Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Side 19
DV Fókus
LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 1 9
Sjálfur sagðist Gilles de Rais um ævina hafa
séð voðalegri hluti en nokkur maður á þessari
plánetu. Átti hann við reynslu sína úr hundrað
ára stríðinu; opinberar orrustur og frístundir?
Frakkakóng og aðra veraldlega valdhafaf
biskupa og annað andlegt yfirvald: Svikin við
Jóhönnu aförk? Svikin við sig? Barnamorðin
og meiðingarnar? Eða kannski bara sjálfan
sig?
Kastali de Rais Þarna reyndi hann að særa fram Belzebúb og bar - að sögn - fram
barnablóð við seremónlurnar.
Carmes að beiðni fjölskyldu sinnar.
Vitorðsmennirnir tveir, meintir
starfsmenn skrímslisins, voru hins
vegar brenndir á báli að hengingu
lokinni. Munkurinn uppflosnaði og
aðrir úr sauðahjörð Gilles de Rais,
sem borið höfðu vitni gegn honum
og játað ýmislegt á sig í leiðinni, voru
lausir allra mála og hurfu á braut.
Sjálfur sagðist Gilles de Rais um
ævina hafa séð voðalegri hluti en
nokkur maður á þessari plánetu. Átti
hann við reynslu sína úr hundrað ára
stríðinu; opinberar orustur og frí-
stundir? Frakkakóng og aðra verald-
lega valdhafa, biskupa og annað
andlegt yfirvald; Svikin við Jóhönnu
af Örk? Svikin við sig? Barnamorðin
og meiðingarnar? Eða kannski bara
sjálfan sig?
Heimsmynd miðalda Þessar myrku aldir gátu bæði afsér málverk Hieronymusar Bo'sch og
glæpi Gilles de Rais.
Rauðhetta, Öskubuska og
kvennamorðinginn mikli
Franska skáldið Charles
Perrault var uppi á sautj-
ándu öld og gaf 1697 út bók-
ina Sögur frá gömlum tíma.
Þar hafði skrifað upp átta
gamlar þjóðsögur sem þar
með má segja að hafi tekið á sig
nokkuð endanlegt form. Meðal
• sagnanna eru Rauðhetta, Mjall-
hvít, öskubuska, Stígvélaði kött-
urinn, Tumi þumall og svo sagan
um Bláskegg sem talin er styðjast
við sögur af Gilles de Rais.
Þar sagði frá riddaranum
Raoul sem gekk að eiga sjö-
undu eiginkonu sina, Fatimu,
og bjó henni heimili í drunga-
legum kastala sínum. Þar kom
að hún slysaðist til að opna
læstar dyr og fann þar lík fyrri
kvennanna sex sem Raoul eða
Bláskeggur hafði myrt. Hann
hyggst bæta henni í safnið en
bræður Fatimu mæta á svæðið á
síðustu stundu og bjarga lífi
hennar.
Thorsararnir
Auður, áhrif og öfund
Á fyrri hluta tuttugustu aldar var
Thors-fjölskyldan, Thorsararnir svo-
kölluðu, umtalaðasta fólk á íslandi.
Og það að vonum. Thorsarar voru
ríkir, áhrifamiklir, voldugir og sam-
heldnir.
Öfundaraugu
Á þessum árum var því miður
ekkert Séð og heyrt gefið út. Fólk
varð að láta sér nægja söguburð
Gróu á Leiti og umtalið á Kjaftaklöpp
og símalínum bæja og sveita. En af
nógu var svo sem að taka því Thors-
arar komu víða við í þjóðfélaginu,
áttu glæsivillur, sumarhús, flotta bíla
og auður þeirra, sambönd og völd
skapaði fjölskyldunni margvísleg
tækifæri sem aðrir fengu ekki.
Margir horfðu öfundaraugum á
Thorsarana. Sú skoðun átti hljóm-
grunn víða að velgengni þeirra bitn-
aði á almenningi sem hefði minna til
skiptanna fyrir vikið. Lesendur Al-
þýðublaðsins, Tímans en þó einkum
Þjóðviljans fengu reglulega skammta
af stóryrðum og svigurmælum um
„Nauðmannakhkuna" sem hugsaði
um það eitt að skara eld að eigin
köku. Var Thorsurum iðulega kennt
um margt það sem aflaga fór í þjóð-
félaginu. Morgunblaðið og Vísir töl-
uðu aftur á móti máh fjölskyldunnar.
Brautryðjandinn
Ættfaðirinn Thor Jensen bjó fjöl-
skyldunni árið 1908 veglegt heimili
við Tjörnina í Reykjavík. Við Frí-
kirkjuveg reistí hann stærsta íbúðar-
hús þeirra tíma á íslandi og þykir
það enn veglegt; er um 400 fermetrar
að stærð, auk þess að vera einkar
glæsilegt að sjá og setur svip á mið-
borg Reykjavflcur. Löngu eftir að fjöl-
skyldan var horfin af sviði þjóðh'fsins
áttu margir vinstri sinnaðir rithöf-
undar og kennarar svefnlausar næt-
ur þegar þeir báru saman í huganum
„höll” Thorsaranna og „hreysi” al-
þýðunnar í bænum um aldamótin.
Myndir af þessum hrópandi and-
stæðumi voru á tímabili ekki óal-
gengar í kennslubókum og sögurit-
um rauðra penna.
