Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1887, Qupperneq 26
UR TILSKIPUN 3. FEBRUAR 1836.
vii. atr. um almanök:
1. gr. Brjóti nokkur það einkaleyfi, sein Kaup-
mannahafnar háskóla er veitt til að gefa út almanök,
annaðhvort með þvi að flytja til Islands eða selja útlend
almanök, eða með því að láta prenta nokkurt almanak
án leyfis frá háskólanum, þá skal hann gjalda frá 20
til 200 rbdala sekt, samkvæmt því sem ákveðið er i
Danmörku (op. br. 5. Aug. 1831) ; þau almanök eru og
upptæk, sem finnast hjá þeim hinum seka, og gjaldi þar
á ofan { rbd. silfrs fyrir hvert þeirra. Helming sekta-
fjárins og almanaka þeirra, sem upptæk verða, á sá,
sem háskólinn hefir selt prentleyíi til almanakanna , en
annar helmingr gengr til stjörnuturnsins í Kaup-
mannahöfn.
2. gr. Yfirvöldin skulu gæta þess nákvæmlega, að
enginn skerði þelta einkaleyfi háskólans, sem nú var
talið.
3. gr. Öll mál, sem rísa af að einkaleyfi þetta er
skcrt, skal fara með sem opinber lögreglumál.
Eptir þessu eíga allir þegnlega að breyta.
Almanak þetta kostar óinnfest 10 aura, en innfest 11
anra, allstaðar á íslaudi og í Danmörku; en Gy’dendals báka-
verzlan í Kaupmannahöfn, sem hetir sölu-umboðið, er skyld til
að selja hvert á 8 aura óinnfest, og innfest á 9 aura, þeim sem
kaupa 50 eða þaðan af fleiri. Slfkum kaupendum er og heimilt
að skila aptr óseldum almanökum, ef það er gjört innan árs
loka 1887; verðr þcim þá borgað andvirði þeirra, sem ósködduð
eru, en þó svo, að hin innfestu verða borguð sem dinnfest; skyldir
eru þeir og að sýna reikninga bókaverzluninni, ef krafizt verðr.