannlega að verki staðið.
14. Hvað ætlar þú að gera f sumarfrí-
inu?
Ég tek sumarfrí í framhaldi aftveggja mán-
aða blaðamannaleyfi í haust. Þessa 3 mán-
uði ætla ég að nota til að Ijúka MA ritgerð I
sagnfræði og vonandi útskrifast um áramót.
15. Ahugamál?
18. öldin á Islandi.
16. Uppáhalds söngvari?
Andrea Bocelli.
17. Uppáhalds leikari?
Ben Stiller (um þessar mundir).
18. Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera?
Sitja á gagnslitlum fundum.
19. Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera?
Vera á góðra vina fundi.
20. Finnst þér koma til greina að
breyta rekstrarformi Rúv?