Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2004, Page 18
18 MÁNUDAGUR 17. MAÍ2004
Sport UV
Kanadamaðurinn Alen Marcina bjargaði stigi fyrir Skagamenn á elleftu stundu er Fylkismenn komu í
heimsókn. Leikurinn var bráðfjörugur og fín skemmtun fyrir áhorfendur.
Það var lítill vorbragur á leik ÍA
og Fylkis á Akranesi í gær.
Bæði lið spiluðu ágætis-
fótbolta og voru óhrædd við
að sækja grimmt. Fylkismenn
tóku forystuna í fyrri hálfleik.
Skagamenn sóttu síðan
grimmt í síðari hálfleik og
uppskáru jöfnunarmark er
rúmar Qórar mínútur voru
komnar fram yfir venjulegan
leiktíma. Niðurstaðan 1-1
jafntefli sem verður að teljast
sanngjörn niðurstaða.
Skagamenn byrjuðu leikinn
betur. Stýrðu umferðinni en gekk
illa að opna sterka vörn Fylkis. Á
sama tíma var nokkuð basl á
varnarmönnum ÍA og þeir fengu
áminningu er Finnur Kolbeinsson
skaut í stöng eftir flmm mínútna
leik. Skagamenn hertu tökin eftir
stangarskot Finns og fengu þrjú góð
færi næstu mínútur. Það besta fékk
Haraldur Ingólfsson en hann skaut
yfir úr upplögðu færi.
Það var síðan nokkuð gegn gangi
leiksins að Sævar Þór Gíslason tók
forystuna fyrir FyM. Kári Steinn
Reynisson ætlaði að hreinsa frá
marki ÍA en gerði það ekki betur en
svo að boltinn hafnaði í fótunum á
Sævari sem þakkaði pent fyrir sig
með því að leggja boltann í
fjærhornið fram hjá Þórði Þórðar-
syni. Björgólfur Takefusa hefði getað
bætt við öðru marki skömmu síðar
en Þórður sá við honum.
PKiAcm
Vhsim i • $im! 431 j2Ci: £9?M
váikosm i
Einstefna ÍA í síðari hálfeik
Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA,
hefur væntanlega ekki verið á rólegu
nótunum í leikhléi og það mátti sjá á
hans mönnum sem mættu mjög
grimmir til síðari hálfleiks. Marcina
fékk dauðafæri í upphafi síðari
hálfleiks en Bjarni varði vel. Þegar 20
mínútur hfðu leiks settu Skagamenn
síðan í fimmta gír. Þeir óðu
hreinlega í færum en létu Bjarna
verja eða voru klaufar og skutu yfir.
Það voru síðan komnar rúmar fjórar
mínútur fram yfir venjulega leiktíma
þegar Marcina potaði boltanum í
markið ogjafnaði.
Leikurinn var bráðfjörugur og
bæði lið eiga hrós skilið fyrir
skemmtilegan leik. Fylkismenn litu
ágætíega út í þessum leik. Hinn
óreyndi Bjarni Þórður stóð sig
frábærlega í erfiðri ffumraun og
vörn FyMs var mjög traust með Val
Fannar í fantaformi. Miðjan var
massíf og var sérstaklega gaman að
sjá hvað Finnur Kolbeinsson var í
góðu formi. Ólafur Stígsson var fjarri
sínu besta en Fylkismenn verða
erfiðir viðureignar er hann kemst í
gang. Björgólfur skilaði sínu og vel
það á toppnum hjá FyM þrátt fyrir
að vera greinilega ekM í sínu besta
formi. Hans leikur kemur með nýja
vídd í sóknina hjá FyM og Sævar Þór
á eftir að græða mikið á því en hann
var einnig mjög sprækur.
ÍA klaufar
Fylkismenn voru vel skipulagðir
en féllu fullmikið til baka í seinni
hálfleik. Skagamenn hefðu hæglega
getað unnið þennan leik en sóknar-
menn þeirra voru ekki á skotskón-
um. Leikur þeirra var heldur ekki
nógu markviss og of mMð var um
langar sendingar fram völlinn.
Hópurinn hjá ÍA vakti reyndar
athygli en aðeins einn vængmaður
var í hópnum, Haraldur Ingólfsson,
og Fylkismenn voru fljótir að loka á
hann. í hópnum voru heldur ekki
Hjálmur Dór, Ellert Jón og Garðar,
en Hjörtur Hjartarson, sem er
nýkominn frá Bandaríkjunum, var
óvænt kominn í hópinn. Fyrir vMð
átti ÍA enga spræka menn til að
leysa sóknarmennina og Harald af
hólmi.
