Akranes - 01.01.1957, Síða 54
Bjarni Brynjólfsson.
bónda í Lækjardal á Skagaströnd Jóns-
sonar. Kona Brynjólfs og móðir Bjarna
var Ingiríður, dóttir Ólafs bónda í Vestri-
Rauðárhól í Stokkseyrarhreppi Jensson-
ar í Ranakoti, Haagenssonar, Jens Möll-
ers beykis á Skúmsstöðum, Jónssonar í
Steinskoti, Nikulássonar. Jens druknaði
af Jóni stromp í lendingu í Þorlákshöfn
25. febrúar 1812. (Guðni Jónsson scgir
frá því, „að sá róður hafi verið farinn
fyrir óskiljanlegt ofurkapp Jens Haagens-
sonar. Þótti mönnum sem feigð hefði
kallað hann“. Kona Jens Haagenssonar
var Margrét Helgadóttir hreppstjóra i
Brattsholti Sigurðssonar,
Ólafur Jensson er fæddur 1803, bjó
einnig í Vestra-Stokkseyrarseli, en flutt-
ist 1845 að Vigdisarvöllum, en bjó síð-
ast í Setbergskoti við Hafnarfjörð og dó
þar 7. marz 1860. Kona hans var Guð-
rún Halldórsdóttir, og áttu þau 4 börn,
sem komust upp. Meðal þeirra voru fyrr-
nefnd Ingiríður, rnóðir Bjarna Brynjólfs-
sonar, og Jens, verzlunarmaður í Hafnar-
firði, síðar timburmaður í Reykjavík.
HallfríÖur Sigtryggsdóttir.
Tíu ára gamall fluttist Bjarni með
foreldrum sínum í Skagann og átti þar
heima alla stund síðan til dauðadags, 28.
marz 1955.
Aðeins 12 ára gamall byrjaði Bjarni
sjómannsferil sinn á opnu skipi, og mátti
segja að hann stundaði sjó óslitið alla
ævi, eða um 64 ára skeið. Hann varð
snemma formaður á áraskipum, en þeg-
ar mótorbátarnir koma til sögunnar varð
hann fljótur til í félagi við nokkra aðra
menn að byggja mótorbát, m/b Hegra.
Á honum varð hann vélstjóri, og lengi
bæði vélstjóri og formaður, þótt hann
hefði hvorugt lært. Hefur nokkuð verið
sagt frá þessu í útgerðarþættinum áður
í blaðinu.
Bjarni var allvel greindur og sérstak-
lega athugull, og vildi vita sem flest til
hlítar. Hann var því enginn óðagotsmað-
•ur, fór sér hægt, en vildi þó ekki síður
en ýmsir ná marki og sjá árangur af
athugunum sínum og iðju. Af sinni
löngu reynslu í sambandi við sjósókn og
fiskveiðar, varð honum vel ljóst hve hin
54
A K R A N E S