Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Qupperneq 29
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 3. APRlL 2004 29
"
'
og krónprinsinn var krýndur reyndi eigin-
konan að þvinga sér leið að krýningunni, en
án árangurs. Prinsinn, sem varð Georg IV,
ákærði hana fyrir framhjáhald, en almenn-
ingur stóð með henni og fannst koma vel á
vondan. Hinn nýi konungur var ekki vel að
sér í stjómkænsku, en hafði mjög gaman af
hinu ljúfa lífi. Hann lét endurbyggja
Windsor-kastala og Buckingham-höll í nú-
verandi mynd, og átti mesta málverkasafn
Evrópu. Hann kaus að dveljast í Brighton
með frú Fitzhebert og einkakokki sínum
sem útbjó allt að 900 rétta máltíðir, og end-
aði ævina þar í rúmi sínu, spikfeitur og
íklæddur austurlenskum páfuglsskrúðklæð-
um. Dóttir Georgs hins IV og eina lögmæta
afkvæmi hafði látist við barnsburð, og við
ríki tók yngri bróðir hans, nú
Vilhjálmur IV.
Vilhjálmur hafði • ekki
búist við ríkiserfðum, og
hafði átt feril í sjóhernum.
Hann átti tíu börn með
dóttur írsks dómara, hinni
fögru frú Jordan, en þar sem prinsinn var
stöðugt skuldugur þurfti hún reglulega að
yfirgefa börnin til að leika á sviði svo þau
hefðu í sig og á. Þegar það varð ljóst að hann
myndi taka við ríki þurfti hins vegar að finna
handa honum viðeigandi kvonfang. Prins-
inn varð nú ástfanginn af konu sem nefndist
ungfrú Wykeham, en lét undan og yfirgaf
hana grátandi tU að giftast þýskri prinsessu.
Prinsessan, Adelaide, var á allan hátt fyr-
irmyndareiginkona og stjúpmóðir hinna 10
óskilgetnu barna, nema hvað henni
mistókst að geta erfingja, þar sem báðar
dætur hennar létust börn að aldri. Vilhjálm-
ur lést árið 1834, ekki á klósettinu eins og
fyrirrennari hans, heldur í miðri ræðu þegar
hann ávarpaði biskupaþing Bretlandseyja.
Þar sem Vilhjálmur átti engan lögmætan
erfingja gekk krúnan nú til bróðurdóttir
hans Viktoríu. Viktoría var aðeins 18 ára
gömul, en hún átti eftir að sitja í bresku
hásæti lengur en nokkur annar þjóðhöfðingi
og náði ríki hennar yfir um fjórðung mann-
kyns.
Var Kobbi kviðrista prins?
Viktoría varð vinsæl strax við krýningu.
Eins og Vilhjálmur hafði spáð fyrir um voru
sjóliðar reiðubúnir til að berjast fyrir unga
og ógifta drottningu, og tattóveruðu andlit
hennar á hendurnar. Viktoría giftist þýskum
prins, Albert, árið 1840. Hann reyndist fyrir-
myndar drottningarmaður, og var hjóna-
band þeirra hamingjusamt þrátt fyrir að
hafa verið ákveðið af foreldrum þeirra. Þau
sáust saman í göngutúr snemma morguns
daginn eftir brúðkaupið, sem fékk suma til
að hafa áhyggjur af því hvort erfingi myndi
verða getinn. En það kom ekki að sök, þau
eignuðust fjóra syni og fimm dætur, og voru
dugleg við að gifta börn sín inn í erlendar
kóngafjölskyldur.
Prinsinn lést skyndilega árið 1861, og
drottning tók andlát hans mjög nærri sér.
Hún forðaðist að koma fram opinberlega
þar eftir og byggði minnisvarða um mann
sinn víðs vegar um rflci sitt. Er Royal Albert
Hall í London með þeim þekktari. Þó að
Viktoría hafi verið dáð átti hún, eins og flest-
ir í ættinni, í erfiðleikum með börn sín. Elsti
sonur hennar, Játvarður, sem var rfldserf-
ingi, þótti almennt til fyrirmyndar, en þegar
hann átti í ástarsambandi við írska snót
sama ár og Albert prins dó kenndi drottning
honum um dauða eiginmanns síns. Arið
1863 giftist hann danskri prinsessu, Al-
exöndru, og þykir hennar ásjóna sú fegursta
sem nú hangir í Westminster-höll. Hún var
heimakær og hugsaði vel um sex börn
þeirra, en hann hafði mest gaman af veð-
reiðum og fjárhættuspilum og áttu þau fátt
sameiginlegt.
