Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2004, Page 25
DV Fókus
MÁNUDAGUR 17. MAl2004 25
í dag verður að skila inn undirskriftum til stuðnings forsetaframboði. Þegar þetta
er skrifað bendir ekkert til annars en að í framboði verði fjórir: Ástþór Magnús-
son, Baldur Ágústsson, Ólafur Ragnar Grímsson og Snorri Ásmundsson sem einn
frambjóðenda býður þjóðinni ekki upp á erlenda húsfreyju á Bessastaði með fram-
boði sínu.
< i\
Forsetaframbjú&endafrúr Donit
Moussaieft Jean Plummer og Natal-
la Wiium. Snarrí, einn frambjoðenda
hefur enga konu hvad þá erlenda,
upp a arminn,
„Margoft hafa menn bent mér á
þetta. Ég hef bara ekki fundið mína
heittelskuðu ennþá og spurning
hvað hægt er að gera í þvf með svo
skömmum fyrirvara," segir Snorri
Ásmundsson forsetaframbjóðandi
um þá staðreynd að hann einn for-
setaframbjóðenda hefur ekki konu
upp á arminn. Ekki einu sinni ís-
lenska konu en eins og alþjóð veit þá
eru það eingöngu konur af erlendu
bergi brotnar sem sækjast eftir hús-
freyjustarfanum á Bessastöðum:
Gyðingurinn Dorrit Moussaieff kona
Ólafs Ragnars Grímssonar, Englend-
ingurinn Jean Plummer spúsa Bald-
urs Ágústssonar og hin rússneska
Natalía Wiium sem er kona Ástþórs
Magnússonar.
„Ég hef vísað í Vigdísi og hennar
tíð sem forseti. Hún hafði engan
maka sér við hlið en þá er mér bent
á það á móti að hún sé kona," segir
Snorri en það skiptir meira máli í
þessu sambandi en margur gæti æti-
að í fljótu bragði. Þannig virðist
nefnilega að íslendingar elski
„tengdadætur sínar", það eru þær
konur sem íslenskir karlmenn hafa
sótt sér út í heim. Jafnvel litið á það
sem ákveðna landvinninga. Hins
vegar er ekki hið sama uppi á teng-
ingnum þegar þessu er öfugt farið.
Snorri segir það reyndar ögrandi
að fara í kosningar óundirbúinn og
vopnlaus. En
þrætir ekki
fyrir að
hann
kíkioft
nið-
ur í
Snorri Ásmundsson ásamt Vigdísi Finnbogadóttur Snorri hefur bentá Vigdísi þegar
honum hefur verið núið þvi um nasir að standa einn í forsetaframþoði sínu en Vigdís er reynd-
ar kona og það breytir miklu i þessu sambandi.
Alþjóðahús og tali við stelpurnar
þar. „Já, já, þar er fullt af spennandi
konum og ég er ekki frá því að þær
séu léttari á bárunni þessar er-
lendu," segir Snorri sem um helgina
hélt sigurhátíð á Akureyri. Hann
segir gott að senda sigurorkuna út í
loftið og sýna stuðningsmönnum
sínum
fram
á
að þetta er hægt. Og undirskriftirnar
eru að skríða í hús hjá Snorra en í
dag þarf að leggja þær fram vilji
menn í framboð.
Snorri leitaði eftir íjárstuðningi
frá Playboy-veldinu
við upphaf
sinnar
kosninga-
baráttu
en
hafði
ekki
erindi
sem
erfiði.
Snorri
fékk
skilaboð
frá varafor-
stjóra
Kostirog gallar
mótframbjóðenda
Snorri Ásmundsson var beðinn að nefna
kosti og galla á mótframbjóðendum
sinum og hans palladómar eru stuttir
óg hreinskilnir.
Ólafur Ragnar - kostir&gallar
veriö aðdáandi Ólafs.
Hann er vingjarnlegur. Það
erþað eina sem ég get
sagtumhann.Ólafur .
kallar ekki fram lýsingar-
orð, hvorki slæm né góð.
