Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Síða 35
DV Sport
LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 35
------------------------*■
n
Helena Sverrisdóttir er líklega mesta efni sem komið hefur
fram í íslenskum kvennakörfubolta. Hún er 16 ára og náði
fjórfaldri tvennu að meðaltali með Haukum í 2. deildinni í
vetur og skoraði mest 86 stig í einum leik.
Fjórföld tvenna
að meðaltali
„Ég get ekki sagt annað en ég sé ánægð með tímabilið,“ segir hin
16 ára Helena Sverrisdóttir, íyrirliði 2. deildarmeistara Hauka í
kvennakörfunni. Helena hefur þrátt fyrir ungan aldur leitt Hafn-
arfjarðarliðið aftur upp í efstu deild en Haukar unnu alla 16 leik-
ina með samtals 1002 stigum í plús eða hvern leik með 62,6 stig-
um að meðaltali.
markmið Hauka í 1. deild kvenna
næsta vetur. „Það er erfitt að setja
niður markmið okkar £ dag þar sem
ég veit ekki hvemig liðið verður. Við
gefum það þó strax út að það er
stefnan að halda sér uppi.“
Vonast eftir tækifæri
„Ég vona að ég fái tækifæri með
landsliðinu en ég veit þó ekki hvern-
ig það verður," segir Helena um A-
landsliðið, sem fær nóg af verkefn-
um í sumar en Helena verður einnig
á fleygiferð með yngri landsliðuh-
um. „Eg er búin að vera r' körfunni
síðan ég var sex ára og ég fylgdi fjöl-
skyldunni út í körfuna. Ég man þó
ekki lengur hvort það var bróðir
minn eða foreldrarnir sem smituðu
mig af körfunni. Mamma og pabbi
em hins vegar rosalega dugleg að
styðja við bakið á mér og mæta á alla
leiki. Ég var í fótbolta þangað til fyrir
tveimur ámm þegar ég hætti í fót-
bolta og valdi körfuna. Þegár ég var
yngri ædaði ég mér að
æfa báðar íþrótt-
en svo
valdi ég
körfu-
bolt-
„Það var frekar erfitt að ná upp
góðri einbeitingu fyrir þessa leiki í
deildinni en við reyndum okkar
besta," segir Helena, sem náði ótrú-
legu afreki með því að vera með fjór-
falda tvennu að meðaltah í leik. Hel-
ena er fjölhæfur leikmaður, með
boltatækni og leikstjórnunarhæfi-
lega bakvarðarins í takt við stærð og
hreyfingar stóra mannsins. Helena
skoraði 37,6 stig,.tók 13,3 fráköst, gaf
11,6 stoðsendingar og stal 10,2 bolt-
um að meðaltali í deildarleikjunum
16 og skoraði alls 601 stig, 74 stigum
meira en andstæðingar Hauka skor-
uðu samtals.
Þrátt fyrir þessa einstöku tölfræði
vora það þó tveir síðustu leikirnir
sem stóðu upp úr. í öðrum skoraði
hún 86 stig gegn Ármanni/Þrótd og í
hinum gegn Hrunamönnum náði
hún tvöfaldri þrefaldri tvennu -
skoraði 45 sdg, tók 20 fráköst og gaf
20 stoðsendingar - sem era bæði
einstök afrek í meistaraflokki
kvenna hér á landi.
Fáránlegur
munur
„Það kom
aldrei til
greina að
fara frá
Haukum
og spila í
1. deild-
inni,“
segir
Helena
en að
margra
mati átd
hún að
spila í hópi
þeirra bestu
í vetur og hún
sjálf fann líka
fýrir miklum við-
brigðum frá vetrinum
á undan. „Það er alveg fá
ránlega mikill munur á 1. og 2.
deildinni. Það var mikil upplif-
un að spila með Haukum í
efstu deild og þetta var allt |§g|
annaö en ég var vön. Allir ,i
leikir vora þvflíkt erfiðir jl \ ||.
og aldrei neinn léttur
leikur,“ sagði Helena,
sem var valinn besd ungi
leikmaður deildarinnar en
hún skoraði þá 17,1 stíg, tók 9,5
fr áköst og gaf 4,3 stoðsendingar að
meðaltali. Það dugði ekki Haukum
en ekkert lið hefur fallið áður á jafn-
mörgum stigum. „Við klúðruðum
þessu í lokin,“ segir Helena og það
er ekkert klúður á dagskrá næsta
vetur þegar hún mætir með Hauk-
unum í 1. deildina, sem verður
væntanlega síðasta tímabil hennar
hér á landi í langan tíma.
„Á maður ekki alltaf að stefha á
það að vinna?“ segir Helena um
ann af því mér fannst miklu
skemmtilegra í körfunni," segir Hel-
ena, sem varð í lok ársins 2002 yngsti
A-landsliðsmaður íslands í hópí-
þrótt er hún spilaði með landsliðinu
á æfingamóti £ Lúxemborg.
Helena stefnir hátt
Helena stefnir hátt og atvinnu-
mennskan er ekki úr myndinni. Hún
ætíar að reyna að komast út í skóla
sem fyrst og klára því ekki stúdents-
prófið hér heima. „Ég ætía að fara í
skóla til Bandaríkjanna þarnæsta
haust, vera eitt ár í framhaldsskóla
þar og reyna að ná það góðum ein-
kunnum að ég komist áfram inn í
háskóla," segir Helena, sem hefur þó
ekkert ákveðið ennþá hvað hún ætí-
ar að læra.
Tímabilið er þó ekki búið hjá Hel-
enu, sem er að spila til úrslita um ís-
landsmeistaratítílinn í tveimur
flokkum um helgina með unglinga-
flokki í dag og í 10. flokki á sunnu-
daginn. Sumarið verður einnig mjög
viðburðaríkt, fullt af landsliðsverk-
efnum í gangi, en Helena er ekkert
að verða leið á körfunni þó að ekki
sé mikið um frí á næstunni. „Ég æfi á
bilinu 6 til 10 sinnum í vildi og mér
finnst það ekkert erfitt. Ef ég verð
líkamlega þreytt tek ég mér frí frá
æfingum en ég hef aldrei orðið leið á
körfubolta. Þegar ég tek mér frí er ég
líka alveg við-
þolslaus og
það er því
ekki
hægt að
halda
mér frá
körf-
unni."
ooj@dv.is
IP
„Ég ætlo að fara í skóla
til Bandaríkjanna þar-
næsta haustr vera eitt
ar í framhaldsskóla þar
og reyna að ná það
góðum einkunnum að
ég komist áfram inn i
háskóla.JJ
i