Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2004, Qupperneq 11
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 17. MAÍ2004 11
Björn Bjarnason las upp á Alþingi um helgina bréf frá Þresti Emilssyni, blaða-
manni á Fréttablaðinu, þar sem hann segir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttir hafa
þegið fé frá Jóni Ólafssyni.
Stálu hjólum
frá lögreglu
Aðfaranótt sunnudagsins
kom leigubflstjóri með tvo
menn inn í port lögreglu-
stöðvarinnar við Hverfisgötu
þar sem hann gat með engu
móti losað þá úr bfl sínum.
Inni í portinu stálu þessir
tveir menn óskilareiðhjólum
úr vörslu lögreglunnar en
vom handsamaðir nokkm
síðar á hjólunum. Lögreglan
ákvað að bjóða reiðhjóla-
þjófunum upp á gistingu í
geymslum sínum en í gær-
morgun var þeim síðan
sleppt eftir að lögreglan
hafði rætt við þá um málið.
Utankjörs
fyrir austan
Atkvæðagreiðsla utan
kjörfundar um sameiningu
fjögurra sveitarfélaga á
Héraði er hafin. í tilkynn-
ingu frá kjörstjórn kemur
fram að
hægt sé að
greiða at-
kvæði hjá
sýslumönn-
um, sendi-
ráðum, ræðismönnum og
fastanefndum hjá alþjóða-
stofnunum. Þar kemur
einnig fram að kjósendur
skuli rjta á kjörseðil orðið
„já", ef þeir eru meðmæltir
sameiningu - en „nei“, séu
þeir á móti. Kosningin fer
fram samhliða forsetakosn-
ingum, 26. júm' nk.
Ingibjörg segist ekki hafa íengið krönu
„Þetta er dónaskapur gagnvart mér,“ segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar. „Eins og ég hef
margoft sagt þá hef ég aldrei fengið krónu frá Jóni Ólafssyni."
í umræðum á Alþingi um helg-
ina las Björn Bjarnason upp bréf
sem hann taldi sanna að Ingibjörg
Sólrún hefði þegið fé frá Jóni Ólafs-
syni. Bréfritari hefur Björgvin G. Sig-
urðsson, þáverandi framkvæmda-
stjóra Samfylkingarinnar, fyrir upp-
lýsingunum.
„Björn hefur veifað þessu bréfi án
þess að ég vissi hvað í því stæði, það
er gott að þetta er komið upp á borð-
ið og lýsir ráðherranum
ágætlega,"
Ingibjörg.
„Mér finnst
ekki við
hæfi að
Sjálf-
stæðis-
menn
séu
alltaf
að
igibjörg Sólrún Gísladóttir, vara-
rrmaöur Samfylkingarinnar „Mér
nnst ekki við hæfi að sjálfstæðismenn
’u alltafað dylgja um þessi mál."
dylgja um þessi mál. Það er kominn
tími til að þeir komi með sannanir
fyrir þessum áburði sínum."
Ingibjörg segir einnig að í bréfinu
sé farið með bein rangindi. Birni
Bjarnasyni hafi verið kunnugt um
það að bréfið hafi verið skrifað þeg-
ar bréfritari hafði verið launalaus
mánuðum saman vegna erfiðleika á
vinnustað sínum; fyrirtækinu Innn,
sem var í eigu sonar Jóns Ólafssonar.
Alfreð Þorsteinsson, borgarfull-
trúi R-listans, kannast ekki við efni
bréfsins...þó þekki ég fjármál
Reykjavíkurfistans mjög vel,“
bætir hann við. Aðspurður
af hverju Björn dragi þetta
bréf upp núna segir Al-
freð: „Þetta er nauðvörn
manns sem er í slæmum
málum og á í erfiðleikum
með að réttlæta gerðir sfn-
ar og síns flokks á erfiðum
tímum."
í bréfi Þrastar Emilssonar til
Stefáns Jóns Hafstein vitnar Þröstur
í samtal sem hann átti við Björgvin
G. Sigurðsson: „Framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar fullyrti hins veg-
ar þegar ég maldaði í móinn að Ingi-
björg Sófiún Gísladóttir hefði jú
vissulega þegið umtalsverða fjár-
muni úr vasa Jóns Ólafssonar," segir
í bréfinu.