Vörnin var óvenju ótraust til að
byrja með en lagaðist er leið á
leikinn. Miðjan hefur oft verið betri
og sóknarmennirnir voru ekki upp
á sitt besta. Marcina skoraði samt
sem er hans hlutverk en þess utan
gerði hann ekki nokkurn skapaðan
hlut.
henry@dv.is
Kári Steinn Reynisson ætlaði að hreinsa frá
marki ÍA en gerði það ekki betur en svo að
boltinn hafnaði í fótunum á Sævari sem þakk-
aði pent fyrir sig með því að ieggja boltann í
fjærhornið fram hjá Þórði Þórðarsyni.
Var að verða bilaður
„Ég var nánast að verða bilaður
að bíða eftir þessu marki. Ég hélt
það ætlaði ekki að detta en það datt
og við héldum einu stigi," sagði
Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA, eftir
leikinn. „Ég er sáttur við eitt stig en
hefði verið sáttari við þrjú. Svona er
þetta bara. Við vorum ekki að spila
vel í fyrri hálfleik en tókum okkur
saman í seinni. Við hefðum getað
skorað fleiri mörk því við fengum
fleiri færi en þeir. Það vantaði
svolítið flæði í sóknarleikinn.
Spennan og ákefðin voru svo mikil
að byrja mótið að við ætluðum helst
að skora 3-4 mörk í hverri sókn.“
Sanngjörn úrslit
„Tilfinníngin eftir þennan leik er
bæði sæt og sár,“ sagði Þorlákur
Árnason, þjálfari Fylkis eftir
frumraun sína með liðið í Lands-
bankadeildinni. „Fyrri hálfleikur var
frábær hjá okkur og við vorum
klaufar að vera ekki fleiri mörkum
yfir í hálfleik. Seinni hálfleik
spiluðum við illa og á endanum voru
þetta kannski sanngjörn úrslit. Þeir
spiluðu með vindi í báðum hálf-
leikjum sem er mjög sérstakt og
gerist bara á íslandi. Þetta er
vonandi það sem koma skal hjá
Fylki en við þurfum að bæta það
sem gerðist í seinni hálfleik."
Kærkomið mark
„Okkur gekk erfiðlega að skora en
við fengum færin. Það var samt
kærkomið að fá markið í lokin,"
sagði Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði
ÍA. „Við ætlum ekki að tapa á
heimavelli í ár og hin liðin verða að
skilja að það verður ekkert gefið eftir
hérna. Það gekk eftir." henry@dv.is
Barátta Það var ekkert gefið eftir i návígjum á Skaganum igær. Hér eru Skagamaðurinn
Grétar Rafn Steinsson og Fylkismaðurinn Eyjólfur Héðinsson að berjast um boltann.
DV-mynd Viihelm
ÍA-FYLKIR 1-1
Dómari: Magnús Þórisson (5).
Áhorfendur: 1.500. G»ði leiks: 5.
Gul spjöld: lA: Engin. Fylkir. Ólafur
Stígsson 39., Finnur Kolbeinsson 63.,
Valur Fannar Gtslason 64.
Rauö spjöld: Engin.
Mörkin:
0-1 Sævar Þór Gíslason 28.
Skot úr teig Kári Steinn
1-1 Alen Marcina 90.
Skot úr teig Kári Steinn
Leikmenn ÍA:
Þórður Þórðarson 3
Guðjón Sveinsson 3
Gunnlaugur Jónsson 3
Reynir Leósson 4
Kári Steinn Reynisson 2
Pálmi Flaraldsson 2
Grétar Rafn Steinsson 3
(76., Hjörtur Hjartarson -)
Julian Johnson 4
Haraldur Ingólfsson 1
(67., Andri Karvelsson 3)
Alen Marcina 2
Stefán Þórðarson 2
Leikmenn Fylkis:
Bjarni Þórður Halldórsson 5
Gunnar Þór Pétursson 3
Valur Fannar Gíslason 5
Þórhallur Dan Jóhannsson 4
Guðni Rúnar Helgason 4
Ólafur Stígsson 2
Finnur Kolbeinsson 4
Helgi Valur Daníelsson 3
Sævar Þór Gíslason 4
(72., Ólafur Páll Snorrason -)
Eyjólfur Héðinsson 2
(90., Jón B. Hermannsson -)
BjörgólfurTakefusa 4
(68., Þorbjörn Atli Sveinsson 2)
Tölfræðin:
Skot (á mark): 23-14 (12-9)
Varin skot: Þórður 7 - Bjarni 11.
Horn: 5-1 Rangstöður: 3-11
Aukaspyrnur fengnar: 20-19.
BESTUR Á VELLINUM:
Bjarni Þórður Halldórsson, Fylki