Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2004, Side 47
D*V Síöast en ekki síst
LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004
Pakkið fætt 1990
DavíðÞórJónsson
skrifar um fermingar og
fertugsafmæli
Kjallari
Um þessar mundir dynur á mér
hrina af fertugsafmælum, en þau
eru eitthvert mesta hræsnissukk
sem fyrirfinnst. Hvað veldur því að
einhver kýs að fagna þessu? Getur
verið að veisla, gjafir og hópþrýst-
ingur skipti þarna einhverju máli?
Græðgin er auðvitað eðlilegur part-
ur af sálarlíft þeirra sem verða fer-
tugir í ár í allsnægtalandi. Mesta
samfélagsmeinið er þó auðvitað þau
óheyrilegu fjárútlát sem 1964 ár-
gangurinn er að kalla yfir heimilin í
landinu með þessari veislugleði.
Fermingar verri en fertugs-
afmæli?
Þessar fullyrðingar eru vitaskuld
allar út í hött og ekki nokkrum heil-
vita manni samboðið að setja annað
eins fram. Að gefa sér að maður geti
lesið hug og hjörtu heils árgangs ís-
lendinga og ekki séð þar annað en
græðgi og lygar er ekkert annað en
fordómar af verstu sort. En hvað ef
við umorðum þennan inngang og
höfum hann svona:
Fermingar eru eitthvert mesta
hræsnissukk sem fyrirfinnst. Hvað
veldur því að einhver kýs að fagna
þessu? Getur verið að veisla, gjafir
og hópþrýstingur skipti þarna ein-
hverju máli? Græðgin er auðvitað
eðlilegur partur af sálarlífi íjórtán
ára unglinga í allsnægtalandi. Mesta
samfélagsmeinið er þó auðvitað þau
óheyrilegu fjárútlát sem kirkjan er
að kalla yfir heimilin í landinu.
Siðblind fermingarbörn?
Þá er þetta af einhverjum ástæð-
um ekki lengur fordómahlaðinn
þvættingur heldur meginuppistað-
an í meintri vitrænni umfjöllun um
fermingar eftir Birgi nokkurn Bald-
ursson sem í vikunni birtist á vefn-
um vantru.net, en hann er alls ekki
ur og fá mörg hundruð þúsund
krónur í fermingargjöf. í heifum ár-
gangi af íslendingum eru auðvitað
margir hræsnarar, en þar er líka
mikið um heiðursfólk sem á betra
skilið en að sitja undir ærumeiðing-
um Birgis og hans líka fyrir það eitt
að vera kristinn og fjórtán ára.
Það að bjóða nánustu fjölskyldu
og vinum til samsætis í tilefiii af
fermingu manns er jafneðlilegt og
að vilja seinna á ævinni fagna brúð-
kaupinu og fertugsafmælinu í góðra
vina hópi. Enginn hefur rétt til að
gera manni upp annarlegar forsend-
ur fyrir því.
einn um að hafa gagnrýnt fermingar
og fermingarveislur. Þessi söngur er
reyndar fyrir nokkru orðinn fastur
liður um hverja páska, en kirkjulegar
athafnir sem dreifast betur yfir árið
verða ekki fýrir barðinu á honum. Ég
minnist þess til dæmis ekki að hafa
heyrt fullyrt að öll brúðhjón stjórnist
af græðgi og ást þeirra sé uppgerð.
Hins vegar virðist Birgir og reyndar
margir aðrir halda að á fjórtánda
aldursári verði tímabundin stökk-
breyting í haúsnum á hverju einasta
mannsbarni sem geri það að verk-
um að rétt yfir páskana það árið
verði það siðblint og stjórnist sem
félagsvera eingöngu af lævísi og
undirferli.
Lög gegn sleggjudómum
Til allrar hamingju hafa íslend-
ingar á undanfömum ámm upp til
hópa tamið sér ákveðna háttvísi í
opinberri orðræðu. Jafiivel eru í gildi
lög sem gera það refsivert að fella
sleggjudóma um heilu þjóðfélags-
hópana, svo sem nýbúa, samkyn-
hneigða, múslima og þar fram eftir
götunum. Lögin era með öllu óþörf
því enginn heilvita maður tekur
mark á þeim sem ekki fylgir þeirri
reglu af sjáfsdáðum að brjóta ekki í
bága við þau. Hins vegar virðist
þetta ekki gilda um unglinga. Um
unglinga má alhæfa fram og til baka,
jafnvel bera þá hinum þyngstu sök-
um um illt innræti og skídegt eðli,
án þess að ástæða þyki til að gera
menn ábyrga orða sinna. Ef þú ert
kristion og fæddur árið 1990 ertu
réttlaus. Það er fullyrt í fjölmiðluqi
að þig geti ekki langað að hitta ætt-
ingja þína og vini nema til þess að
græða á þeim og að persónuleg trú-
arsannfæring þín sé uppgerð og
hræsni.
Vondir kapítalistar
Víst gera margir meira úr ferm-
ingunni en mér sjálfum þykir
ástæða til og óneitanlega hafa vond-
ir kapítalistar migið miskunnarlaust
utan í hana til að græða peninga. En
það má ekki gleyma því að það
halda ekki öll böm 100 manna veisl-
• Morgunblaðið hljóp fyrsta
apríl 2. apríl á vefsíðu sinni. Á vef
sínum sagði Morgunblaðið frá
fornminjafúndi í
Skutulsfirði og
byggði þar á frétt
sem birst hafði í
Bæjaiins besta á ísa-
firði daginn áður.
Þar var um aprílgabb
að ræða sem Morg-
unblaðið gleypti hrátt og setti á
veraldarvefinn. Sem betur fer var
fréttin fljótlega tekin af vefnum
því þetta grín var aðeins til eins
dags ætlað...
• Bankagjaldkerar víða um land
hafa áhyggjur af nýja 5000 króna
seðlinum. Þykja
pappírsgæði hans
ekki eins góð og vera
þyrfti og hafa gjald-
kerarnir áhyggjur af
að hann eyðist upp.
Jafhvel í vösum fólks
og því eins gott að
spara þá ekld of lengi og eyða
frekar sem fyrst. Þykir það ekki
góð lenska í fjármálum almenn-
ings sem kunnugt er...
• Eins og DV hefur
greint frá vakti
nokkra athygli að á
stórgóða blaðaaug-
lýsingu frá frétta-
stofu Stöðvar 2, þar
sem gat að líta mynd
af hinum föngulega og fríða hópi
fréttamanna stoðvarinnar, vant-
aði hinn smáa en knáa hauk Þór
Jónsson. Mun Þór gefa þá skýr-
ingu að hann hafi ekki sést því
hann stóð á bak við Gissur Sig-
urðsson, þann gamla og reynda
fréttaref. Þessi skýring Þórs þykir
ekki trúverðug því glöggir menn
tóku eftir því að Gissur vantaði
einnig á myndina. Ætíar þetta
mál varðandi auglýsinguna að
reynast hið dularfýllsta...
Mótaðu
verðlaunasætið!
mazDa
Mazda 3 T1,6 I kostar aðeins
1.795.000 kr
Bfil órsins í Danmörku, Finnlandi og Tékklandi.
Rnnað sætið fvali ó bfi órsins f Evrópu ósamtVWGolf.
flukahlutir ó mynd: ólfelgur og vindskeið ó afturhlera
Skúlagötu 59, %fmí 540 9400 www.raeslr.is
Mazaaö ervel búinn og kraftmikill bfil sem þú verður að skoða.
Opið fró kl. 12-16 laugardaga hmbhmhi