Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2004, Side 6
6 MÁNUDAGUR 17. MAÍ2004
Fréttir DV
Páll dreifir
fræjum
Landgræðsluflugvélin
Páll Sveinsson er byrjuð sitt
árlega landgræðsluflug.
Búið er að prófa vélina eftir
vetursetu og þjálfa flug-
mennina sem fljúga henni
endurgjaldslaust í þessu
starfi. Flugvélin er af gerð-
inni DC 3, árgerð 1943. Hún
á sér langa og merka sögu,
en Flugfélag íslands gaf
hana til Landgræðslunnar
árið 1972 og hefur hún verið
notuð til að dreifa áburði og
grasfræi í rúm 30 ár. Vélin
hefur reynst happafley og
verið flogið í tugþúsundir
flugtíma án vandræða.
Eldur laus á
sólbaðsstofu
Lögreglunni á Sauðár-
króki barst tílkynning um
eid í sólbaðsstofúnni
Lindinni við Borgarteig
síðdegis í gær. Lögregla
ásamt slökkviliðinu á
Sauðárkróki fór á staðinn
og kom þá í ljós að kvikn-
að hafði í ruslapoka inn-
andyra. Eldsupptök eru
að öllum líkindum út frá
glóð í srgarettustubbi.
Fórstu í
Eurovisionpartí?
Sigvaldi Kaldalóns
(Svali á Fm 95,7)
„Já - heldur betur maður. Ég
byrjaði á að heimsækja for-
eldra mína og fór svo ípartl
hjá honum Simba hár-
greiðslumanni. Þar var svaka
stuð. Eftir keppnina tók svo
vinnan við. Varað plötusnúö-
ast á Sólon langt fram undir
morgun. Það var allt vitlaust I
bænum. Allar götur troðfullar
klukkan hálfsex í morgun og
alveg sama hvað maðurspil-
aði. Það virkaði allt."
Hann segir / Hún segir
„Já, reyndar fór ég í Euro-
visionpartf hjá Helgu og Arn-
ari Gunnlaugssyni. Þetta var
einstaklega velheppnað partí
enda komum við allar saman
þarna gellurnar í fótboltafé-
laginu Áfram stelpur. Þetta er
hópur eðalkvenna sem spilar
fotbolta saman einu sinni í
viku. Það var sem sagt mikið
fjör hjá okkur og endaöi
partýíið með að við buðum
strákunum í fótboltaleik en
þeir þorðu ekki að spila á
móti okkur. Kannski vegna
þess aö við erum stórhættu-
legar í skriðtæklingunum
þegar við erum komnará
háu hælana."
Dóra Takefusa
Það er ekki þingmeirihluti fyrir óbreyttu fjölmiðlafrumvarpi. Halldór Ásgrímsson
segir Davíð Oddssyni það í dag en viðbrögð Davíðs ráða framtíð stjórnarsamstarfs-
ins. Nánustu lögspekingar Halldórs hafa sagt honum að fjölmiðlafrumvarpið stand-
ist ekki stjórnarskrá.
Framsokn vill stoppa
fjölmiðlalrumvappið
Halldór Ásgrímsson mun færa Davíð Oddssyni þau skilaboð í
dag að þingmenn Framsóknarflokksins muni ekki styðja fjöl-
miðlafrumvarpið öðruvísi en að verulegar breytingar verði gerð-
ar á því.
asÉsí
Er þetta í samræmi við skilaboð
Jóm'nu Bjartmarz varaformanns
allsherjarnefndar sem sagði á Al-
þingi að hún gengi út frá því að
breytingar yrðu gerðar á frumvarp-
inu. Aðrir þingmenn sem DV ræddi
við tóku undir sjónarmið Jónínu og
segja að samkomulagið hafi verið
um að klára aðra umræðu og hugsa
málið eftír hana. Það er ekki meiri-
hlutí á Alþingi fyrir
frumvarpinu
eins og það
er í dag.
