Akranes - 01.01.1957, Síða 34
Þessi mynd aj Siglufirði, var tekin s. I. sumar, þegar sildarverksmiSjurnar voru að fara í gang hver
af annarri. Reykinn af þeim leggur hútt í loft upp, því dð logn er i bænum. ■—
(Ljósm.: Jóhannes Þórðarson, Siglufirði).
það, að fjöregg atvinnulífsins á Siglu-
firði síðastliðin 2 ár, sé útgerð tveggja
togara á vegum bæjarins. Þegar annar
þeirra er í höfn með afla, vinna þar á
3. hundrað manns. Á s. 1. ári var tap á
skipunum 1,4 milljón kr., en nokkru
meira vegna strandsins á b.v. Hafliða. 1
vinnulaun greiddu þeir hins vegar 12
milljón kr. á sjó og landi. Þrátt fyrir
tapið, hefur togarareksturinn verið bæn-
um ómetanleg lyftistöng atvinnulífsins.
S. 1. vetur voru eingöngu Siglfirzkir sjó-
menn á skipunum, og eru þeir taldir
mjög góðir togarasjómenn, eftir að þeir
fóru að venjast þeim veiðum. Skipstjór-
ar á skipunum eru: Gísli Jónsson og Al-
freð Finnbogason, báðir eru þeir úrvals-
menn og með þeirn hæstu í flotanum.
Með aðstoð ríkisins fengu togarar bæj-
arins ómetanlega aðstöðu við rekstur
skipanna, er það byggði fullkomið hrað-
frystihús í sambandi við Síldarverksmiðj-
ur ríkisins. Þetta hús tók til starfa 27.
október 1953, og framleiðir einnig ís
handa þeim, svo að nú athafna þeir sig
algerlega í heimahöfn (Ef Akurnesingar
hefðu svoddan heilsu).
1 Siglufirði eru og gerðir út nokkrir
vélbátar á tímabilinu okt.—des., og svo
eitthvað á vorin, áður en síldveiðar hefj-
ast. Þetta gefur auðvitað nokkra vinnu.
Afli er oft tregur og stirðar gæftir. Flef-
ur aflinn þó farið heldur batnandi hin
síðari ár.
34
AKRANES