Játvarður var sextugur þegar móðir hans
dó, og var hann konungur í aðeins níu ár
áður en hann lést. Sonur Játvarðar, kallaður
Eddy, hefði átt að taka við krúnunni, þrátt
fyrir að vera á mörkum þess að vera þroska-
heftur og hafa einnig erft heyrnargalla frá
móður sinni. Hann hafði dálæti á vændis-
konum og fékk sýfilis, og ýmsar kenningar
eru uppi um að hann og fjöldamorðinginn
Kobbi kviðrista hafi verið að hylma yfir
hneyksli tengd prinsinum, eða jafhvel að
þeir hafi verið einn og sami maður. Eddy
lést þó um aldur fram.
Bróðir hans Georg hafði ekki búist við
því að taka við af föður sínum og starfaði
sem sjóliðsforingi, en varð krýndur Georg V
árið 1910. Hann var giftur þýskri prinsessu,
Maríu, sem hafði áður verið trúlofuð bróð-
ur hans Eddy. Ólíkt flestum öðrum með-
limum ættarinnar átti hann gott og náið
samband við föður sinn. Hann var konung-
ur þegar fyrri heimsstyrjöldin braust út, og
til að sýna samúð með þjáðri þjóðinni
bannaði hann allar vínveitingar í höllinni
meðan á stríðinu stóð. Þegar hann fór á
veiðar var bráðin gefm sjúkrahúsum, og
hann var einnig duglegur við að heimsækja
hermenn. Þegar Bretland og Þýskaland áttu
í stríði þótti ekki lengur nógu gott að kon-
ungsfjölskyldan héti hinu rammþýskanafni
Hannover, og breytti hún því nafninu í
Windsor, eftir Windsor-kastala, sem hún
hefur heitið síðan. María Englandsdrotting
þótti kaldlynd, og töldu sumir að hana hafi
skort getuna til að veita eðlilega móðurást.
Konungur segir af sér fyrir ástina
Elsti sonur hennar, Játvarður, átti eftir
að leita þeirrar ástar sem hann skorti í
æsku í faðmi kvenna. Bræður hans giftu sig
allir ungir, en hann spilaði golf og dansaði
fram á nótt og ferðaðist víða, enda talinn
ákjósanlegasti piparsveinn í heimi. Hann
átti í ástarsamböndum við giftar konur og
varð loks ástfanginn af hinni tvígiftu og
bandarísku Wallis Simpson. Bresku blöðin
gættu þagmælsku, en frönsku blöðin fluttu
reglulega fregnir af sambandi þeirra.
Hann varð konungur þegar faðir hans
dó árið 1936, og skömmu síðar skildi
Simpson við seinni eiginmann sinn. For-
sætisráðherra kallaði konung á sinn fund
og réði honum frá því að giftast henni, en
allt kom fyrir ekki. Einn hertogi stakk upp
á að hann giftist henni borgaralega, sem
myndi þýða að hún yrði ekki drottning, en
fáir gátu sætt sig við slíka lausn. Þann 10.
desember lýsti hann því yfir að hann
treysti sér ekki til að vera konungur án
konunnar sem hann elskaði. Hann sagði
af sér og þau giftust ári síðar. Hann fékk í
staðinn titilinn hertoginn af Windsor, en
eiginkonu hans var bannað að taka sér tit-
ilinn hertogaynja. Leiddi þetta til illdeilna
innan fjölskyldunnar, og hertoginn og eig-
inkona hans bjuggu til æviloka í Frakk-
landi.
Hertoginn, sem bar titilinn Játvarður
VIII þann stutta tíma sem hann ríkti, hefur
verið talinn óforbetranlegur rómantíker,
maðurinn sem fórnaði kongungsríkinu
fyrir ástina, en sumir hafa viljað meina að
hann hafi verið látinn segja af sér vegna
dálætis á Hitler. Yngri bróðir Játvarðar,
sem nú varð Georg VI, tók við krúnunni.
Pabbi hans hafði strítt honum í æsku, sem
leiddi til þess að hann var feiminn og
stamaði. Hann giftist lafði Elísabetu,
enskri hefðarkonu, og bæði gegndu þau
skyldum sínum með sóma, hvort sem um
var að ræða hina erfiðu tíma seinni heims-
styrjaldarinnar eða upplausn breska
heimsveldisins sem fylgdi í kjölfarið. Kon-
ungur dó úr krabbameini árið 1952, en
kona hans lifði hann um 50 ár, og lést árið
2002, þá 102 ára að aldri. Elísabet, núver-
andi Englandsdrotting, tók við af föður
sínum og ríkir enn.
valur@dv.is
W£.\j m
|n £
(■i é'ist' \
jHj Flfel
Mm
/ l iVi
í i
haldi i
Ehsabet hefur haft litia ástæðu tií að brosa eftir að
börri henrtar komust á fegg.
Ceorg HL Var Uúr konu sinni en
úrskuróaöur geöveikur.
Konungur skoðar flotastöð i seinni heimsstyrjöldinni.
Með honum er eiginkona hans Elísabet, sem lést 2002.
Játvarður Vlt var var giftur hinni
norsku Maud, en rikti aðeins i áratug.