Framsókn-
armenn
eru ekki
sannfærðir
um að mál
ið komist í
gegnum
þingið yfir höfuð, og alls ekki
óbreytt.
Lögfræðiráðgjöf Halldórs
Halldór hefur fengið lögfræðilega
ráðgjöf frá sínum nánustu sérfræð-
ingum sem benda á að til þess að
frumvarpið standist stjórnarskrána,
verði að breyta því töluvert. Honum
er umhugað um að frumvarpið
standist stjórnarskrána sem hann
hefur unnið eið að sem þingmaður.
Breytingarnar sem framsóknar-
menn nefna eru að hækka þurfi það
hámark sem markaðsráðandi fyrir-
tæki megi fjárfesta í fjölmiðlafyrir-
tækjum verulega. Einn lögspekingur
sem DV ræddi við sagði að vafi léki á
að hægt væri að skerða heimildir
fyrirtækja til fjárfestinga eins og
fhtmvarpið kveður á um þar sem
ólflcar reglur gildi um fyrirtæki eftír
stærð og markaðsstöðu.
Framsóknarmenn
nefna einnig að ekki megi
taka leyfi af þeim sem hafa
útsendingarleyfi og því
verði að leyfa þeim að
renna út.
í þriðja lagi er það
talið brjóta í bága við
tjáningarfrelsi að binda
hendur þeirra sem eiga
dagblöð með víxleign-
arhaldi og þannig setja
skorður við útgáfu dag-
blaða.
Þá hafa ummætí Davíðs Odds-
sonar um forsetann og Norðurljós
bent til þess að lögin verði sértæk en
ekki almenn og það er brot að setja
lög sem bitna bara á einu fyrirtæki
sem er óheimilt.
Éinn þingmaður framsóknar-
flokksins orðaði það sem svo að
meðalhófið skiptí miklu. Spyrja
þyrftí, hvaða markmiðum ættí að ná
og hvernig hægt væri að ná þeim. Þá
er grundvallaratriði að lögin gangi
ekki lengra en þarf til að ná mark-
miðunum.
Davíð hefur þegar þurft að
bakka
Sjálfstæðismenn segjast ætla
vinna málið áfram í rólegheitunum.
Framsóknarmenn hafi verið búnir
að gefa fyrirheit í stjórnarsamstarf-
inu og verði að standa við þau. Þeir
hafi verið búnir að lofa stuðningi við
fj ölmiðlafrumvarpið og eigi að
standa við það. Davíð Oddsson hef-
ur þegar þurft að bakka verulega frá
upphaflegu frumvarpi sem átti að
talönarka dagblaðaútgáfu og banna
ákveðnum fyrirtækjum algjörlega að
fjárfesta í fjölmiðlafyrirtækjum. Nú
reynir á hvort Halldóri takist að
sannfæra Davíð um að enn verði að
breyta frumvarpinu en ella er
stjórnarsamstarfið í hættu.
Davíð til skammar
Einhverjir þingmenn fram
sóknar hafa alla tíð skilyrt
stuðning sinn við fjölmiðla-
frumvarpið. Þeir hafi viljað
ræða málið í víðara sam-
hengi, meðal annars út frá
stöðu Ríkisútvarpsins.
Línan í flokknum í gær var að
halda sig til hlés, láta daginn líða.
Eins og DV greindi frá á laugardag-
inn ofbýður ffamsóknarmönnum
framganga Davíðs Oddssonar í mál-
inu og þótt þeir telji Ólaf Ragnar
Grímsson hafa ögrað honum, þá sé
til skammar hvernig Davíð hefur
komið ffam.
Margir flokksmenn þrýsta mjög á
þingmenn að standa ekki að fjöl-
miðlafrumvarpinu. Tveir miðstjórn-
armenn sem DV ræddi við, orðuðu
þá hugmynd að steypa þyrfti Hall-
dóri Ásgrímssyni úr formannsstóli ef
hann hyggðist styðja Davíð Oddsson
í fjölmiðlafrum-
varpinu.
kgb@dv.is
Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson Viðbrögð Daviðs við skila-
boðum Halldórs um að ekki sé þingmeirihluti fyrir fjölmiðlafrumvarpinu, geta
ráðið örlögum rikisstjórnarsamstarfsins.
