Akranes - 01.01.1957, Síða 51
ÓL. B. BJÖRNSSON:
Þættir úr sögu Akraness 5 6.
HVERSU AKRANES BYGGÐIST
4. kafli. — 1870—1900. — Byggingar batna.
114. Bergþórshvolí —
Skólabraut 29.
Þetta var timburhús, byggt 1897, 12
álna langt og 6 álna breytt. Ibúðarher-
bergi voru sitt í hvorum enda. Kjallari
var undir öllu húsinu. Inngangsskúr var
við norðurhlið. Húsið er fyrst virt 15.
febrúar 1900, síðast i virðingargerðirmi
stendur svo: „Húsið er vel gjört, vandað
og vel hirt. Þetta hús er nú virt á kr.
1000.00“.
Hús þetta byggði Bergþór Árnason, og
bjó þar eftir það meðan hann lifði. í
kirkjubókinni hér hefur síra Þorsteinn
Briem skrifað niður eftir Bergþóri, að
hann sé fæddur í Stóra-Lambhaga í 1.
viku þorra 1844. Þetta er ekki rétt.
Hann er fæddur þar 14. nóv. 1845.
Faðir Bergþórs, Árni Bergþórsson, er
fæddur á Hafþórsstöðum í Norðurárdal
3. maí 1798. Hann var tvíburi móti and-
vana bróður, og sjálfur skírður skemmri
skírn og því verið talið mjög tvísýnt um
líf drengsins. Foreldrar Árna voru: Berg-
þór Ólafsson og Þórunn Bjarnadóttir,
hjón búandi á Hafþórsstöðum. Líklega
hefur Þórunn þessi verið trúlofuð eða
gift áður, því að í aðalmanntalinu 1801
eru hjá þeim þessi börn þeirra hjóna:
Ólafur, Árni, Ingibjörg og Arndís.
Foreldrar Bergþórs Árnasonar voru:
Árni Bergþórsson, fyrnefndur, bóndi í
Stóra-Lambhaga og kona hans Málfríður
Guðlaugsdóttir. Foreldrar hennar voru:
Guðlaugur Bjaimason og Þóra Sigurðar-
dóttir, hjón á Kolslæk í Hálsasveit. Mál-
friður þessi er fædd 21. júlí 1804.
I Manntalinu 1801 er á Kolslæk þetta
fólk:
Guðlaugur Bjarnason, 33 ára.
Þóra Sigurðardóttir, 32 ára.
Bjarni Guðlaugsson cg
Ingibjörg Guðlaugsdóttir, börn
þeirra.
I aðalmanntalinu 1850 er eftirtalið
fólk í Stóra-Lambhaga:
Árni Bergþórsson, 55 ára og kona
hans Málfríður Guðlaugsdóttir.
Þórunn Árnadóttir.
Jóhanna Árnadóttir.
Arnfríður Árnadóttir.
öll fædd í Reykholtssókn.
Guðrún Árnadóttir.
Árni Árnason.
Sigríður Árnadóttir.
Erlendur Árnason.
Bergþór Árnason.
Ólafur Árnason.
Líklega öll fædd í Stóra-Lambhaga.
Heyrt hefi ég að þessi börn hafi verið
14 alls, en sennilega hafa nokkur þeirra
dáið ung. Af þessu er ljóst, að Árni og
Málfríður hafa fyrst búið í Reykholts-
sókn, en ekki hefi ég athugað hvar.
Það getur verið að byrjað hafi verið að
byggja þetta hús á árinu 1896, en þeirra
hjóna er þar fyrst getið í desember 1897,
og árið 1896 eru þau á Austurvöllum,
en þau voru hér víðar, m. a. i Garðhús-
um. 1897 er á Bergþórshvoli þetta fólk:
AKRANES