Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2004, Side 21
DV Sport
MÁNUDAGUR 17. MAÍ2004 21
■ ■
Cr&tar «implnr jig tnn Gtcwr Hjait.ywn, tyíbóíekU'rÍö iiOatio
timifyh. iá ékki k'n.iiaö itmiþfá Uíi iim i&rindCtnikiiMit > jiAT i'ii bíitm
$wf her ikota muk tohiry, tjeytr ítíV t »)*v. /My'irf Viknrtrm
Grindavík og ÍBV gerðu jafntefli, 1-1, í 1. umferð Landsbankadeildar karla í
Grindavík í gær. Eyjamenn voru betri aðilinn í leiknum en Grétar Hjartarson
bjargaði stiginu fyrir Grindavík með fallegu marki. Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV,
var svekktur í leikslok.
GRINDAVÍK-ÍBV 1-1
1. umí - Grindavlkurvöllur-16. ma(
Dómari: Garðar Örn Hinriksson (4).
Áhorfendur: 800. Gæ6i leiks: 3.
Gul spjöld: Kekic (34.), Eysteinn (72.)
- Bjarnólfur (39.), Garner (61.).
Rau6 spjöld: Engin.
Mörkin:
0-1 Magnús Már Lúðvíksson 56.
Skotúrteig Tryggvi
1-1 Grétar Hjartarson 71,
Skot utan teigs Eysteinn
Leikmenn Grindavíkur:
Albert Sævarsson 3
Paul McShane 3
Slavisa Kaplanovic 3
(33., Guðmundur Bjarnason 4)
Óðinn Árnason 4
Gestur Gylfason 1
Eyþór Atli Einarsson 2
(46., Ray Anthony Jónsson 4)
Sinisa Kekic 4
Eysteinn Hauksson 1
Orri Freyr Óskarsson 1
(81., Aleksander Petkovic -)
Óli Stefán Flóventsson 2
Grétar Hjartarson 3
Leikmenn (BV:
Birkir Kristinsson 3
Mark Schulte 3
Einar Hlöðver Sigurðsson 4
Tryggvi Bjarnason 4
Matt Garner 4
(87., Bjarni Geir Viðarsson -)
Jón Skaftason 3
Bjarnólfur Lárusson 3
lan Jeffs 3
Atli Jóhannsson 4
Magnús Már Lúðvíksson 3
(79., Einar Þór Daníelsson -)
Gunnar Heiðar Þorvaldsson 3
Tölfræöin:
Skot (á mark): 11-18 (3-9)
Varin *kot: Albert 7 - Birkir 2.
Horn: 6-10 Rangstöður: 2-2
Aukaspyrnur fengnar: 12-19.
BESTUR Á VELLINUM:
Tryggvi Bjarnason, (BV
ALDREI BYRJAÐ Á SIGRI
Grindvíkingar hófu í gær sitt
tíunda tímabil í efstu deild en líkt
og áður tókst þeim ekki að vinna
fyrsta leik. Grindavík hefur gert sex
jafntefli og tapað fjórum leikjum í
1. umferð á tíu árum sínum í
deildinni frá 1995 til 2004.
„Ég get ekki annað en litið á þetta
sem tvö töpuð stig hjá okkur,“ sagði
Magnús Gylfason þjálfari Eyja-
manna, þegar DVSport ræddi við
hann eftir leikinn gegn Grindavík í
gær.
„Mér fannst við vera sterkari
aðilinn í leiknum en ég er ösáttur við
það hvernig við gáfum eftir þegar
við komumst yfir. Mér fannst við
vera með leikinn í höndunum og
það er eitthvað sem við getum lært
afþessum leik.“
Magnús sagðist annars vera mjög
sáttur við leik sinna manna.
„Við erum með unga miðverði
sem leystu sín hlutverk vel og ég get
ekki séð betur enn að erlendu
leikmennirnir falli vel inn í leik
okkar. Það hefur oft verið vandamál
fyrir Eyjaliðið að hefja mót vegna
þess að liðið hefur æft í tvennu lagi
en miðað við þessa frammistöðu þá
er engin ástæða til armars en að vera
bjartsýnn."
Orð að sönnu hjá Magnúsi því
Eyjamenn voru að maú undirritaðs
mun betri aðilinn í leiknum og
hefðu tekið öll stigin ef andi rétdætis
hefði svifið yfir vötnum.