Greindur og gáfaður. Verð-
^ugur keppinautur. Gaman
llljfe^að kljást við hann."
W1É3*
Ástþór Magnusson - kostir&gallar
„Ég kaus hann i slðustu
kosningum en ég myndi
ekki kjósa hann núna,þó
svo að ég væri ekki I fram-
boði. Ég skil ekki málstaö-
inn hans.Og held að
hann ætti að fara I
áfengismeð-
ferð."
Baldur Ágústsson
„Baldur.Jámmm. Ég hef
beint kynnt mér
hann. En heyrt sögu-
sagnir. Auðugur mað-
ur og drykkfelldur hef
ég heyrt. Stofnaði Vara,
seldi fyrir tíu árum, fór til
Bretlands og er auðug-
ur maður i dag."
fyrirtækisins, Bill Farley, þess efnis
að ísland væri of lítill markaður fyrir
Playboy. „Þeir eru ekki einu sinni
með umboðsmann hér og sáu sér
ekki hag í að taka þátt í framboði
mínu. Þeir misstu af því tækifæri.
Vonandi að þjóðin missi ekki af
þessu tækifæri einnig."
En að forsetafrúnni aftur, Snorri
segir að hann dáist að Dorrit. „Ég er
algjört „fan“. Hún er náttúrlega
með mann. Vonandi að hún sjái sig
um hönd þegar ég verð orðinn
draumaprins margra meyja sem
forseti ísland. Þar með verð ég einn
eftirsóttasti piparsveinninn í Evr-
ópu. Sem hefði ótvírætt auglýsinga-
gildi fyrir land og þjóð,“ segir
Snorri.
jakob@dv.is
Óttar Sveinsson Segist í finum málum en
bók hans Útkall i djúpinu er að koma út i
Amertku undir nafninu: Doom and the Deep.
Útkall -
Ameríka
kallar
„Já, já, ég er í fínum málum. Út-
kallsbækurnar eru á leið til út-
landa. Ein þeirra, Útkall í djúpinu
eða Doom and the Deep, mun
koma út í Ameríku seinni part árs,“
segir Óttar Sveinsson fyrrum
blaðamaður á DV en hann hefur
nú snúið sér alfarið að því að skrifa
bókaflokkinn Útkall og sinna út-
gáfumálum honum tengdum.
Það er útgáfufyrirtækið Lyons
Press sem annast útgáfuna en for-
lagið hefur tryggt sér alheimsrétt-
inn á útgáfu bókanna á ensku og
hyggst gefa út bækur Óttars í öllum
hinum enskumælandi heimi. Óttar
kýs að upplýsa ekki hvaða þýðingu
þetta hefur fyrir hann fjárhagslega
en Ameríka er gríðarlega mikilvæg-
ur markaður. „Þetta er ágætt," seg-
ir hann. Bók hans Útkall - Geysir
horfinn, hefur þegar verið þýdd og
er nú verið að skoða hana með það
fyrir augum að gefa hana út á er-
lendri grundu.
Óttar vinnur nú að 11. bókinni í
bókaflokknum en húin mun fjalla
um hápunkt átakanna sem urðu í
landhelgisdeilu Breta og íslend-
inga árið 1976 en þá er síðasta
þorskastríðið að líða undir lok og
átökin að harðna. Þetta var þegar
íslendingar færðu landhelgina í
200 mílur og Guðmundur Kærne-
sted skipstjóri og fleiri stóðu í
ströngu. „Ég mun að auki ræða við
ýmsa Breta til að fá hina hliðina
sem og blaðamenn sem fylgdust
með í návígi."
:kynna
Islenski boltinn er að hefjast
og við flautum til leiks!
veidu þitt eigið draumelið STFIfíX á vísir.is
áViqns,
aðalvinningurinn er ferð fyrir tvo
á fírsenal-ManUtd í vetur.
Þeir stigahæstu eftir 6 ag 12 umferðir
fá vegleg verðlaun.
visir.is
. ..Landsbankadeildin er líka á Lengjunni!