Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Side 9
DV Fréttir
LAUGARDAGUR3.APRll.2004 9
Fyrrum eiginkona fer mikinn og sakar Davíð um að borga ekkert í fata- og skólakostnaði dætra þeirra
Fataði dæturnar upp tvisvar lí síDasta ári
Frétt DV um meðlagskröfu á hendur
Davíð Þór Einarssyni hefur vakið mikið um-
tal í heimabæ hans Vestmannaeyjum.
Þurftu sjoppueigendur raunar að panta
aukaupplag af blaðinu. Bæjarblaðið Eyja-
fréttir fjallaði um málið á fimmtudag með
viðtali við Maríu Pétursdóttur, fyrrum eigin-
konu Davíðs, undir fyrirsögninni „Vona að
Davíð einbeiti sér að eigin lífi". Davíð er
mjög ósáttur við þá umfjöllun og að hann
hafi ekki fengið tækifæri til að koma sínum
sjónarmiðum á framfæri. María segir m.a.
að Davíð hafi ekkert lagt af mörkum í fata-
og skólakostnaði þriggja dætra þeirra. Dav-
íð segir þetta rangt og bendir á að hann hafi
tvisvar farið með dætur sínar í frí erlendis á
síðasta ári og í báðum ferðum hafi hann
fatað þær upp.
„Það er hinvegar rétt að frá þvl að Marfa
höfðaði mál gegn mér síðasta haust hef ég
ekki borgað neitt með dætrum mínum íyrir
utan meðlagið," segir Davíð. „Mér finnst að
María hafi verið mjög þver í þessu máli öllu
þar sem hún hefur ekki fengið sínu fram-
gengt hvað varðar umgengni mína við dæt-
urnar. Ég er sjómaður og á því erfitt með að
taka dætur mínar heim eftir einhverju föstu
plani eins og hún gerir kröfu um.“
Ekki hægt að semja
í viðtalinu við Maríu segir m.a. að ekki
hafi verið föst regla á umgengni hans við
dæturnar og ekki hægt að semja við hann
um eitt eða neitt. Um þetta segir Davíð að
hann hafi skrifað bréf til Maríu sl. sumar þar
sem hann óskaði eftir að þau myndu ganga
frá samningi um sameiginlega forsjá dætra
þeirra. í bréfinu segir m.a.: „Ég legg til að
umgengni verði almennt sveigjanleg en þó
þannig að dæturnar verði hjá mér að
minnsta kosti 7 daga í mánuði, 4 vikur sam-
fellt að sumri, til skiptis hjá okkur annað
hvert ár um stórhátíðir (páska, jól og ára-
mót), en þetta jafngildir 120 dögum á ári.
Samkvæmt tillögum Félags ábyrgra feðra
til Alþingis haustið 2002 er lágmarksum-
gengni 118 dagar á ári.“
Davíð segir að hann hafi einnig boðið
Maríu að auk meðlagsins myndi hann
greiða helming af öllum kostnaði við upp-
eldi barnanna þ.e. lækniskostnaði tóm-
stundaiðkun, og svo framvegis.
Davíö Þór Einarsson Ósáttur við að vera sakaður um
að bera ekki sirm skerf af kostnaði vegna dætra sinna.
Bervitniá
mánudag
Condoleezza Rice,-
þjóðaröryggisráðgjafi Bush
Bandaríkja-
forseta, ber
vitni fyrir 11.
september
rannsóknar-
nefndinni á
mánudag.
Rannsókn nefndarinnar
miðar að því að kanna
hvort koma hefði mátt í veg
fyrir hryðjuverkin og er Rice
lykilvitni í málinu. Aður
hafði Hvíta húsið hafnað
beiðni um að þjóðarörygg-
isráðgjafinn bæri eiðsvarið
vitni en vegna mikils þrýst-
ings var sú ákvörðun dregin
til baka.
Sex ára
undir stýri
Gavin Conrad Harris,
31 árs Sydney-búi, hefur
verið sviptur ökuleyfi í
fimm ár fyrir að keyra
fullur. Það er reyndar
spurning hvort Harris
keyrði fullur því þegar
bíll hans lenti harkalega
framan á lögreglubíl þá
sat hann með sex ára
frænda sinn í kjöltunni.
Litli guttinn hélt um
stýrið og hafði ekki tekist
mjög vel upp að halda
stjórn á farartækinu.
Hvorugur var í sætis-
belti. Dómari lenti í
smávanda við að úr-
skurða um atvikið en
ákvað að lokum að Harr-
is skyldi sviptur ökuskír-
teininu auk þess sem
hann þarf að sitja í varð-
haldi um hverja helgi
næsta hálfa árið.
Stækkun
NATO fagnað
Stækkun Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) var
fagnað í gær. Her-
menn frá hinum
nýju sjö aðildar-
rflcjum sambands-
ins drógu þjóðfána
sína að húni við
höfuðstöðvarnar í
Brussel í Belgíu. Nýju rfldn í
sambandinu eru Búlgaría,
Eistland, Lettíand, Litháen,
Rúmenía, Slóvakía og Sló-
venía og er stækkunin nú
sú mesta frá stofnun sam-
bandsins árið 1949. Rfld
NATO eru nú 26 talsins.
F
JON OSKAR
t 3. apríl - 25. apríl 2004
Verið velkomin á opnun sýningar Jóns Óskars í Kling & Bang gallerí,
Laugavegi 23, laugardaginn 3. apríl kl. 17.00.
Sýningin er opin frá fimmtudegi til sunnudags frá kl. 14.00 til 18.00
Kling&Bang
gallerí