Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1887, Side 69
Af öllum löndum í Evrópu hefur ísland, eptir þessu, lang
flest af sauðfjenaði að tiltölu, eða rúmlega 7 kindur á mann —
þar næst er Serbía með 2 kindur á mann, — en aptur er Island
allra landa fátækast af nautgripum. J)að sjest og, að rúmlega
500,000 sauðkindur er sama sem ekkert í samanburði við þann
urmul af sauðfjenaði og nautpening, sem önnur lönd eiga, og
getuj það því eigi haft ininnst.u verkun á heimsmarkaðinn, hvort
frá Islandi er flutt mikið eða lítið af ull, kjöti eður öðrum afurð-
t. }'.P Qenaðarins, svo það er með öllu ofurselt því verði, er stærri
löndin verðleggja sínar vörur.
* * *
Ull fluttist til Englands. Frá nýlendum F.yjaálfunnar
árið 1815 — 165 pakkar, árið 1830 — 8,067, árið 1850 — 138,679,
árið 1870 — 549,400 og árið 1880 — 863,800 pakka.
Fra Ifaplandi a suðurtánga Afríku var flutt til Englands af
ell árið 1830 — 160 pakkar, árið 1850 — 19,880, árið 1870 —
124,470 og árið 1880 — 193,460 pakkar.
Hjer af má sjá hve ákaflega hefur fleygt fram fjárstofni og
útflutningi þessara nýlendna, og að það eru þær, sem hafa mikil
álirif á alheimsmarkaðinn.
Árið 1880 var flutt ull til Englands frá:
Eyjaálfunni fyrir . . 326,417,300 kr. (meðaltal 1,09 aura pundið)
Kaplandi............ 57,640,800 - ( - 1,11 - — )
löndumíNorðurálfunni 43,892,000 - ( — 0,80 - — )
Frá íslandi var flutt árið 1879 — 1,705,890 pd. af hvítri og
mitlitri ull, fyrir á að gizka 1,215,000 kr.
*
* *
Af kolum var að eins frá 9 höfnum á Englandi útflutt
árið 1884 því nær 24 milljónir Tons (1 Tons er liðug 2000 pund).
Frá Newcastle ogþarum kring 8,131,000 Tons, Cardoff 5,705,000,
Sunderland 3,356,000, Newport 1,908,000, Svansea 1,615,000, West-
Hartlepool 1,130,000, Liverpool 877,000 Hull 617,000 og Harboar
593,000 Tons. — þetta er sama sem 300,000 skipsfarmar fyrir
skip af sömu stærð og þau, sem vanalega eru höfð til íslands.
Auk þessa er útskipað mjög miklu af kolum frá öðrum höfnum
áEnglandi og Skotlandi. Eigi er heldur litlu eytt í landinu sjálfu
til verksmiðja, járnbrautavagna og annara þarfa. Má af þessu sjá
hversu mikil auðsuppspretta kolin eru fyrir England, ekki að
eins fyrir eigendur námanna, heldur fyrir alla þá menn, sem fá
atvinnu við kolagröptinn, járnbrautarfjelögin við flutninginn, og
svo bæarbúa og hafnasjóði við allan þann skipafjölda, sem kem-
* ur til Englands til að sækja þessi ógrynni af kolum, sem flutt
er burt þaðan.
*
* *
Sykur, sem var búinn til árið 1880, reiknast að hafa verið
3,412,000 Tons, þar af var úr sykurreyr 1,845,000 Tons, og úr róurn
1,567,000 Tons. Af reyrsykri kom mest fra Java 210,000 Tons,
frá Brasilíu 200,000 Tons og frá Filippíeyjunum 190,000 Tons.
(65)