Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2004, Qupperneq 32
'Pvé&úskot Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^nafnleyndarergætt. f j /~J f \ r
555 5
SKAFTAHLÍÐ24, 105 ftEYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMIS505000
• Davíð Oddsson forsætisráð-
herra hefur hleypt öllu í loft upp
með því að draga fjölskyldu for-
seta íslands inn í umræðuna um
fjölmiðlafrumvarpið. Segir for-
setann vanhæfan þar
sem dóttir hans starfi
til að mynda hjá
Baugi. Til að hafa
þetta nákvæmt skal
tekið fram að Tinna
dóttir Ólafs Ragnars starfar á að-
alskrifstofu Baugs Group í
Grjótaþorpinu sem verkefnastjóri
en var áður hjá Kaupþingi. Dalla
tvíburasystir hennar
dregst þó seint inn í
umræðuna því hún
er stikkM í laganámi
í Háskóla fslands.
Varla er heldur hægt
að tengja stjúpdætur forsetans
tvær við fjölmiðlalögin því önnur
er kennari á Selfossi og hin
myndlistarkona á Skólavörðu-
stígnum. Sjáum hvað setur...
Báðar með baug
á fingri!
framan 140 milljónlr
Þótt Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sé
ekki nema 23 ára fór hún létt með að
tala beint til 140 miiljóna Evrópubúa
fyrir hönd íslands í beinni útsend-
ingu á Eurovision:
„Þetta var nú ekki nema ein og
hálf mínúta og ég neita þvf ekki að ég
var stressuð en hef sé það verra. Til
dæmis þegar ég þurfti að halda út-
skriftarræðuna í Fjölbrautaskóla
Vesturlands í febrúar 2001. Þá var ég
að fara yfir um af stressi þó áheyr-
endur væru aðeins um fimmú'u,"
segir Sigrún Ósk sem eyddi deginum
í gær í sjö ára afmæli bróður síns á
Akranesi. Þangað er hún núna aftur
ílutt eftir dvöl í höfuðborginni en
Sigrún Ósk stjórnaði sem kunnugt er
unglingaþættinum At í Ríkissjón-
varpinu í vetur. Nú hefur hún ráðið
sig sem markaðs-og atvinnufulltrúa á
Akranesi og meðal verkefna hennar
er að skipuleggja 17. júní-háú'ðar-
höldin uppi á Skaga, Sjómannadag-
inn og svo írska daga sem þar verða
haldnir.
„Það versta við útsendinguna var
að þurfa að hanga í kulda og trekki
inni í stúdíói og bíða eftir að röðin
kæmi að manni. Og svo þegar stund-
in rann upp fór ég bara með texta
sem hafði verið skrifaður fyrir mig,“
segir Sigrún Ósk sem fylgdist spennt
með keppninni eins og aðrir þrátt
fyrir álagið: „Sjálfri fannst mér lagið
frá Kýpur best og hefði valið það til að
hlusta á í bílnum mínum frekar en
önnur. Jónsi stóð sig þó vel þó lagið
sé ekki til þess fallið að ná eyrum 140
milljón manna í einni hlustun."
Sigrún Ósk hefur ekki samið um
laun fyrir þessa framgöngu sfna í
Eurovision en er þó sannfærð um að
aldrei fyrr hafi hún verið á jafn góðu
ú'makaupi enda mínútumar aðeins
ein og hálf. Og svo þurfti að passa
upp á útliúð:
„Það var fatahönnuðurinn Fjóla
Ósland sem fékk það verkefni að
klæða mig upp og hún gerði það með
stæl. Skreytú mig með skartgripum
sem ég held að séu ættargripir ffá
henni sjálfri og svo greiddi hún mér
meira að segja sjálf. Ég vona að aflir
hafi verið ánægðir með mig. Ég gerði
mitt besta," segir Sigrún Ósk.
Sigrún Ósk á skján
um 140 milljónir Evr-
ópubúa höfðu hana
fyrir augunum íhálfa
aðra mínútu.
Eggjagolf
Ástand á golfvöllum
landsins mun vera ótryggt
þessa vordaga vegna fugla
sem gera sér hreiður og
verpa þétt upp að golfvöllun-
um. Telja dýrafræðingar að fuglarn
ir noti golfleikarana sem fuglahræð
Golfleikari Fuglarnota
þá fyrir fuglahræður.
ur og telji sig þar
með öruggari um
egg sín. Eina vanda-
málið er þegar
golfleikararnir rugl-
ast á eggjun-
um og golf-
kúlunum.
Hefur mörgum brugðið í brún þegar
„driverinn" skellur á egginu.
[------------
Forsetinn á tískusýningu útskrift-
arnema i Listahdskóla Islands á laug
ardaginn. Við hlið hans siturÁsa Rid
ardsdóttir, eiginkona Hjálmars H.
rektors skólans.
Ragnarssonar,
|H|
m i|
'i£t£S.
Nýtur menningar í
biðstöðu og bakaríi
Forseti íslands hefur verið í bið-
stöðu. Setið heima í stað þess að
sækja brúðkaup í Kaupmannahöfn.
Telur ástand þjóðmála kalla á nær-
veru sína. En forseúnn situr ekki að-
gerðalaus og bíður þess sem verða
vill. Þrátt fyrir viðbragðsstöðuna nýt-
ur hann menningarinnar í höfuð-
borginni í botn og sækir viðburði
sú'ft á meðan Dorrit gegnir skyldum
hans í Kaupmannahöfn. Á fimmtu-
dagskvöldið var forsetinn á frumsýn-
ingu á Don Kíkóta í Borgarleikhús-
inu. Lét forseúnn vel af verkinu þó
dómarnir hafi verið slakir. Á föstu-
daginn var hann viðstaddur opnun
Listaháú'ðar í Listasafhi íslands. Þar
vakti athygli að Halldór Ásgrímsson
stóð þétt að baki hans á meðan á
opnuninni stóð án þess þó að yrða á
hann. Hefði utanríkisráðherra þó vel
getað hvíslað ofan í hálsmálið á for-
setanum orðum að eigin vali. En
gerði ekki. Á laugardaginn birúst for-
setinn svo á opnun sýningar á út-
skriftarverkum nemenda í Listahá-
skóla fslands og fylgdist þar með
tískusýningu eins og hér má sjá. Á
eftir fór hann í Björnsbakarí við
Hringbraut og keypú sætabrauð.