Það voru þó Grindvíkingar sem
fengu fyrsta færið í leiknum strax á
fjórðu mínútu. Grétar Hjartarson
átti þá góðan skalla en Birkir
Kristinsson varði vel. Eftir það tóku
Eyjamenn öll völd á veliinum þrátt
fyrir að vera á móti sterkum vindi en
þeim gekk illa að skapa sér
almennUeg marktækifæri. Grindvík-
ingar voru sterkir í vörninni en gekk
illa að halda boltanum innan liðsins,
nokkuð sem gerði það að verkum að
sóknarleikur þeirra var ansi bitlaus.
Eyjamenn byrjuðu síðari
hálfleikinn af miklum krafti og
Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Ian
Jeffs komust báðir einir í gegnum
vörn Grindavfltinga án þess að ná að
skora. Eitthvað hlaut þó að gefa eftir
og á 56. mínútu kom Magnús Már
Lúðvíksson Eyjamönnum yfir með
sínum fyrsta marki í deildinni.
Eftir markið gáfu Eyjamenn eftir,
Grindavfltingar komust meira inn í
leikinn án þess þó að skapa sér
veruleg færi. Þeir jöfnuðu þó metin á
71. mínútu en þá skoraði Grétar
Hjartarson með þrumuskoti utan
teigs án þess Birkir Kristinsson
kæmi nokkrum vörnum við. Eftir
markið gerðist fátt. Bæði liðin
virtust vera sátt við skiptan hlut.
Sáttur við stigið
Það mæðir mikið á Sinisa Kekic í
Grindavflcurliðinu en þrátt fyrir að
bera liðið á bakinu var hann ferskur
eftir leikinn þegar DV Sport ræddi
við hann.
„Ég tek ekki mikið mark á fyrsta
leik og er bara sáttur við að hafa náð
einu stigi. Við höfum aldrei unnið
fyrsta leik enda tel ég hann ekki
skipta máli. Við eigum fullt inni og
ég held að við verðum það lið sem
kemur mest á óvart í sumar. Við
verðum í það minnsta ekki í
fallbaráttunni eins og okkur hefur
verið spáð,“ sagði Kekic.
Eins og áður sagði voru Eyja-
menn sterkari aðilinn í leiknum og
geta engum öðrum en sjálfum sér
um kennt að hafa ekki innbyrt sigur.
Þeir duttu of aftarlega eftir að hafa
komist yfir og hleyptu Grindvíking-
um inn í leikinn. Eyjaliðið er þó
gjörbreytt frá því í fyrra. Léttleikinn
er mun meiri, sóknarhreyfing liðsins
allt önnur og með sama áframhaldi
verða þeir í fínum málum í sumar.
Miðvarðaparið Einar Hlöðver og
Tryggvi stóðu sig framar vonum og
enski bakvörðurinn Matt Garner var
mjög sterkur. Miðjan spilaði vel með
Atla Jóhannsson sem besta mann og
frammi voru þeir Magnús Már og
Gunnar Heiðar skeinuhættir.
Hlaupin þeirra á bak við varnar-
menn Grindvfltinga voru stórhættu-
leg og upp úr einu slíku kom markið
þeirra.
Grindvfldngar þyrftu helst að
hafa einn Sinisa Kekic í vörninni,
einn á miðjunni og einn í sókninni.
Hann er yfirburðamaður í þessu liði
og það hvflir mikið á honum. Hann
spilaði vel í leiknum sem og félagar
hans í vörninni Guðmundur Bjarna-
son og Óðinn Árnason. RayAnthony
Jónsson kom ferskur inn í síaðri
hálfleik og skapaði nokkurn usla á
hægri kantinum. Miðjan var aftur á
móti slök og framherjar liðsins
fengu litla hjálp. Með sama fram-
haldi verður sumarið erfitt hjá
Grindvfltingum en þeir hafa sér það
þó til vorkunnar að þeir misstu
Slavisa Kaplanovic af velli í fyrri
hálfleik en það raskaði leik liðsins
töluvert. oskar@dv.is
Leikir Grindavíkur í 1. umferð:
1995 Keflavík (heima) 1 -2 tap
1996 Valur (ú) 0-2 tap
1997 Valur (ú) 1-1
1998 (R (heima) 1-1
1999 Fram (heima) 1-1
2000 Stjarnan (úti) 0-0
2001 Keflavík (heima) 1 -2 tap
2002 KA (úti) 1-1
2003 Valur (heima) 1 -2 tap
2004 (BV(heima) 1-1
Samantekt:
Leikir 10
Sigurleikir 0
Jafntefli 6
Tapleikir 4
MörkGrindavíkur 8
Mörk mótherja 13
Stig Grindavíkur 6
„Mér fannst við vera sterkari aðilinn íleiknum
en ég er ósáttur við það hvernig við gáfum
eftir þegar við komumst yfir. Mér fannst við
vera með leikinn í höndunum og það er
eitthvað sem við getum lært afþessum leik."