Björn Bjarnason segir enga
ástæðu til að ætla að Þröstur hafi
haft rangt eftir Björgvini eða hafi
ákveðið að setja sig í þá stöðu að
.senda Stefáni Jóni Hafstein, for-
manni framkvæmdastjórnar Sam-
fylkingarinnar, rangar upplýsingar.
„Bréfritari er þrautþjálfaður
fréttamaður, sem er vanur að hafa
eftir fólki," segir Björn. „Hvers vegna
skyldi ég eða aðrir draga í efa að
Björgvin hafi sagt öðru vísi frá þessu
máli en hann vissi satt og rétt?
Hvaða hagsmuni hafði Björgvin af
því að búa eitthvað til um
þessi fjárhagslegu sam-
skipti?"
Björgvin G. Sig-
urðsson segir að það
sem er borið upp á
hann sé rangt. „Ég
hef aldrei haft neina
aðkomu, innsýn eða
vitneskju um ijármál
R-listans né
for-
„Þetta er nauðvörn
manns sem er í slæm-
um málum og á í erf-
iðleikum með að rétt-
læta gerðir sínar og
síns flokks á erfiðum
tímum."
ystumanna hans á hverjum tíma og
hvað þá Jóns Ólafssonar og hef því
engar forsendur til að fjalla um
málið," segir Björgvin.
Bréfritarinn, Þröstur Emils-
son, vildi ekki tjá sig um hvort
hann stæði við bréfið. „Mér
finnst afar undarlegt að þetta
komi upp núna þar sem bréf-
ið er yfir þriggja ára gamalt,"
segir Þröstur, „... en mest er ég
undrandi á viðbrögðum
Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur - þau
verður hún að
hafa við sína
samvisku - ef
hún þá hefur
einhverja."
simon@dv.is
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra Telur bréfið sanna tengsl milli
Samfylkingarinnar og Jóns Ólafssonar.
Ríkisstofnun ársins hefur verið valin. í
fyrra var það ÁTVR en nú var Heil-
brigðisstofnun Akraness valin.
Heilbrigðisstofnun Akraness Fékk sérstök hvatningarverðlaun og þykir reksturinn til fyrir-
myndar.
Heilbrigðisstofnun
Akraness hlaut
hvatningarverðlun
Heilbrigðisstofnunin á Akranesi
fékk sérstök hvatningarverðlaun frá
nefnd sem hafði það hlutverk að
velja rfkisstofnanir sem þóttu til fýr-
irmyndar á árinu 2004. Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins, ÁTVR, varð
fyrir vafinu sem ríkisstofnun til fyrir-
myndar, Fiskistofa hlaut einnig við-
urkenningu fyrir góðan árangur og
Heilbrigðisstofnunin Akranesi fékk
sem sé sérstök hvatningarverðlaun
fyrir góða frammistöðu.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá heilbrigðisráðuneytinu. Þar seg-
ir að Heilbrigðisstofnunin Akranesi
hafi markað sér stefnu árið 1998
sem nýlega var endurskoðuð og
staðfest af heilbrigðismálaráðherra.
í áætlunum sínum setur stofnunin
fram skýr markmið, m.a. töluleg,
leiðir til að ná markmiðum og
hvernig staðið skuli að árangurs-
mati. Hluti árangursmælikvarða er
sameiginlegur með öðrum heil-
brigðisstofnunum og hefur stofn-
unin verið virk í því þróunarverk-
efni. Stjórnendur og hluti annarra
starfsmanna unnu að stefnumót-
uninni og er unnið að því að hrinda
aðgerðaáætlun í framkvæmd með
gæðaverkefnum. Nefndin telur að
þær breytingar sem unnið er að
innan sjúkrahússins séu afar
áhugaverðar. Hvatt er til þess að
unnið sé ötullega að málum til þess
að ná sýnilegum árangri sem fýrst.
Nefndin telur að fleira sé til vitnis
um að vel sé staðið að málum og að
stofnunin standi framarlega meðal
heilbrigðisstofnana. Þar skal helst
nefna lyfjamálin, innkaup, áætl-
anagerð og samstarfssamninga.
Úrvalto (i
er hja okkur
BARNAVÖRUVERSLUN
GLÆSIBÆ
sími 553 3366 - www.oo.is
Graco Mirage
svefnkerra
Verö 11.550
Staö.gr. 10.970
Urval af barnakerrum
Graco, Basson og Brio