Fangaböðlar benda hver á annan
Varskipaðað haldaíólina
Réttarhöld eru hafin yfir
nokkrum af þeim bandarísku her-
mönnum sem tóku þátt í grimmdar-
verkunum í Abu Ghraib-fangelsinu í
írak. Sex af hinum ákærðu er haldið
í fangelsi í Bagdad. í frétt New York
Times um málið kemur fram að sak-
borningarnir benda ítrekað á hvern
annan og gera sem minnst úr þætti
sínum í voðaverkunum.
Ein af þeim sem er ákærð, Megan
M. Ambuhl, segir til dæmis að hún
hafi verið „áhorfandi"; gefið íröksku
föngunum eintök af Kóraninum og
séð til þess að ekkert svínakjöt væri í
matnum þeirra.
„Yfirmenn mínir sögðu mér að
standa fyrir framan myndavélina og
halda í þessa ól,“ sagði Lynndie Eng-
land í viðtali. Myndirnar af henni og
nöktu íföksku föngunum hafa vakið
óhug. Sjálf segir hún yfirmennina
hafa verið mjög ánægða með mynd-
irnar; mesta niðurlægingin fyrir
múslímska karlmenn sé að neyða þá
úr fötunum fyrir framan konur.
Deilan stendur því um hvort
verðirnir séu ábyrgir eða hvort hægt
Lynndie England Sést halda i ól sem er
vafin um háls íraksks fanga.
sé að kenna yfirmönnum þeirra um.
Ýmsir vilja jafnvel að ábyrgðin nái
hærra; Economist krafðist þess til
dæmis að Rumsfeld segði af sér.
Bjarni Már Magnússon, sem
skrifar á vefsvæði Deiglunnar, bend-
ir á að fyrirmæli yfirboðara sem
gildrar refsileysisástæðu hafi verið
hafnað að meginstefnu til í alþjóða-
kerfinu. Þá bendir hann á að í einu
af kennsluritum bandaríska hersins
kemur fram að hermönnum sé ekki
einungis skylt að óhlýðnast ólögleg-
um fyrirmælum yfirboðara sinna
heldur sé þeim beinlínis skylt að til-
kynna um háttsemi yfirboðaranna.
Bréfaskriftir formanns blaðamanna-
félagsins hafa vakið athygli
Fantafrumvarp og
grenjandi þingmenn
„Mér finnst ekki eðlilegt að tjá
mig um þessi mál opinberlega," seg-
ir Arna Schram, blaðamaður á
Morgunblaðinu og stjórnarmað-
ur í Blaðamannafélagi íslands.
í fréttum RÚV í gær kom fram
að óánægju gætti meðal
blaðamannafélagsins vegna
bréfaskrifta Róberts Mars-
hall, formanns blaðamanna-
félagsins.
í bréfi Róberts talar hann
um þingmenn sem
grenji í ræðustólum og
hvetur félagsmenn til
að skora á Olaf Ragnar
að skrifa ekki undir
5 ölmiðlafrumvarpið.
„Nú reynir á okkur
að rísa til varnar. Að
óbreyttu verður
fantafrumvarpið að
lögum eftir helgi," segir Róbert í
bréfi sínu. Á vef blaðamannafélags-
ins er auglýst eftir þeim stjórnar-
mönnum sem eru óánægðir
með þetta bréf. Enginn hefur
gefið sig fr am.
Varðandi frétt RÚV segir
Arna Schram að viðkom-
andi stjórnarmenn verði að
tjá sig um hina meintu óá-
nægju. Jafnframt segir
Arna að boðað hafi
verið til stjórn-
arfundar í dag;
meðal annars
út af bréfi Ró-
berts.
Róbert Marshall, formað-
ur blaðamannafélagsins
Hvetur blaðamenn til að berj-
astámóti fantafrumvarpinu.