Nú á dögum viðurkenna flestir að
Thor Jensen hefði engum gert greiða
með því að búa sér og börnum sín-
um tólf og vinnufólki lágreistar og
þröngar vistaverur. Enn síður mund-
um við minnast hans í dag ef hann
hefði tekið sér fjöldann að fordæmi í
stað þess að gerast athafnasamur
brautryðjandi í viðskiptum og at-
vinnuvegum. Hann tók satt að segja
ekki neitt frá neinum heldur lagði
grundvöll að auðsköpun allra lands-
manna og má með réttu kallast einn
af helstu höfundum hagsældarþjóð-
félags okkar nú á dögum. Kveða má
fest að orði um þetta: Án athafna-
manna aldamótanna síðustu er ólík-
legt að hér byggi sjálfstæð þjóð.
Nú á dögum viður-
kenna flestirað Thor
Jensen hefði engum
gert greiða með því
að búa sér og börnum
sínum tólfog vinnu-
fólki lágreistar og
þröngar vistaverur.
Enn síður mundum
við minnast hans í
dag efhann hefði tek-
ið sér fjöldann að for-
dæmi i stað þess að
gerast athafnasamur
brautryðjandi í við-
skiptum og atvinnu-
vegum.
Úr fátækt til auðlegðar
Thor Jensen var Dani. Hann kom
hingað unglingur að aldri með tvær
hendur tómar, kvæntist íslenskri al-
þýðustúlku og hóf sig upp með iðju-
semi við verslun og útgerð. Það
skiptust á skin og skúrir í atvinnu-
rekstri hans; um aldamótin varð
hann gjaldþrota, en áður en áratugur
var liðinn var hann orðinn stórauð-
ugur kaupmaður í Reykjavík. Hann
varð einn af frumkvöðlum togaraút-
gerðar hér á landi, en það var hún
sem öðrum atvinnugreinum fremur
gerði fsland rflct og íslendingum
kleift að komast út úr torfhúsunum
og timburhjöllunum í mannabústaði
nútímans. Thor var einn af frum-
kvöðlum að stofnun Eimskipafélags-
ins 1914 og á fjórða áratugnum reisti
hann stærsta framleiðslubýli ís-
lensks landbúnaðar, Korpúlfsstaði í
Mosfellssveit.
Mikill völlur var á útgerðarfélag-
inu Kveldúlfi sem Thor stofnaði 1912
og synir hans ráku næstu áratugina.
Það sinntí jöfnum höndum veiðum
(aðallega þorskveiðum og sfldveið-
um), vinnslu og sölu afurða erlendis.
Er talið að það hafi um tíma ráðið
yfir allt að þriðjungi af öllum fiskafla
landsmanna. Fyrirtækið var árum
saman bitbein í stjórnmáladeilum,
einkum á fjórða áratugunum, þegar
póhtíkin var hatramari en nú á dög-
um.
Pólitísk undiralda
Afstaðan til Thorsaranna og fyrir-
tækja þeirra markaðist öðrum þræði
af togstreitu um ólflcar leiðir í at-
vinnurekstri á fýrri hluta síðustu ald-
Guðmundur
Magnússon
skrifarum ThorJensen
og ætt hans
Söguþræðir
ar; samvinnumenn, sem boðuðu
kaupfélagarekstur, og sósíalistar,
sem boðuðu þjóðnýtingu, voru öfl-
ugir á þessum árum; vildu þeir
einkaframtakið feigt. Flokkastjóm-
mál áttu einnig hlut að máh því tveir
sona Thors sátu á Alþingi fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn, Ólafur, sem fimm
sinnum gegndi embættí forsætísráð-
herra, og Thor, sem seinna varð
sendiherra vestanhafs. Þegar fram
liðu stundir áttu fleiri, sem tengdust
fjölskyldunni, eftír að leggja stjóm-
málin fyrir sig; nefna má að Jóhann
Hafstein, tengdasonur Hauks, eins
Thorsbræðra, varð forsætísráðherra,
og Pétur Benediktsson (bróðir
Bjarna forsætisráðherra), tengda-
sonur Ólafs, varð alþingismaður,
sendiherra og bankastjóri. Thorsarar
blönduðust einnig inn í kjarabarátt-
una, því einn af sonum Thors Jen-
sen, Kjartan, var formaður Vinnu-
veitendasambandsins frá stofnun
þess á kreppuárunum og fram undir
lok sjöunda áratugarins. Og Thorsar-
ar tengdust gömlum valdaættum:
Soffía Lára, ein dætra Hannesar Haf-
stein ráðherra, var gefin Hauki
Thors.
Eiginmenn Thorssystra létu
einnig að sér kveða. Þannig var Guð-
mundur Vilhjálmsson, maður Krist-
ínar, forstjóri Eimskipafélagsins í
meira en þrjátí'u ár. Hallgrímur Fr.
Hallgrímsson, maður Margrétar Þor-
bjargar, var forstjóri oh'ufélagsins
Skeljungs. Tengdasonur þeirra er
Björgólfur Guðmundsson núverandi
formaður og aðaleigandi Lands-
bankans, en sonur hans er athafha-
maðurinn Björgólfur Thor, sem lýst
hefur áhuga á að kaupa hið gamla
hús langaafa sfns við Tjörnina, svo
sem lesa máttí í blöðunum fyrr í vik-
unni.
Nýtt blómaskeið?
Thor Jensen lést háaldraður árið
1947, en valda- og áhrifaskeiði fjöl-
skyldunnar í íslenskum stjórnmálum
og atvinnuh'fi lauk að mestu á sjö-
unda áratugnum. Telja verður þó
ólfldegt að það hafi skaðað einhvem
á þeim ámm, sem síðan em liðin, að
geta rakið ættir sínar til þessa jnikla
athafnamanns og brautryðjanda. En
hvort Thorsarar sem ættarveldi
muni ganga í endurnýjun h'fdaga
með hinni nýju kynslóð, sem
Björgólfur Thor Björgólfsson fer fyr-
ir, eins og ýmsir em að velta fyrir sér
þessa dagana, verður reynslan ein að
skera úr um.